Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 05.08.2016, Síða 38

Fréttatíminn - 05.08.2016, Síða 38
38 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 5. ágúst 2016 Talinn ósigrandi Það er ótrúlegt að fylgjast með fimleikamanninum Kohei Uchi- mura. Hann er gjarnan borinn saman við vélmenni í hreyfingum sínum, hann klikkar aldrei. Á síð- ustu ólympíuleikunum tók hann eitt gull og fjögur silfur, einnig situr hann á 10 heimsmeistaratitl- um. Hann keppir í ýmsum grein- um; bogahesti, slá, gólfi, tvíslá og hringjum. Hvenær: Allir viðburðir Uchimura fara fram 6. ágúst Mögulega sögulega stórir viðburðir ólympíuleikanna Ólympíuleikarnir í Ríó hefjast í dag. Fyrir meðaljóninn getur reynst erfitt að grisja það áhugaverðasta úr leikunum en þeir standa yfir í 16 daga. Fréttatíminn tók saman lykilviðburði þar sem líkur eru á að brotið verði blað í sögunni. Ólympíuleikarnir í Ríó 306 viðburðir 28 íþróttagreinar 11.239 þátttakendur 207 þjóðir 8 íslenskir keppendur Krakkarnir okkar 6. ágúst Anton Sveinn Mckee – 100 metra bringusund 7. ágúst Irina Sazonova – fimleikar Eygló Ósk Gústafsdóttir – 100 metra bringusund Hrafnhildur Lúthersdóttir – 100 metra bringusund 9. ágúst Anton Sveinn Mckee – 200 metra bringusund 10. ágúst Hrafnhildur Lúthersdóttir – 200 metra bringusund 11. ágúst Eygló Ósk Gústafsdóttir – 200 metra bringusund 12. ágúst Guðni Valur Guðnason – kringlukast Þormóður Árni Jónsson – júdó +100 kíló 16. ágúst Ásdís Hjálmsdóttir – spjótkast 17. ágúst Aníta Hinriksdóttir – 800 metra hlaup Usain Bolt gegn Justin Gatlin Sprettharðasti maður í heimi, Usain Bolt, er talinn sjöunda undur ver- aldar. Hann var fyrstur þátttakanda til þess að taka gullið, á ólympíuleik- unum 2008, í bæði 100 og 200 metra spretti ásamt því að hreppa gullið í 4x100 metra boðhlaupi ásamt liðinu sínu. Á ólympíuleikunum 2012 endurtók hann leikinn og fór með sigur af hólmi í öllum þremur grein- um og tók svokallaðan „double triple“ sigur. Heimsbyggðin stendur á öndinni því Bolt reynir nú við „triple triple“, að verja titilinn í þremur greinum þrenna ólympíuleika í röð, eitthvað sem engum hefur tekist áður. Helsta fyrirstaða Bolt er ameríski kappinn Justin Gatlin í 100 metra spretthlaupi. Á heimsleikunum í fyrra sigraði Bolt Gatlin naumlega, en aðeins munaði einum hundraðasta úr sekúndu. Gaitlin náði besta tím- anum í prufukeppninni fyrir leikana. Því verða öll augu á þeim þann 13. ágúst. Hvenær: 13. ágúst Fimleikadrottning sem allir elska að sjá Pressan er mikil á hinni ungu Simone Biles. Hún kemur fram á sínum fyrstu ólympíuleikum í ár en hún skaust upp stjörnuhimininn á skömm- um tíma þegar hún tók US national titlinn árið 2013 og aðeins tveimur mánuðum síðar tryggði hún sér heimsmeistaratitilinn og hefur varið síð- an, fyrst kvenna. Það þykir mikil skemmtun að fylgjast með Biles en hún er full eldmóðs. Hennar helsti andstæðingur, Gabby Douglas, tók gullið fyrir fjórum árum og er staðföst í þeirri trú að verja titilinn. Hvenær: Allir viðburðir Biles fara fram 7. ágúst Ætlar sér þrjá sigra Shelly- Ann Fraser-Pryce frá Jamaíka gæti orðið fyrst hlaupara til að verja titilinn sinn þrenna ólympíuleika í röð í 100 metra spretthlaupi. Það er hins vegar Elaine Thompson sem á besta tíma ársins og því spennandi að fylgjast með. Hvenær: 12. ágúst Lausar við hroka Tekjuhæstu íþróttamenn heims eiga það til að sleppa ólympíuleikunum; LeBron James, Stephen Curry og Rory Mcllroy. Þeir hafa einfaldlega efni á því. Williams systurnar láta sig þó ekki vanta, þrátt fyrir að leikarnir hafi ekki áhrif á stöðu í styrkleikalista atvinnumanna. Þær stefna á gullið saman í tvíliðaleik en mæta verðugum andstæðingum frá Sviss, þeim Martina Hingis og Belinga Bencic. Serena ætlar að verja titilinn sinn í einstaklingskeppni en hún er núverandi ólympíumeistari. Hvenær: Báðir leikir fara fram 6. ágúst, nánari tímasetning ræðst síðar. Enginn á roð í undrabarnið Nitján ára Katie Ledecky frá Banda- ríkjunum varð ólympíumeistari í 800 metra skriðsundi aðeins 15 ára. Síðan hefur hún sett 11 heimsmet og unnið sigur í öllum alþjóðlegum keppnum sem hún hefur tekið þátt í. Hún stefn- ir á gullið í 200, 400 og 800 metra skriðsundi. Hvenær: 400 metrar: 7. ágúst 200 metrar: 8. ágúst 800 metrar: 11 ágúst GLÆSILEGAR BORGIR Í A-EVRÓPU Í BEINU FLUGI Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki. BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. GDANSK Í PÓLLANDI Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina að vinsælustu ferðamannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. RIGA Í LETTLANDI Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku frá maí til október. VERÐ FRÁ 87.900.- WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.