Fréttatíminn - 20.08.2016, Qupperneq 2
Stjórnmál Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson þarf
að endurnýja umboð sitt hjá
framsóknarmönnum í Norð-
austurkjördæmi og hugsan-
lega einnig sem formaður á
flokksþingi ef blásið verður
til þess. Staða hans í kjör-
dæminu er veik, segir oddviti
Framsóknarflokksins á Ak-
ureyri. Fundaði með fram-
sóknarmönnum á Húsavík á
fimmtudaginn.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Kjördæmisráð Framsóknarflokks-
ins í Norðausturkjördæmi mun í
dag, laugardag, ákveða hvernig val-
ið verður á lista flokksins í komandi
þingkosningum. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður flokksins,
var efsti maður á lista hans í kjör-
dæminu fyrir síðustu kosningar og
lýsti því yfir fyrir skömmu að hann
vilji vera það áfram í næstu kosning-
um.
Oddviti Framsóknarflokksins á
Akureyri, Guðmundur Baldvin Guð-
mundsson, segir að hann eigi ekki
von á því að kjördæmisráðið breyti
því hvernig valið verði á listann á
fundi ráðsins í Mývatnssveit. „Ég
reikna með að menn haldi sig við
sama kerfi á áður: Tvöfalt kjördæm-
isþing. Þetta verður bara ákveðið á
laugardaginn og svo verður næsta
kjördæmisþing haldið sem fyrst.“
Þar verður svo kosið um sæti manna
á lista flokksins.
Um stöðu Sigmundar Davíðs
í kjördæminu segir Guðmundur
Baldvin að skiptar skoðanir séu á
henni. Sigmundur Davíð sagði af
sér sem forsætisráðherra fyrr á ár-
inu í kjölfar opinberana í Panama-
-skjölunum um að hann hefði átt
félag í skattaskjólinu Tortólu. „Ég
hef haft sagt að við þurfum að kjósa
okkur nýja forystu í flokknum. Mér
heyrist vera vilji hjá flestum
sem ég tala við um að það
þurfi að boða flokksþing þar
sem flokksforystan þarf að
endurnýja umboð sitt. […]
Stærri spurning er því eig-
inlega hvort framsóknar-
menn vilji að hann stýri
flokknum á landsvísu.“
Sigmundur Davíð reynir nú að
tryggja stöðu sína í kjördæminu
með fundahöldum með fram-
sóknarmönnum. Á fimmtu-
daginn fundaði hann til dæm-
is með framsóknarmönnum í
Kiwanishúsinu á Húsavík.
Hagsmunir hans snúast
bæði um að hann verði
efstur á lista flokksins í
kjördæminu auk þess
sem flokksþing kæmi
sér illa fyrir hann.
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 20. ágúst 2016
Sigmundur reynir að tryggja stöðu sína
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson er í erfiðri
stöðu í kjördæmi sínu
á Norðausturlandi þar
sem pólitískt bakland
hans er lítið eftir erf-
iðleika hans síðustu
mánuði.
Minjastofnun fær 600
milljóna kröfu frá lögfræðingi
Minjavernd Steinarnir úr
gamla Hafnargarðinum eru
í Örfirisey en það kostaði
600 millljónir að koma
þeim þangað. Framhaldið
getur kostað skattgreiðend-
ur milljarða ef svo fer fram
sem horfir. Að öðrum kosti
er líklegt að steinarnir verði
áfram í geymslu.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Minjastofnun ríkisins hefur feng-
ið senda kröfu upp á 600 milljónir
króna vegna gamla hafnargarðsins
frá 1928, sem var við Austurbakka,
sem fyrrverandi forsætisráðherra
hafði frumkvæði að í fyrra að láta
færa, stein fyrir stein, meðan fram-
kvæmt yrði á lóðinni.
Málf lutningsstofa Reykjavíkur
sendir Minjastofnun kröfuna fyr-
ir hönd Reykjavík Development.
Krafan er tvíþætt. Farið er fram á
að greiddur verði útlagður kostn-
aður eigenda lóðar á Austurhafnar-
reitnum við Tollhúsið við að færa
hafnargarðinn stein fyrir stein,
merkja og setja í geymslu. Þá er
gert ráð fyrir að bættar verði taf-
ir á framkvæmdum vegna málsins.
Kostnaðurinn er um 600 milljón-
ir, samkvæmt erindi lögmannsins
sem nú er á borði Minjastofnunar.
Auk þess er farið fram á viðræður
um kostnað við að koma steinun-
um fyrir aftur þannig að þeir geti
verið til sýnis fyrir almenning, eins
og ráðgert var.
Bjarki Þór Sveinsson, lögmaður
hjá Málflutningsstofu Reykjavíkur
segir að, þar sé verið að tala um
stórar upphæðir. Sá kostnaður geti
hlaupið á milljörðum.
