Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 02.07.2016, Page 36

Fréttatíminn - 02.07.2016, Page 36
…viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2016 OrkupOkinn Allt sem þú þArft HOll Og góð OrkA Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Ég hef alltaf séð sjálfa mig fyrir mér í eigin rekstri, en ég gæti alveg verið að selja blómavasa eins og kynlífstæki. Fyrir mér er þetta bara rekstur,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi verslunarinnar Blush.is sem selur hjálpartæki ástarlífsins og aðrar un- aðsvörur. Hafði aldrei átt kynlífstæki Fyrirtækið stofnaði hún fyrir fimm árum, þá aðeins 21 árs gömul. Í fyrstu var aðeins um að ræða net- verslun og heimakynningar, en í apríl á þessu ári ákvað Gerður að færa út kvíarnar og opna verslun í Hamraborginni í Kópavogi, þar sem við spjöllum saman innan um kyn- lífstæki, unaðsolíur, kerti og ýmis- legt annað forvitnilegt. Hún segir mikið hafa breyst á síð- ustu árum, bæði hvað varðar áhuga á kynlífstækjum og kynlífshegðun. Þá sé fólk alltaf að verða opnara í umræðunni um kynlíf. Sjálf hefur hún verið dugleg að tala opinskátt um kynlíf og kynlífstæki þrátt fyr- ir að hafa fundist það óþægilegt í fyrstu. „Ég held að starfið sem ég hef unnið, í að opna umræðuna, hafi haft mikil áhrif. Og líka það sem Sigga Dögg kynfræðingur hefur verið að gera. Það hefur orðið mikil breyting á umræðunni en það þarf alltaf einhver að vera brautryðjandi og tala um það sem öðrum finnst óþægilegt. Þetta var alveg jafn óþægilegt fyrir mig þegar ég var að byrja. Ég hafði aldrei átt kynlífstæki sjálf fyrr en stofnaði fyrirtækið mitt, þó ég hafi kannski prófað eitt- hvað. Þetta var alls ekki áhugamálið mitt.“ Á kynlífstækjaráðstefnu Hún hefur því sjálf lært mikið um kynlífstæki og kynlífshegðun frá því hún hóf reksturinn. „Ég veit núna til dæmis hvað það er mikilvægt að þekkja sjálfan sig áður en maður fer að stunda kynlíf með öðrum. Ég vildi svo mikið óska þess að einhver hefði sagt við mig þegar ég var ung- lingur: „Heyrðu vinan, viltu byrja á því að stunda sjálfsfróun áður en þú ferð að ríða þessum strák.“ Mér finnst ég hafa þroskast af því að tala um kynlíf og heyra sögur frá öðr- um,“ segir Gerður sem veit það líka núna að karlar geta alveg eins haft litla kynhvöt eins og konur. Gerður er búin að eiga hollensk- an kærasta í þrjú ár, en hann á einmitt líka kynlífstækjaverslun svo þau lifa og hrærast í sama brans- anum. „Upprunalega var hann heildsalinn minn en svo hittumst við á kynlífstækjaráðstefnu og fórum að vera saman. Ég er mjög ánægð með þá ákvörðun að hafa slegið til. Við búum bæði á Íslandi og í Hollandi og flökkum á milli. Ekkert óheilbrigt við það sem ég geri Gerður Huld, eigandi Blush.is, verður stundum fyrir fordómum vegna þess að hún selur kynlífstæki, en meðbyrinn er þó meiri. Hún hafði aldrei átt kynlífstæki þegar hún stofnaði fyrirtækið fyrir fimm árum, þá aðeins 21 árs. Sem gengur upp af því við bæði get- um unnið mikið í gegnum netið,“ útskýrir hún. Þarf ekki bdsm-samtök Fólk gerir oft ráð fyrir því að Gerður sé öllum hnútum kunnug í kynlífi og geri ekkert annað en að stunda kynlíf með hinum ýmsu hjálpar- tækjum, sérstaklega vegna þess að maki hennar er í sama bransa. „Það er mjög algengt að fólk haldi að heimilið okkar sé undirlagt af hjálpartækjum, rólum og svona. En það er svo alls ekki þannig. Ég á alveg jafn leiðinleg móment í kynlífi og allar aðrar konur og það sama á við um hann. Við erum bara í venju- legu sambandi og ég er ekki alltaf að nota kynlífstæki. Að sjálfsögðu þekkjum við þessi tæki kannski betur en aðrir og höfum prófað flest allt. Maður þarf samt alls ekki að vera meðlimur í bdsm-samtökum til að geta selt kynlífstæki. Ég get alveg sett mig í spor þeirra sem vilja kaupa sér svipur, endaþarmstæki eða aðra hluti sem kannski eru gróf- ari en hefðbundin tæki, með því að kynna mér hlutina. Ég held að kyn- líf sé eitthvað sem geti sameinað okkur öllu. Við þráum öll að vera snert, vera mikilvæg og finna að einhvern langi