Fréttatíminn - 02.07.2016, Qupperneq 46
Unnið í samstarfi við Útivist
Ferðafélagið Útivist býð-ur upp á skemmtilegar og fjölbreyttar gönguferðir á hálendinu. Hægt er, meðal
annars, að fara í gönguferðir um
Strútsstíg, Sveinstind og Dalastíg.
Útivist á einnig nokkra skála að
Fjallabaki – við Strút, Sveinstind,
Skælinga, í Álftavötnum og í
Reykjadölum sem nýtast í mörgum
góðum gönguleiðum á svæðinu.
Sveinstindur – Skælingar
Gönguleiðin um Sveinstind
er helsta skrautfjöður
Ferðafélagsins Útivistar.
Ferðin hefst með
göngu á Sveinstind.
Útsýnið yfir hinn
margrómaða Langa-
sjó, sem kúrir upp við
Vatnajökul, er hreint
ólýsanlegt. Ef skyggni er
gott má líta yfir bróðurpart
hálendis Íslands. Leiðin liggur svo
um fáfarnar slóðir, söndugar og
mosavaxnar, meðfram Skaftá og
um leynistigu með Uxatindum og
fram grösuga Skælinga, en ganga á
Gjátind og um sjálfa Eldgjá er góður
lokakafli á þessari margbreytilegu
göngu sem lýkur í Hólaskjóli.
Strútsstígur
Um sunnanvert Fjallabak liggur fal-
leg gönguleið frá Hólaskjóli í austri
og vestur í Hvannagil. Margt kætir
hug og anda á þessari leið. Fagrir
fossar verða á vegi okkar og fög-
ur fjallasýn. Farið er um dalverpi í
Hólmsábotnum þar sem Torfajökul
ber við himin og hin rómaða Strút-
slaug bíður göngumanna. Óhætt
er að segja að umhverfi skálans
við Strút sé draumaland göngu-
mannsins með ótal möguleikum á
skemmtilegum gönguleiðum. Því
er dvalið tvær nætur í Strúti til að
kynnast betur þessu skemmtilega
svæði. Á lokadegi göngunnar er
haldið áfram frá Strúti vestur yfir
Veðurháls og að Hvannagili þar
sem rúta sækir hópinn.
Dalastígur
Dalastígur er ný gönguleið
á fáförnum en virkilega
áhugaverðum slóðum að
Fjallabaki. Gangan hefst
við Mosa, skammt frá
Markarfljóti. Þaðan er
gengið í Þverárgil og
komið við í sérstæðum
gististað gangnamanna
í hellisskúta. Áfram er
haldið í skálann á Hungurfitj-
um þar sem gist er fyrstu nóttina.
Frá Hungurfitjum er gengið upp
Skyggnishlíðar að Skyggnisvatni,
síðan að Laufavatni í Laufahrauni
og áfram í Dalakofann í gistingu.
Frá Dalakofanum er gengið um mik-
ið hverasvæði og yfir norðanverðan
Svartakamb að Rauðufossafjöllum.
Þar finna göngumenn sérkennilega
uppsprettu Rauðufossakvíslar og
er ánni fylgt niður fyrir Rauðufossa.
Þaðan er gengið í Landmannahelli
og gist þar. Á fjórða degi göngunn-
ar er gengið frá Landmannahelli
um Hellismannaleið í Landmanna-
laugar.
Skemmtilegar og fjölbreyttar
gönguferðir á hálendinu
Ferðafélagið Útivist býður upp á áhugaverðar gönguferðir og gistingu í skálum
Fjölbreyttar gönguleiðir Hægt er að fara í gönguferðir um Strútsstíg, Sveinstind
og Dalastíg.
Hálendisferðir Ferðafélagið Útivist býður upp á skemmtilegar gönguferðir á hálendinu.
Unnið í samstarfi við
Buggy Adventures
Það er mun meiri nánd við náttúruna að ferðast um hálendið á buggy-bílum en hefðbundnum bíl, og
í þokkabót miklu skemmtilegra.
Þú ert í tengslum við veðurfarið,
aðstæðurnar og umhverfið,“ segir
Harpa Groiss, einn eiganda Buggy
Adventures á Íslandi.
Buggy-bílar eru ný tegund af af-
þreyingu hérlendis. Um er að ræða
tveggja manna fjórhjóladrifna bíla.
„Það má kannski helst bera þetta
saman við fjórhjól, nema það er
einfaldara og öruggara að keyra
buggy, sem eru útbúnir veltibúri
og fjögurra punkta öryggisbelti.
Þetta er rallýstemning, rykið þyrl-
ast upp og drullan líka. Bílarnir
komast nánast hvert sem er
svo þetta alveg ótrúlega
skemmtilegt sport.
