Fréttatíminn - 02.07.2016, Side 48
Hálendisferðir fyrir alla
Friðsæld og fegurð í óspilltri náttúru. Komdu með áður en það verður of seint!
Unnið í samstarfi við Hálendisferðir
Ósk Vilhjálmsdóttir er myndlistarmaður og ferðafrömuður. Hún hefur verð virk í nátt-
úruverndarbaráttu í 20 ár og
skipulagði meðal annars göngu-
ferðir um landsvæðin við Jöklu,
Kringilsárrana og öræfin við
Snæfell í þrjú sumur (2003-2006)
ásamt Ástu Arnardóttur, áður en
landinu var sökkt undir Hálslón.
Þær ferðir vöktu mikla athygli á
sínum tíma.
Ósk stofnaði til Hálendisferða
árið 2006, í kjölfar deilna um
Kárahnjúkavirkjun. Markmiðið
með Hálendisferðum er að vekja
athygli almennings á hálendi Ís-
lands, einstæðum landslagsheild-
um og náttúruundrum sem þar
er að finna. Almenningi gefst því
færi á að upplifa fegurð landsins
á þeim stöðum sem staðið hefur
til að reisa virkjanir, alls er óvíst
hversu lengi til viðbótar það tæki-
færi gefst.
Fólk á öllum aldri getur notið
gönguferða um ósnortna nátt-
úru landsins. Hálendisferðir hafa
sérhæft sig í að skipuleggja ferðir,
bæði fyrir vana fjallgöngumenn
en einnig fyrir þá sem eru óvan-
ir og kjósa að fara hægar yfir.
Flestar ferðirnar eru trússferð-
ir og því þarf fólk ekki að ganga
með þungar byrðar. Áhersla er
lögð á að bjóða upp á gómsæt-
an og hollan mat. Góðar máltíðir
og samvist ferðafélaga er hluti af
upplifuninni. Ferðir Hálendisferða
eru mislangar, þær lengstu eru 6
daga.
Hvar er gengið?
Hálendisferðir skipuleggja ferð-
ir um Þjórsárver, Kerlingarfjöll,
Torfajökulssvæðið, Skjálfanda-
fljót, Eyjabakka og Lónsör-
æfi, Reykjanes og Ölkelduháls.
Gönguleiðirnar liggja um fáfarna
slóða. Í göngunum gefst friður frá
öllu heimsins amstri í faðmi fjalla
og ósnortinna öræfa. Ferðalangar
finna sinn líkamlega og andlega
styrk, sem ýtir undir almenna
vellíðan og lífshamingju.
Margrét H. Blöndal og Ósk Vil-
hjálmsdóttir leiða flesta hópana
en einnig verður í boði jógaferð
með Auði Bjarnadóttur og ferðir í
Þjórsárver með Hjálmari Sveins-
syni, Ólöfu Ýrr Atladóttur og Rósu
Björk Brynjólfsdóttur.
Þjórsárver
Boðið er upp á tvennskonar ferðir;
þriggja daga trússferð og 5 daga
bakpokaferð. Í báðum tilvikum er
ekið inn á hálendið að Hofsjökli
um Hrunamannaafrétt. Tími gefst
fyrir göngu um Kerlingarfjalla-
svæðið á leiðinni. Tjaldbúðum er
slegið upp við Hnífá, rétt við jök-
ulána Blautukvísl við rætur Hofs-
jökuls. Þar verður gist næstu tvær
nætur í styttri ferðinni. Á öðrum
degi verður gengið yfir í friðland
Þjórsárvera. Þar kvíslast jökulárn-
ar eins og háræðanet um landið
sunnan jökulsins og næra ein-
stætt vistkerfi sem hefur meðal
annars að geyma eitt af mikilvæg-
ustu varpsvæðum heiðargæsar í
heiminum. Gengið verður inn að
Múlajökli þar sem litríkur gróður
skartar sínu fegursta í skjóli jarð-
vegshrauka sem jökullinn hefur
ýtt upp. Á heimleiðinni verður
keyrt suður Gnúpverjaafrétt og
ferðin notuð til að skoða fossinn
Dynk. Í lengri ferðinni er geng-
ið með bakpoka inni í friðlandið
í Þjórsárverum og tjaldað í fjór-
ar nætur í friðlandinu og dags-
göngurnar teknar þaðan.
Gönguferð að Fjallabaki
Gönguferð og fjallabað að
Fjallabaki í nánd við eitt mesta
háhitasvæði í heimi, Torfajökuls-
svæðið. Tilvalinn leiðangur fyrir
börn, fullorðna, eldra fólk og alla
þá sem vilja njóta fjallalífsins á
auðveldan hátt í góðum félags-
skap. Leiðsögumennirnir eru jafn-
framt myndlistarmenn og boðið
er upp á tilsögn í myndlist fyrir þá
sem vilja spreyta sig á að teikna
og mála það sem fyrir augu ber.
Jógaferð um háhitasvæði
Fimm og þriggja daga gönguferð
um Torfajökulssvæðið utan al-
faraleiðar. Hin mögnuðu hvera-
svæði í Reykjadölum skoðuð. Þar
er eitt fjölbreyttasta háhitasvæði
heims en fáir þekkja það. Auður
Bjarnadóttir jógakennari verður
með í för og mun leiða jógaæf-
ingar kvölds og morgna til að full-
komna upplifunina. Skálagisting
og gómsætur matur innifalinn.
Upplýsingar:
halendisferdir.is
info@halendisferdir.is
sími: 6914212
…ferðir kynningar 4 | amk… LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2016
Fjallabað Barna- og fjölskylduferð býður upp á bað í Strútslaug.
Friðsæld á hálendinu Ósk Vilhjálmsdóttir í friðlandi Þjórsárvera.
Í grænni lautu Margrét H. Blöndal leiðsögumaður í grænni lautu.
Fólk á
öllum aldri
getur notið
gönguferða um
ósnortna nátt-
úru landsins.