Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 05.08.2016, Qupperneq 16

Fréttatíminn - 05.08.2016, Qupperneq 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 5. ágúst 2016 Það er kallað Hálanda-hreinsunin þegar fátækt fólk var flæmt burt úr þorpum og kotum í Hálöndum Skotlands á átjándu og nítjándu öld. Fólkið flúði til borganna í Láglöndunum en einnig til Ameríku og Ástralíu. Þar sem áður hafði verið samfélag fólks var sauðfé beitt á heiðalönd og haga. Sauðfjárrækt stórbýla tók við af smá- búskap fjöldans. Efnalegar forsendur þessara hreinsana voru breyting á eignarrétti lands. Meginhluti Hálandanna hafði öldum saman verið skilgreindur sem almenningur sem öllum var heim- ilt að nýta. En smátt og smátt höfðu ættarhöfðingjarnir, með stuðningi valdhafa í Edinborg og London, skil- greint landið sem sitt eignarland. Þeir voru ekki lengur höfðingjar yfir fólki, eins og goðar þjóðveldisaldar, heldur eigendur að landi. Höfðingjarnir slógu eign sinni á heiðalönd og gerðu smábýli að hjáleigum. Þá fyrrum smábændur sem þeir gátu ekki nýtt sem vinnu- fólk flæmdu þeir burt. Á tiltölulega skömmum tíma eyddist byggð í Hálöndunum og sú skosk-keltneska menning sem þar hafi lifað öldum saman brotnaði og hvarf að mestu. Hún er í dag fyrst og fremst minning sem er seld ferða- mönnum sem eiga leið um Hálöndin og minning í ættum fólksins sem fluttist til Ameríku. Ástæða þess að ég rifja þetta nú upp er hversu mikið Hálandahreinsunin minnir á atburði síðustu áratuga á Íslandi. Hér hélst sjávarbyggð meðan haf- ið og miðin voru skilgreind sem al- menningur. Útgerðarmenn voru vissulega eignamenn, en þeir voru líka héraðshöfðingjar. Staða þeirra var bundin tilteknu þorpi og þeir höfðu húsbóndaskyldu gagnvart fólkinu sem þar bjó. Þrátt fyrir mikla misskiptingu á auðnum héld- ust þorpin saman á gagnkvæmri ábyrgð. Það voru takmörk fyrir hvað útgerðarmaðurinn gat tekið án þess að gefa neitt í staðinn. Með kvótakerfinu var miðunum breytt úr almenningi í einkaeign. Það var girt fyrir nýliðun. Sá sem ekki vildi vinna fyrir stóra útgerðar- manninn gat ekki lengur róið sjálfur til fiskjar á litlum báti. Með heimild til framsals kvótans varð þessi einkaeign síðan að lausafé, ótengt tilteknum stað. Það var hægt að veðsetja kvótann og fjárfesta fyrir lánið í banka í Reykjavík eða útgerð í Chile. Það var líka hægt að selja kvót- ann, yfirgefa þorpið og eyða auðæf- um sínum allt annars staðar. Þegar framseljanlegur kvóti rauf tengsl útgerðarmannsins við þorp- ið hvarf húsbóndaskylda hans gagn- vart fólkinu. Hann var ekki lengur fremstur meðal jafningja heldur var hann bara fremstur. Og átti enga jafningja nema aðra útgerðarmenn og aðra auðmenn. Hann var ekki lengur höfðingi yfir fólki heldur fyrst og fremst höfðingi yfir sínum eigin auði. Samfélagslegar forsendur þorpsins brustu með kvótakerfinu, alveg eins og samfélag smábænda í Hálöndum Skotlands brast þegar heiðalöndin voru skilgreind sem einkaeign fárra. Kvótakerfið breytti íslenska útgerðar- manninum úr ættarhöfðingja í stór- eignamann. Skyldur hans gagnvart fólkinu í þorpinu áttu sér ekki sam- félagslegar forsendur lengur. Á síðustu áratugum hafa þessir umbreyttu útgerðarmenn – Pétur Þríhross 2.0 – lagt nokkur sjávar- þorp svo til í eyði. Í fyrra hjuggu þeir lífsafkomuna undan hundruðum fjölskyldna á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi. Í sumar voru það íbúar Þorlákshafnar sem fengu að kenna á kvótakerfinu. Samhliða eyðingarafli kvótakerfisins gagnvart sjávarbyggðum hefur frá Hruni orðið augljóst hvað ógnargróði örfárra stærstu útgerðarfyrirtækj- anna hefur á samfélagið sem heild. Lágt gengi krónunnar, lágt olíuverð og viðvarandi láglaunastefna veld- ur því að arðurinn af sjávarútvegs- fyrirtækjum er þrefaldur á við fyr- irtæki í öðrum greinum. Það gefur eigendum þessara fyrirtækja algjöra sérstöðu í samfélaginu, sem þeir nýta til að kaupa upp fyrirtæki í óskyld- um rekstri. Ef ekkert verður að gert munu þessi fámenni hópur eignast Ísland. Og á næstu árum og áratugum mun íslenska sjávarbyggðahreinsunin að öllu óbreyttu halda áfram. Við erum aðeins komin þrjá áratugi inn í þenn- an kafla Íslandssögunnar. Miðað við stefnu núverandi stjórnvalda er ætl- un þeirra að þessi kafli vari marga áratugi enn. Það er því ekkert sem bendir til að þessari þróun verði snúið við. Það verður að segjast eins og er að stefna stjórnarandstöðuflokkanna í sjávarútvegsmálum er hálf volg. Þrátt fyrir augljósa skaðsemisgalla kvótakerfisins er engin virk and- staða gegn því á sviði stjórnmálanna. Þegar Samfylkingin og Vinstri græn voru í ríkisstjórn og höfðu tækifæri til kerfisbreytinga strönduðu þær á sundurlyndi innan flokkanna. Eins undarlegt og það hljóm- ar töldu landsbyggðarþingmenn þessara flokka, sem eiga rætur í verkalýðsbaráttu láglaunastéttanna, mikilvægara að þjóna hagsmunum fárra útgerðarmanna en fólksins í sjávarbyggðunum sem hafa mest allra þurft að blæða fyrir kvótakerfið. Gunnar Smári KVÓTAKERFIÐ EYÐIR LANDI Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir KVÖLD OG MORGUNNÁM Í BOÐI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.