Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 5. ágúst 2016
Ungar konur bjóða persónulega leiðsögn
Ferðamenn Yfir hundrað
Íslendingar hafa skráð sig á
heimasíðuna Showaround.
com sem miðar að því að
einstaklingar selji tíma
sinn til ferðamanna sem
vilja kynnast landi og þjóð
með óhefðbundnum hætti.
Langflestir þeirra sem eru
skráðir á síðuna eru ungar
konur, en engir eru lærðir
leiðsögumenn, eftir því sem
næst verður komist.
Valur Grettisson
vg@frettatiminn.is
„Ég hef oftast lent í því að karl-
menn frá Austur-Evrópu setji sig
í samband við mig, en svo var
þarna líka þýskt par sem hafði
samband,“ segir Marta Kristín
Friðriksdóttir, verkfræði- og söng-
nemi, en hún býður þjónustu sína
á síðunni og kostar klukkutíminn
með henni sautján evrur (tæplega
2300 krónur).
Marta segir að fjölmargar skóla-
systur sínar úr Háskóla Íslands
hafi skráð sig á síðuna í vor, en
heimasíðan byggir í raun á sömu
hugmynd og Airbnb. Þannig
skrifa leiðsögumennirnir upplýs-
ingar um sig sjálfa og þá þjónustu
sem þeir geta boðið. Ferðamenn
hafa svo samband við síðuna
sem kemur skilaboðum áleiðis til
einstaklinganna. Fjölmargir bjóða
upp á skottúra í kringum höfuð-
borgarsvæðið og svo leiðsögn um
næturlíf borgarinnar. Síðan er
eingöngu ætlað að bjóða upp á
persónulega leiðsögn um landið.
Aðspurð segir Marta að hún
myndi ekki sjálf leggja í að fara
ein með ókunnugum karlmanni í
ferðalag, „ég myndi líklega alltaf
fá vinkonu mína með,“ bætir hún
við, en hún á enn eftir að leið-
beina ferðamönnum. Spurð hvað
hún myndi sýna ferðamönnum
sem hún tæki á móti segir Marta
að hún myndi láta ferðamenn-
ina ákveða sjálfir hvað þeir vildu
sjá. „Þetta færi mikið eftir þeirra
væntingum,“ segir hún.
„Ég var nú aðallega að hugsa um
göngutúra í miðbænum og sýna
ferðamönnum svona það helsta,“
bætir hún við.
Slegist í Suðurkjördæmi
Stjórnmál „Ég hef verið vinur
Árna Johnsen í 40 ár en fyrir
fjórum árum fór hann að
kenna mér um ófarir sínar,
hætti að heilsa og neitaði að
taka í höndina á mér,“ segir
Ásmundur Friðriksson, þing-
maður Suðurkjördæmis.
Árni hefur boðað þátttöku í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í kjördæminu
og segir núverandi þingmenn kjör-
dæmisins, Ragnheiði Elínu Árna-
dóttur, Unni Brá Konráðsdóttur og
Ásmund Friðriksson, hafa unnið
gegn sér. „Þetta er bara svo mikil
fjarstæða,“ segir Ásmundur.
„Ég held að þessi ummæli dæmi
sig sjálf, maður verður að kunna að
tapa,“ segir Unnur Brá sem skipaði 2.
sæti listans síðast en hefur ekki gefið
út á hvaða sæti hún stefnir á núna.
Líklegt má þó telja að hún skelli sér
í slaginn um fyrsta sætið, en Ragn-
heiður Elín Árnadóttir iðnaðarráð-
herra, sem var oddviti listans fyrir
síðustu kosningar, hyggst verja það
sæti.
Árni Johnsen fór mikinn í grein í
Morgunblaðinu í gær og sakaði þre-
menningana um siðlaus og ódrengi-
leg vinnubrögð. Þá hefði þeim ekki
orðið mikið úr verki. |þká
Árni Johnsen sakar
þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins í
Suðurkjördæmi um
siðlaus og ódrengi-
leg vinnubrögð.