Það eru tveir saman
í bíl og nóg pláss
fyrir grill, nesti og
útilegubúnað á palli
bílsins.“
Buggy adventures
bjóða upp á fjöl-
breyttar ferðir um
íslenska náttúru, allt frá
klukkustundar ferð í nágrenni
Reykjavíkur til nokkurra daga
ferða um hálendið. Landmanna-
laugar, Þórsmörk, gullni hringur-
inn, Eyjafjallajökull og Fjallabak
eru á meðal kennileita sem leið-
sögumenn Buggy Adventures
bjóða upp á. Tekið er á móti
einstaklingum og hópum en
alls eru 33 buggy-bíl-
ar til leigu. Í samstarfi
við leiðsögumenn
geta einstaklingar
eða hópar skipulagt
sína ævintýraferð.
„Fyrir þau sem kjósa
lengri ferðir er gist í
skálum á Hveravöllum
þar sem náttúrulaugar
eru innan handar eftir við-
burðaríkan dag um Langjökul,
Kjöl og Kerlingarfjöll, til dæmis,“
segir Harpa.
Í hverri ferð eru tveir leiðsögu-
menn í för og skaffa þeir öllum til-
heyrandi búnað fyrir hópinn. Farið
er yfir grundvallaratriðin, hvar
má keyra og hvað skal varast, en
bílarnir eru sjálfskiptir og einfald-
ir í akstri. Á leiðinni er stoppað á
fallegum útsýnisstöðum og keyrt
á merktum slóðum og vegum á
götuskráðum buggy-bílunum sem
komast nánast allt; á jökla, fjöll og
yfir ár. Ferðirnar eru fyrir alla þá
sem vilja upplifa íslenska náttúru
á spennandi máta. „Þórsmörkin
og Landmannalaugar eru í dálæti
hjá mér, það er einstök upplifun
að keyra þar um í náttúrufegurð,“
segir Harpa og hvetur sem flesta
til þess að kynna sér ferðir Buggy
Adventures.
Allar nánari upplýsingar um ferðir
og bókanir á buggyadventures.is
eða í síma 825-9060.
Ævintýraferðir um hálendið
á buggy-bílum
Buggy-bílar eru ný tegund af afþreyingu á Íslandi. Einstakur
og ævintýralegur ferðamáti um hálendi Íslands, jökla, ár og fjöll
Komast allt Buggy-bílarnir eru einfaldir og öruggir á akstri og ævintýralegur ferðamáti um
náttúru Íslands.
Buggy
adventures
bjóða upp á
fjölbreyttar fe
rðir
um íslenska
náttúru
…ferðir kynningar 2 | amk… LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2016
Dalastígur er
ný gönguleið
á fáförnum en virki-
lega áhugaverðum
slóðum að Fjallabaki.
Gangan hefst við
Mosa, skammt frá
Markarfljóti. Þaðan
er gengið í Þverárgil
og komið við í sér-
stæðum gististað.
Margt
kætir hug
og anda á
þessari
leið.
Dagbjört Heimisdóttir
dagbjort@frettatiminn.is
Helga María er 33 ára leiðsögumað
ur hjá Íslenskum fjallaleiðsögu
mönnum og mikil áhugamanneskja
um jökla, enda jöklafræðingur að
mennt, með menntun frá bæði Há
skóla Íslands og Osló í þeim efnum.
Hún hefur gengið á fjöll í fjölda
ára, eða frá árinu 2008 og hefur
gríðarlega reynslu sem leiðsögumað
ur og sérlegur aðdáandi íslenskrar
náttúru. Þessi brosmildi og hressi
leiðsögumaður hefur gengið, hlaup
ið og klifið fjöllin í þónokkuð mörg
ár og var hún beðin að gefa upp eina
af sínum uppáhalds náttúrurperlum
á hálendinu, sem fáir vita af.
„Það eru óteljandi fallegir staðir á
hálendinu og um allt Ísland,“ segir
Helga María og bætir því við að þó
komi fljótt upp í huga einn uppá
haldsstaður á hálendinu en það er
Snæfell, sem er norðan Vatnajök
uls. Tjaldstæðið og skálinn eru á
svo fallegum og friðsælum stað og
náttúrufegurðin engu lík og gangan
þangað er flestum fær. „Útsýnið er
200 milljóna króna virði,“ segir hún
og er klárt mál að hún veit um hvað
hún talar.
Snæfell er innan Vatnajökulsþjóð
garðs og er það hæsta fjall Íslands,
utan jökla, og ef þú stendur á toppi
fjallsins getur þú horft yfir landið í
nánast allar áttir úr 1833 metra hæð.
Við rætur fjallsins er fallegur og
veglegur skáli sem rúmar allt að 45
manns, en þar er einnig sturta, sal
erni, tjaldstæði og almennt góð að
staða fyrir ferðamenn. Gangan upp
á toppinn er möguleg fyrir flesta, en
ekki er mikið um skipulagðar ferðir
á topp þessa fagra náttúruundurs
Íslands.
Útsýnið á toppnum er
ekki hægt að setja í verð
Þaulreyndur fjallaleiðsögumaður
segir frá sínum uppáhaldsstað
Víðsýni Helga María ásamt eiginmanni sínum, Árna Þór Hlynssyni, á toppi Snæfells.