í okkur,“ segir hún sposk á svip. Mamma selur allskonar vörur Gerður var alin upp í Breiðholti til ellefu ára aldurs en þá flutti hún í Kópavoginn, þar sem hún býr enn. Nú í sama húsi og faðir hennar – á neðri hæðinni. „Ég er mjög mikil fjölskyldumanneskja og er mikið með mömmu og pabba,“ segir hún og brosir. Þá á Gerður sex ára son sem býr hjá henni aðra hverja viku. „Hann er einmitt í bekk með dóttur eiganda verslunarinnar Tantra. Það eru held ég þrjár kynlífstækjaversl- anir á Íslandi og það er því ótrú- lega skemmtileg tilviljun að börn eigenda tveggja þeirra séu saman í bekk. Sonur minn veit auðvitað ekki að mamma hans selur kyn- lífstæki, hann veit bara að ég á fyr- irtæki sem heitir Blush.is sem selur allskonar vörur.“ Dóttir kærasta Gerðar, og jafna- ldra sonar hennar, veit hins vegar að pabbi hennar selur kynlífstæki. „Hún var forvitnari en sonur minn og það var tekin ákvörðun um að segja henni það. En það þarf ekk- ert að útskýra þetta í smáatriðum. Þetta eru einfaldlega leikföng fyrir fullorðna. Það þarf ekki að segja meira. Annars held ég að hann sé bara heppinn að alast upp í svona opnu umhverfi, þar sem er jákvætt umtal um kynlíf. Það er ekkert óheilbrigt eða slæmt við það sem ég er að gera.“ Pabbi lánaði peninga Gerður og vinkona hennar, Rakel Ósk Orradóttir, fengu hugmyndina að stofnun Blush.is þegar þær voru báðar í fæðingarorlofi, en þær kynntust í mömmuhópi á með- göngunni. Rakel fór reyndar út úr fyrirtækinu eftir fyrsta árið, en þær eru ennþá bestu vinkonur. „Ég vissi ekkert hvað ég var að fara að gera og ég held að það sé ástæðan fyrir því að þetta gekk upp. Ég hafði ekkert að óttast og vissi ekkert hvað gæti gerst. Við áttum auðvitað enga peninga þannig ég fór til pabba og bað um lán til að stofna fyrirtæki. Þegar ég sagði honum hvernig fyrirtæki, þá sagði hann margt vera heimskulegra en það, enda stunduðu allir í heiminum kynlíf,“ segir Gerður sem er þakklát fyrir stuðning foreldra sinna og annarra í kringum sig. „Þrátt fyrir að reksturinn hafi alltaf gengið þokkalega var þetta ekki auðvelt fyrstu þrjú árin. Ég var alltaf að vinna aukavinnu með og botnaði mig algjörlega í skuld- um bara til að koma þessu af stað. Svo allt í einu kemst maður yfir ákveðinn hjalla. Þá fer allt að ganga betur og tilfinningin verður svo góð. Það er talað um að það taki fyr- irtæki tvö til þrjú ár að fara að skila hagnaði og það var þannig í mínu tilfelli. Svo er það fyrst núna sem ég orðin nokkurn veginn áhyggju- laus eða veit minnsta kosti að þetta gengur.“ Finnur fyrir fordómum Aðspurð segist Gerður stundum finna fyrir fordómum vegna þess að hún er í þessum ákveðna rekstri, en ekki einhverjum öðrum. „Ég er stundum spurð að því hvernig ég hafi endað í þessu, eins og þetta sé einhver endastöð. En það er alls ekki þannig. Þetta var upphafið og hefur gengið svona líka vel. Það er alls enginn heimsendir að selja kyn- lífstæki. En það er aðallega eldra fólk sem lætur svona. Ég hef annars fundið fyrir miklum meðbyr, sér- staklega eftir að ég fór að opna um- ræðuna meira og stofnaði snapchat aðgang fyrir Blush.is.“ Gerði dreymir um að fara með fyrirtækið á erlendan markað og er hún nú að opna nýjan snapchat aðgang á ensku sem er fyrsta skref- ið að því markmiði. „Minn draum- ur er að fá að fræða fólk og opna umræðuna meira. Mig langar að vera frumkvöðull í því að opna umræðuna gagnvart kynlífi. Gera það smekklega og án þess að vera dónaleg. Ég vil vera pían sem er þekkt fyrir það. Að fólk bendi á mig og segi að ég hafi hjálpað því að tala um kynlíf. Mig langar að komast á þann stað að ég geti verið með fyrir- lestra og frætt fólk.“ Í venjulegu sambandi Gerður kynntist kærastanum sínum á kynlífstækjaráðstefnu, en hann hafði þá verið heildsalinn hennar um tíma. Hún segir þau vera í ósköp venjulegu sambandi. Mynd | Rut Ég hafði aldrei átt kynlífstæki sjálf fyrr en stofnaði fyrirtækið mitt, þó ég hafi kannski próf- að eitthvað. Þetta var alls ekki áhuga- málið mitt.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.