Fréttatíminn - 16.09.2016, Qupperneq 52
Haustið kom með ágæt-is hvelli í vikunni og landsmenn fengu rækilega áminningu um það sem koma
skal: kaldara veður og rok og fyrr
en varir veturinn í öllu sínu veldi.
Haustinu fylgja ýmsir kvillar,
kvef og pestir og það er vissara
að brynja sig eins og hægt er gegn
þessum gestum. Inflúensan er
ekki komin en í næsta mánuði
verður þó byrjað að bjóða upp á
flensusprautur. Fram að því og
reyndar í allan vetur er gott að
hafa eftirfarandi ráð bak við eyrað.
Verðu þig gegn sýklum
Það er góður vani að þvo sér
vel og vandlega um hendurn-
ar reglulega og sérstaklega áður en
borðað er. Kvef- og flensubakteríur
geta lifað í nokkrar klukkustundir
og handþvotturinn er mikilvæg-
ur. Réttast er að skipta reglulega
út handklæðum. Skynsamt fólk
forðast líka handþurrkur á al-
menningssalernum enda eru þær
gróðrastía fyrir bakteríur.
Borðaðu hollan
mat reglulega
Borðaðu reglulega og hollt.
Ruslmatur og það að sleppa úr
máltíðum dregur úr mótstöðu lík-
amans og býður heim hættunni að
fá kvefsjúkdóma.
Skolaðu munninn
upp úr saltvatni
Gamalt og gott húsráð sem
virkar bæði til að forðast smit en
líka þegar fólk er orðið lasið. Með
því að skola munninn nokkrum
sinnum á dag upp úr volgu salt-
vatni eyðirðu bakteríum úr munn-
inum. Svo er líka hægt að kaupa
sér nefsprey úti í apóteki.
Drekktu te með hunangi
Heitir drykkir örva
meltinguna og mýkja
hálsinn og lina þar með
þjáningar vegna kvefs. Fáðu þér
heitt te og settu vel af hunangi út
í. Það hjálpar furðu mikið enda
vinnur hunang gegn bakteríum og
minnkar líkur á flensusmiti. Ekki
skemmir fyrir að hafa sítrónusneið
með til að fá smá C-vítamín.
Fáðu þér súpu
Góð vetrarsúpa getur gert
kraftaverk. Lykilatriðið er
auðvitað að vera ekki spar
á krydd, hvítlauk og chili til að losa
um stíflaðan öndunarveg og gefa
líkamanum smá stuð. Það fer eftir
smekk og stemningu hverju sinni
hvort malla eigi kjúklingasúpu eða
grænmetissúpu en ef hún er nógu
sterk getur hún losað um stíflur í
nefi og ennis- og kinnholum.
1
2
3 4 5
Haustflensa Margir hafa
nælt sér í haustflensu
og kvef að undanförnu.
Myndir | NordicPhotos/Getty
5 góð ráð við
haustkvefinu
Ekki gera ekki neitt, stendur einhvers staðar
og það á vel við í baráttunni við haustkvefið
og pestir sem nú fara að gera vart við sig.
Atjú Leikskólar og skólar eru alþekktar
miðstöðvar ýmissa pesta.
Fann stressið minnka, náði djúpslökun
og vaknaði endurnærð
Náttúruleg lausn við svefnvandamálum, kvíða og þunglyndi
Unnið í samstarfi við Balsam
Áttu erfitt með svefn, vaknar þú oft ósofin/n eða er streitan og kvíð-inn að ná tökum á þér?
Magnolia frá Natural Health
Labs er tilvalið fyrir þá sem
glíma við svefnvandamál,
streitu, kvíða eða
depruð. Magnolia
stuðlar að heil-
brigðum samfelldum
svefni ásamt því að vinna
gegn streitu, kvíða
og depurð og bætir
andlega og líkamlega
líðan.
Náttúruleg lausn við
svefnvandamálum,
kvíða og þunglyndi
Börkur af plöntunni Magnolia
sem vex í fjallahéruðum Kína
hefur verið notaður við svefn-
vandamálum, kvíða og þunglyndi
í meira en 2000 ár í Asíu. Rekja
má ótrúlegan lækningamátt hans
til náttúrulega efnanna honoki-
ol og magnolol. Börkurinn virkjar
taugaboðefni í heilanum sem hafa
slakandi og róandi áhrif og stuðla
að heilbrigðum og samfelldum
svefni. Börkurinn vinnur einnig
gríðarlega vel gegn stressi, kvíða
og þunglyndi með því að koma
jafnvægi á hormónið cortisol
sem er stundum kallað stress
hormónið. Nýleg rannsókn frá
Landlæknisembættinu sýnir að
um þriðjungur Íslendinga á við
svefnvandamál eða þunglyndi að
stríða. Natural Health Labs eru
hrein náttúruleg bætiefni sem
innihalda hvorki rotvarnarefni né
fylliefni og eru án allra aukaefna.
Magnolia kemur í grænmetis-
hylkjum og telst því vegan.
„Vaknaði
endurnærð“
„Ég vinn í tarna-
vinnu, sérstaklega
kringum jól og páska,
og þá er lítið sofið og
mikið unnið. Svo byrj-
aði ég að taka inn
Magnolia, vinkona
mín mælti með því að ég prófaði.
Strax fyrstu nóttina sofnaði ég
dýpra, fann stressið minnka og
náði djúpslökun – og vaknaði
endurnærð,“ segir Kristín Þor-
geirsdóttir ljósmyndari, Krissý.
„Ég tek Magnoliu til að sofa betur
og til að minnka stress og kvíða
yfir daginn. Ég tek það inn yfir
daginn ef það það er mikil pressa
í vinnunni. Ég mæli með Magnoliu
fyrir alla sem eiga erfitt með að
sofna eða sofa mjög laust, líka ef
það er álag og stress eða kvíði.
Ef ég þarf að vinna mikið þá finn
ég hvernig Magnolia dregur úr
þreytuverkjum í líkamanum
og hjálpar
mér að vera
róleg.
Ég elska líka að þetta er 100%
nátturulegt.“
hefur þegar notið mikilla vinsælda
og hjálpað fjölmörgum íslending-
um. Magnolia er fáanlegt í öll-
um apótekum landsins, Heilsu-
húsinu, Heilsuveri, Heilsutorgi
Blómavals, verslunum Hagkaupa,
Iceland Engihjalla, Fjarðarkaup-
um, Orkusetrinu, á Heimkaup.is
og Heilsulausn.is .
1-2 hylki með vatnsglasi
kvölds og eða morgna.
Mælt er með 1-2 hylki að morgni
við kvíða og depurð.
Við svefnvandamálum er mælt
með 1-2 hylki með kvöldmat
eða um 30-60 mínútum fyrir
svefn.
Magnolia Ráðlögð notkun:
…heilsa 8 | amk… FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2016
Kristín Þorgeirsdóttir
ljósmyndari