Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 02.07.2016, Blaðsíða 53

Fréttatíminn - 02.07.2016, Blaðsíða 53
Landmannalaugar Gott að vera í fjallaloftinu Ferðafélag Íslands rekur gisti- skála í Landmannalaugum með plássi fyrir 75 manns. Þar að auki er stórt hreinlætishús á svæðinu, með sturtum og vatnssalernum, og skála- og landvarðarhús. Tjald- stæði eru á flötunum í grennd við skálann. Heit, náttúruleg laug er í göngufæri frá skála. Vegurinn í Landmannalaugar var nýverið opnaður eftir veturinn og þá hefst formlega ferðamanna- tímabilið. Sara Dögg Arnardóttir er skálavörður Ferðafélags Íslands annað sumarið í röð í Landmanna- laugum. „Þetta er rosalega fallegt svæði og ólíkt öllu öðru. Það er ofsalega gott að vera í fjalla- loftinu hérna,“ segir Sara Dögg. Ferðmannastraumurinn er hafinn í Landmannalaugar en Sara Dögg segir að mest séu það erlend- ir ferðamann sem eru á ferðinni. „Íslendingar sem koma hingað eru flestir að ganga Laugaveginn eða koma í dagsferð,“ segir Sara Dögg. Með auknum ferðamanna- straumi hefur rútuferðum í Land- mannalaugar verið fjölgað og auð- velt að koma þangað í dagsferð. „Á flottum degi er hægt að koma og dvelja í tvo til þrjá tíma, ganga um og skella sér í heitu náttúru- laugina. Við seljum dagsferðakort sem sýnir helstu gönguleiðir og litinn á stikunum sem á að fylgja, en landverðirnir hafa verið dug- legir að ganga um og stika helstu leiðir.“ Vinsælt er að ganga upp á Brennisteinsöldur og á Bláhnúk, hringinn í kringum hraunið og ofan í Græna gil. „Útlendingarn- ir kalla Brennisteinsöldu Color- ful Mountain, enda er það mjög litríkt. Þar er útsýni til allra átta Álftavatn Á fjöllum eru allir vinir Við Álftavatn er Ferðafélag Ís- lands með tvo skála sem rúma 72 manns í kojum. Skálarnir eru á miðri gönguleiðinni um Lauga- veginn. Þar er einnig klósetthús og sturtur. Tjaldstæði er á vatns- bakkanum. „Á fallegum degi er útsýnið einstakt. Við sjáum yfir vatnið og Tindafjallajökull blasir við. Það er endurnærandi að rölta niður að vatninu, setjast niður og njóta kyrrðarinnar,“ segir Einar Bessi Gestsson, skálavörður við Álfta- vatn. „Langflestir sem koma hing- að eru að ganga Laugaveginn en við erum á miðri leið. Maður hittir mikið af skemmtilegu fólki sem er að labba hér í gegn, mikið af ævintýrafólki, þess vegna er gam- an að vera hér. Mér fannst mjög gaman um daginn þegar hingað kom íslensk fjölskylda með 10 ára stráka sem voru að ganga Lauga- veginn. Við horfðum á landsleik- inn gegn Austurríki saman og það var mikið fjör. Mér finnst flott þegar krakkar eru að rölta Lauga- veginn. Í raun ættu allir sem hafa minnsta áhuga á náttúrunni að ganga þessa leið eða að minnsta kosti hluta hennar, þetta er alger- lega frábær náttúra hérna sem enginn ætti að láta framhjá sér fara,“ segir Einar Bessi Hann segir einstaka stemningu ríkja á fjöllum sem hvergi er að finna annarsstaðar. „Það hjálpast allir að á fjöllum og allir eru vinir.“ Ferðin hafin Lagt af stað í Laugavegsgöngu frá Landmannalaugum. Mynd | FÍ Björk Guðbrandsdóttir Fögur fjallasýn Álftavatn er á miðri Laugavegsgöngu. Þar er hægt að gista í skálum Ferðafélags Íslands. Mynd | FÍ Björk Guðbrandsdóttir sem sýnir brot af því besta.“ Hún segir alla sem koma í Landmanna- laugar heillast en það komi fyrir að fólk sé að leita að stöðum sem það hefur séð á myndum.“ Stund- um þarf að minna fólk á að það er búið að eiga við myndir og litirnir eru ekki raunverulegir. Hér kom maður með mynd af bláu gili og vildi vita hvar hann fyndi það. Í raunveruleikanum er gilið grænt, en ekki blátt,“ segir Sara Dögg. Vegurinn að Landmannalaugum er opinn fram í september, eða á meðan veður leyfir. …ferðir kynningar9 | amk… LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2016 Við seljum dagsferðakort sem sýnir helstu gönguleiðir og litinn á stikunum sem á að fylgja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.