Ann ar hafn argarður inn er frá
því fyr ir alda mót in 1900 og er því
sjálf rafa friðaður en hinn, sem
er frá 1928, var skyndifriðaður í
fyrra. Steinarnir eru nú í geymslu
úti í Örfirisey en gert var ráð fyrir
því að þeir yrðu til sýnis í bíla kjall-
ara bygg ing anna sem til stend ur að
reisa á svæðinu. Óljóst er hinsvegar
hvað verður um málið ef kostnað-
urinn getur hlaupið á milljörðum.
„Það var alltaf ljóst að reikningur-
inn fyrir þetta myndi lenda í vasa
skattgreiðenda,“ segir Bjarki Þór.
Kristín Huld Sigurðardóttir, for-
stjóri Minjastofnunar, vildi ekki tjá
sig um málið á þessu stigi.
Hafnargarðarnir
voru tveir, annar
frá því fyrir
aldamót og hinn
frá 1928.
Það var alltaf ljóst
að reikningurinn fyr-
ir þetta myndi lenda
í vasa skattgreið-
enda, segir Bjarki
Þór Sveinsson,
lögmaður verktak-
anna.
Framkvæmdaaðili beri kostnaðinn
Í lögum um menningarminjar frá 2012 kemur fram í 28. grein að
framkvæmdaraðili greiði kostnað við þær rannsóknir á fornleifum
sem Minjastofnun Íslands ákveður að séu nauðsynlegar vegna fyr-
irhugaðra framkvæmda. „Við allar umfangsmiklar framkvæmd-
ir skal sá sem fyrir þeim stendur bera kostnað af nauðsynlegum
rannsóknum og vettvangsskráningu fornleifa.“
Ljóst er að deilt verður um hvort þessi lagagrein nær yfir þetta
tiltekna mál.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
styrkja engin stjórnmálasamtök
og það samrýmist ekki stefnu
þeirra að gera
það. Þetta
segir Karen
Kjartans-
dóttir, upp-
lýsingafull-
trúi SF.
Heims-
sýn, hreyfing
sjálfstæðissinna
í Evrópumálum, fékk áður fjár-
styrk frá útgerðarmönnum, sam-
kvæmt heimildum Fréttatímans,
en eftir að nýir stjórnendur tóku
við árið 2013 var þeim gerð grein
fyrir því að ekki þætti við hæfi að
samtökin styrktu pólitísk samtök.
Karen Kjartansdóttir staðfestir að
ein önnur stjórnmálasamtök hafi
beðið um fjárstuðning, nefnilega
Píratar, en það var beiðni um
lítið fjárframlag vegna alþjóða-
hátíðar sem var synjað á sömu
forsendum. Samkvæmt heimild-
um Fréttatímans fékk Heimssýn
einnig fjárstuðning frá Bænda-
samtökunum um hríð, en þar var
hreyfingin einnig með skrifstofu-
aðstöðu um nokkurra mánaða
skeið, áður en skrifstofan var flutt
í núverandi húsnæði við Ármúla.
| þká
Stjórnmál
Heimssýn og
Pírötum neitað
um fjárstuðning
Heimssýn fékk fjárstyrki frá út-
gerðinni fram til 2013
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
Nr. 12799
Skoðið útsöluna á
www.grillbudin.is
GrillbúðinÁ R A
ÚTSALA
gasgrill 4ra brennara
• 4 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• Gaumljós í tökkum
• Hitamælir í loki
• Postulínsemaleruð efri grind
• Grillflötur: 70,5 x 49,5
• Grillið er afgreitt 95% samsett
• Afl 18,7 KW
129.900
FULLT VERÐ 189.900
Peningar Tíu stærstu inn-
lánseigendur í hverjum
banka eiga um 1 prósent af
innstæðum. Um 66 prósent
af innlánum einstaklinga
eru lægri en 16,5 milljónir.
Aðeins fjórir einstaklingar
eiga innstæður í bönkum
sem eru meira en milljarður
og 200 eiga meira en hund-
rað milljónir.
Í lok júní 2016 voru heildarinnlán
í innlánsstofnunum rúmlega 1.720
milljarðar króna þar af um 1.710
milljarðar króna í viðskiptabönk-
um. Um 40 prósent fjárins eru í
eigu einstaklinga.
Þetta kemur fram í greiningu
Seðlabankans á mögulegu útflæði
við losun fjármagnshafta. Fram
kemur að þjóðarbúið þoli töluvert
fjármagnsútflæði enda sé gjald-
eyrisforðinn stór, útlit fyrir áfram-
haldandi innstreymi gjaldeyris á
komandi árum og lausafjárstaða
viðskiptabankanna sterk. | þká
Fjórir eiga meira en
milljarð á bankareikningi
200 eiga hundrað milljónir en 4 meira en milljarð.