Fréttatíminn - 02.07.2016, Síða 54
…ferðir
kynningar
10 | amk… LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2016
Göngur við allra hæfi Fallegar og miskrefjandi gönguleiðir eru í Kerlingarfjöllum
Ævintýraland Kerlingarfjöll eru sannkallað ævintýraland
Sér á parti Kerlingarfjöll eru fegursti staður á landinu, að sögn Þóris Guðmundssonar.
Kerlingarfjöll Fjöllin sjást mjög langt að Flott á fjöllum Þórir Guðmundsson ásamt eiginkonu sinni í Kerlingarfjöllum
Þetta er einn fegursti staður
á landinu. Auðvitað má segja
það um svo marga staði á Íslandi en
Kerlingarfjöll eru bara sér á parti. Þú
ert úti í óbyggðum, inni í miðju landi
og umkringdur óspilltri náttúru.
Þórir Guðmundsson
Forstöðumaður Rauða krossins í Reykjavík
Við
hverina
myndast
hveraleir og
allt berg er
sundursoðið.
Eitt fjölbreyttasta
útivistarsvæði Íslands
Einstök náttúrufegurð og góð aðstaða þar sem þú hefur allt til alls
Unnið í samstarfi við Kerlingarfjöll
Kerlingarfjöll eru sannar-lega eitt fjölbreyttasta útivistarsvæði Íslands. Þar eru fallegar og miskrefj-
andi gönguleiðir og ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi,
hvort sem um er að ræða hæstu
toppa eða fara um eitt stærsta
jarðhitasvæði Íslands. Sumar leiðir
eru merktar en aðrar eru ómerktar.
Þú getur farið um og notið þess að
rekast ekki á annað fólk tímunum
saman. Segja má að í Kerlingar-
fjöllum renni maðurinn og náttúran
saman og verði eitt.
Þórir Guðmundsson, forstöðu-
maður Rauða krossins Í Reykja-
vík, fór fyrst í Kerlingarfjöll þegar
hann var barn og á að eigin sögn
óskaplega góðar minningar frá
Kerlingarfjöllum. „Í minningunni
var þetta heilmikið ferða-
lag en í dag er þetta
bara skottúr, þú ert
engan tíma að kom-
ast þarna. Vegirnir
eru orðnir svo góð-
ir og móttökurn-
ar sem maður fær
eru alveg frábær-
ar. Starfsfólkið er
líka alveg sérstak-
lega viljugt að leiðbeina
manni og þess vegna ekkert
mál að finna gönguleið við hæfi,“
segir Þórir sem nýlega heimsótti
Kerlingarfjöll ásamt ferðafélögum
sínum í gönguhópi sem gengur
saman á fjöll víða um land.
Kerlingarfjöll eru skammt í suð-
vestur frá Hofsjökli, á vatnaskilum
Hvítár og Þjórsár. Þau eru þyrping
strókmyndaðra tinda og eggja sem
ná yfir um það bil 150 ferkílómetra
svæði. Fjöllin sjást mjög langt
að og eru hæstu tindarnir í 1500
metra hæð yfir sjó. Ásgarðsá og
Kisa mynda mikil árskörð í gegn-
um fjöllin og kljúfa þau í tvo megin
hluta, austur- og vesturfjöll.
Í Kerlingarfjöllum eru 12 hús í
útleigu fyrir bæði litla og stóra
hópa. Í boði er gisting í uppábún-
um rúmum ásamt því að
hægt er að vera í svefn-
pokaplássi. Heildar-
gistirými er fyrir um
90 manns en auk
þess er mikið og
gott pláss á tjald-
svæðinu. Veitinga-
staður er á svæðinu
og fært er í Kerlingar-
fjöll á öllum bílum yfir
sumartímann, eins er GSM
símasamband í Kerlingarfjöll-
um.
„Aðstaðan í Kerlingarfjöllum er
virkilega góð, þar hefur þú allt til
alls – sturtuaðstöðu, snyrtingar og
hægt er að setjast niður og fá sér
kaffibolla. Kvöldvökurnar í gamla
skálanum í Kerlingarfjöllum hafa
einnig setið fastar í minninu síðan
ég kom þangað fyrst og það var
stórkostlegt að upplifa þær á ný.
Söngur og kæti eins og best ger-
ist,“ segir Þórir.
Einstök náttúrufegurð er í Kerl-
ingarfjöllum og eru Hveradalir eitt
af þremur skilgreindum háhita-
svæðum í Kerlingarfjöllum, en þar
getur að líta gufu- og leirhveri
og er útstreymi þeirra blandað
brennisteini. Við hverina myndast
hveraleir og allt berg er sundur-
soðið. Þar sem jökultungur ganga
niður í dali hafa hverirnir sumstað-
ar brætt frá sér ísinn og myndað
tilkomumiklar hvelfingar, íshella
eða íshamra. Einnig vex í kringum
hverina mjög sérstæður gróður.
Marglitur hveraleirinn, gufumökk-
urinn, líparítfjöllin, jökultungurn-
ar og gróðurvinjar inn á milli búa
til fjölbreytni og litaauðgi sem
gerir svæðið engu líkt. Hveradalir
eru sannkallað ævintýraland fyrir
áhugamenn um ljósmyndun og
ljósmyndara.
Hægt er að fullyrða að þeirra
bíði veisla sem fjöllin sækja heim,
einkum og sérílagi ef fólk kann að
meta fallega og fjölbreytta nátt-
úru, litbrigði, liti og landslag með
fjöllum, dölum, tindum og giljum.
„Þetta er einn fegursti staður á
landinu. Auðvitað má segja það um
svo marga staði á Íslandi en Kerl-
ingarfjöll eru sér á parti. Þú ert úti
í óbyggðum, inni í miðju landi og
umkringdur óspilltri náttúru. Lita-
brigðin í leirnum eru einstök, það
er óvíða sem maður kemst nær
þeim ógnarkröftum sem leynast
undir yfirborði jarðar, “ segir Þórir.