Útboð Nýlega auglýstu Rík-
iskaup útboð vegna kaupa
á nýrri bifreið fyrir um-
hverfisráðherra. Athygli vek-
ur að lægsta tilboði hafi ekki
verið tekið. Hekla hf. hefur
í þrígang verið með lægsta
tilboð í útboðum Ríkiskaupa
um nýja ráðherrabíla, en
verið hafnað í öll skiptin.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Það hefur auðvitað komið okkur
á óvart hvernig Ríkiskaup ganga á
skjön við hagsmuni ríkisins og þar
með almennings, með því að taka
ekki lægsta tilboði í útboði fyrir
nýjan bíl umhverfisráðherra,“ seg-
ir Friðbert Friðbertsson, forstjóri
Heklu.
„Ríkisskaup skilgreina útboð sín
með það þröngum hætti að útlit er
fyrir að þau séu sniðin að ákveðn-
um bíl og því ómögulegt fyrir önnur
umboð að uppfylla skilmála útboða
þeirra,“ bætir Friðbert við.
Að sögn Friðberts hefur Hekla
gert tilboð í þrjá ráðherrabíla en
verið hafnað í öll skiptin þrátt fyr-
ir að hafa í öllum tilvikum uppfyllt
útboðsskilyrði og verið með lægsta
verðið.
Í mars í fyrra var útboð á nýjum
bíl fyrir atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðherra. Þar bauð Hekla fram
Mitsubishi Pajero jeppa en Ríkis-
kaup ákváðu að kaupa Land Cru-
iser sem var mun dýrari.
Í haust var útboð á nýjum bíl fyr-
ir forsætisráðherra. „Þá lagði Hekla
fram lægsta tilboðið, Audi A8, sem
uppfyllti öll skilyrði útboðslýs-
ingar,“ segir Friðbert. „Tilboðinu
var hafnað þrátt fyrir að um lægsta
tilboð væri um að ræða.“
Í byrjun júní var svo send útboðs-
lýsing vegna fyrirhugaðra kaupa á
nýjum bíl fyrir umhverfisráðherra.
Flest bílaumboð landsins fengu
gögnin send. Óskað var eftir 300
hestafla tvinn- eða tengitvinnbíl
með 17 atriða lýsingu á því hvernig
bíllinn ætti að vera útbúinn.
„Við sáum strax að einn af okk-
ar bílum gæti passað við lýsinguna,
en að sá bíll yrði útilokaður vegna
þess að hann er 30 cm lengri en til-
greint var í útboðslýsingu. Við send-
um því fyrirspurn og óskuðum eft-
ir að heimilt yrði að bjóða bíl sem
væri 5,1 metri. Það var samþykkt af
Ríkiskaupum. Þar með var okkar
bíll gjaldgengur í útboðinu,“ segir
Friðbert.
Þá barst fyrirspurn frá öðru bif-
reiðaumboði, um hvort krafan í
lýsingunni um 300 hestöfl ætti við
um samanlagðan hestaf lafjölda
beggja véla bílsins, eða eingöngu
aðalmótorinn. „Ríkiskaup svöruðu
að átt væri við aðalvélina og breytti
þar með upprunalegri útboðslýs-
ingu sem kvað á um að samanlagð-
ur hestaflafjöldi ætti að vera 300.
Hekla sendi þá fyrirspurn um hvers
vegna útboðslýsingunni hefði ver-
ið breytt með svo afgerandi hætti.
Engin svör bárust frá Ríkiskaupum
þrátt fyrir að ítrekað hefði verið
gengið eftir þeim. Einhver gæti sagt
að þetta lyktaði af því að fyrirfram
hafi verið búið að ákveða hvaða bíl
ætti að kaupa. Þá er spurning til
hvers Ríkiskaup standa í útboði yfir
höfuð? Markmiðið með útboði hlýt-
ur að vera að gera sem hagkvæmust
innkaup.“
Í útboðsgögnum
Ríkiskaupa var aug-
lýst eftir gríðarlega
öflugum jeppa fyrir
umhverfisráðherra,
Sigrúnu Magnús-
dóttur.
Friðbert Friðberts-
son forstjóri Heklu
spyr hvers vegna
Ríkiskaup stendur í
útboði á ráðherrabíl-
um yfirhöfuð.
Tilgangslaus útboð við
kaup á ráðherrabílum
Sjúklingagjöld Sigurður
Hólm Gunnarsson segir að
mánaðarlegur kostnaður við
að þjást af þunglyndi, kvíða-
röskun og ofsakvíða séu 71
þúsund krónur á mánuði eða
852 þúsund krónur á ári.
Í reikningsdæmi Sigurðar Hólm
Gunnarssonar er sálfræðitími einu
sinni í viku, sem gerir um 56 þús-
und krónur á mánuði. Þá bætist við
fimmtán þúsund fyrir læknisþjón-
ustu og lyf.
Sigurður Hólm, sem greinir frá
þessu í vefritinu Skoðun, segir að
geðlæknirinn sinn hafi gefið fyrir-
mæli um það sem þyrfti til að bæta
ástandið: „Ég veit að þetta er dýrt en
þú verður bara að „splæsa“ þessu á
þig“, segir Sigurður að læknirinn hafi
sagt, fullur skilnings.“
„Í mínu tilfelli eru það ekki
„nema“ um tvenn útborguð mánað-
arlaun en mun meira fyrir allan
þann fjölda sem er lægra launaður
en ég. Reyndar er ég í fæðingaror-
lofi núna og fæ þá um 270 þúsund
krónur á mánuði þannig að áætl-
aður árlegur heilbrigðiskostnaður
er rúmlega þrenn mánaðarlaun frá
fæðingarorlofssjóði.“
Hann þurfi ennfremur að greiða
fyrir húsnæði, mat og klæði fyrir sig
og börnin sín, tannlæknakostnað
og í þessum mánuði hafi hann þurft
að sleppa því að fara til læknis til að
greiða LÍN. | þká
Sigurður Hólm
Gunnarsson segist
borga um 56 þúsund
krónur á mánuði í
sálfræðitíma.
Kvíðaröskun kostar
852 þúsund á ári
Sakamál Hæstiréttur snéri
við úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur í vikunni um
nálgunarbann gegn karl-
manni af erlendum uppruna
sem var sakaður um að beita
sambýliskonu sína ítrekuðu
ofbeldi.
Konan og maðurinn eignuðust barn
sem er nú á leikskóla en það varð
vitni að ofbeldi sem faðir þess beitti
móðurina.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykja-
víkur segir að barnið hafi tjáð sig
um eina árásina á móðurina, sem
átti sér stað í desember á síðasta ári,
við starfsfólk leikskólans. „Mamma
gráta, pabbi búmm, búmm,“ sagði
barnið við starfsmanninn og kýldi
með annarri hendi út í loftið. Fram
kemur í úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur að skólayfirvöld hafi
áhyggjur af þroska barnsins.
Þá segir einnig í dómi að mað-
urinn hafi einu sinni ruðst inn á
heimili konunnar, gengið í skrokk
á henni, og numið drenginn á brott.
Lögreglan skráði 11 tilvik frá árun-
um 2010 til 2013 þar sem lögreglan
var kölluð að heimili þeirra vegna
heimiliserja. Maðurinn reyndi síð-
ast að nema drenginn á brott af leik-
skóla barnsins í júní síðastliðnum.
Manninum er gert að halda sig fjarri
mæðginunum í 6 mánuði. | vg
„Mamma gráta, pabbi búmm, búmm“
Barnið er á leikskólaaldri en það gat
sagt starfsfólkinu frá ofbeldi sem faðir
þess á að hafa beitt móðurina.
Marta Kristín Friðriksdóttir
skráði sig á síðuna í vor, en hún
hefur þó ekki enn leiðbeint
ferðamönnum þó að allnokkrir
hafi óskað eftir því.
Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra hefur nú Mercedes-Benz GLE til umráða.