Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 16.09.2016, Side 54

Fréttatíminn - 16.09.2016, Side 54
Frábærir áfangastaðir WOW air í vetur Það er fátt betra en að bregða undir sig betri fætinum og skella sér í borgarferð yfir vetrartímann. Áfangastaðir WOW eru fjöl-margir og bjóða upp á allt sem hugurinn girnist. Barcelona Barcelona er ein mest spennandi borg Evrópu í dag, iðandi af lífi. Það er yndislegt að sitja á kaffi- húsi við Römbluna með sangríu í annarri og tapas í hinni en Ramblan er ein þekktasta breið- gata Spánar. Efst á Römblunni er hinn frægi aldagamli gosbrunnur, La Rambla de Canaletes. Út frá Römblunni hlykkjast göngugötur í allar áttir þar sem finna má litlar búðir, bari, veitingahús og fleira spennandi. Amsterdam Amsterdam er einna þekktust fyr- ir ótal síki sem eru samanlagt eitt hundrað kílómetrar og yfir þau liggja um 1.500 brýr. Það er alger skylda að leigja sér hjól og fara túr með kanal-bátunum þegar maður er í Amsterdam, þannig kynn- ist maður borginni best og getur notið þess að horfa á fallegan arkitektúr og upplifa dásamlega stemninguna. Í Hollandi eru mörg sögufræg söfn, þeirra á meðal eru Rijksmuseum, Kröller-Müller og van Gogh safnið. Í Rembrandt House er svo hægt að sjá hvernig Rembrandt bjó og starfaði. Bristol Bristol er næststærsta borg Suð- ur-Englands á eftir London með um hálfa milljón íbúa. Borgin er mikil mennta- og menningarborg með mikla sögu sem nær aftur til járnaldar. Bristol er líka nútíma- borg þar sem horft er til fram- tíðar og fyrr á þessu ári hlaut borgin nafnbótina „Græn borg“ (e. European Green Capital), fyrst breskra borga. Hinum megin við Bristol-sund- ið liggur fallega Suður-Wales og við mælum með dagsferð þangað. Bristol er jafnframt frábær áfanga- staður langi þig að berja Sto- nehenge augum en þessar for- sögulegu og dularfullu minjar eru staðsettar í Wiltshire-sýslu, um 80 km suðaustur af Bristol. Við mælum einnig með heim- sókn á skipasafnið Great Britain; „Skipið sem breytti heiminum.“ Þetta fyrrum farþegaskip, hann- að af Brunel, sigldi milli Bristol og New York og var um tíma lengsta skip sinnar tegundar (1845 – 1854). Skipið er nú safn og hægt að kíkja um borð og kynna sér sögu þess. Edinborg Edinborg er einstaklega glæsileg borg sem státar af sögufrægum byggingum, stórfenglegu lands- lagi og fjölskrúðugri menningu. Það er því ekki að undra að yfir þrjár milljónir ferðamenn heim- sæki Edinborg árlega til að heyra unaðslegan hljóm sekkjapípunnar, bragða á þjóðarréttnum „haggis“ og dreypa á skoska viskíinu. Það er alltaf gaman að rölta um gamla bæinn í Edinborg (Old Town) og þræða þröng steinilögð stræti, dularfull stigagöng, kíkja á leynigarða og gamla kirkjugarða og skoða gotneska byggingarlist. Edinborg lumar á mörgum leyndarmálum og borgin býr yfir einhverri óútskýranlegri dulúð. Það er gott að versla í Edinborg og á aðalverslunargötunni Princes Street er að finna allar helstu tískuverslanirnar og meira til. Fyrir þá sem vilja eitthvað aðeins öðru- vísi þá mælum við með að kíkja í Grassmarket og Victoria Street. Svo er aldrei langt á næsta pöbb. Á Rose Street í miðbænum eru til dæmis meira en 50 pöbbar og barir, og Rose Street-pöbbaröltið er alræmt. New York New York er suðupottur ólíkra menningarheima. Borgarbragurinn er líflegur og það er alltaf gam- an að rölta um og láta borgina koma sér á óvart, borða mat frá öllum heimshornum og skála í eins og einum kokteil á einhverjum af fjölmörgum börum borgarinnar. New York er auk þess ein af helstu tískuborgum heims og að sjálf- sögðu er þar mikið úrval verslana. Empire State-byggingin, eitt helsta kennileiti borgarinnar og ein frægasta bygging í heimi, er ómiss- andi viðkomustaður. Við mælum með að fara upp á skoðunarpallinn á 86. hæð að kvöldi til og virða fyrir sér stórfengleg borgarljósin. Söfn New York borgar eru einstök. Kíktu á Museum of Modern Art (aðgangur er ókeypis eftir kl. 16 á föstudögum) eða eyddu deginum á American Museum of Natural History. Gott að vita: Það er frítt í ferjuna milli Manhattan og Staten Island og gaman að sjá Manhattan og Frelsisstyttuna frá öðru sjónarhorni. Það eru fjölmargir kostir við það að ferðast utan háannatíma. Helsti kosturinn er án efa færri túristar - þú ert vissulega túristi en kannski bara aðeins minni túristi því þú stendur ekki sveitt/ur í röð fyrir framan Eiffelturninn um miðjan júlí með milljón öðrum í sömu erindagjörðum. Einnig er eitt og annað sem ber að varast þegar ferðast er á þessum tíma. ○ Athugaðu að taka með í reikninginn ýmis veður ef þú ert ekki að fara langt suður á bóginn. Taktu þykka peysu, hlýja úlpu og góða skó. Það er bara ekki töff að vera kalt. ○ Mun ódýrara er að gista á hótelum utan háannatíma. Þá er hægt að leyfa sér mögulega aðeins betri gistingu sem og meira miðsvæðis þar sem gistingin er yfirleitt mun dýrari. Athugaðu að jól og páskar eru ekki utan háannatíma - verði á hótelum og flugi er kýlt upp úr öllu valdi á þessum tíma. ○ Að fara til landa þar sem fjölmenning og fjölmenni ríkir er ekkert mál. En að fara til einsleitari svæða og minni bæja og borga getur þýtt að þjónusta sé af skornum skammti á hátíðisdögum og því þarf að gera viðeigandi ráðstafanir. Eitt sinn var til dæmis ómögulegt að koma til Íslands um jólin enda öllu skellt í lás á Þorláksmessu fram yfir áramót - svona svo gott sem - en í dag eru hótel og veitingastaðir um allt land með opið upp á gátt alla hátíðisdagana. ○ Almenningssamgöngur verða þægilegri utan háannatíma. Það finnst engum gaman að fá blautan handakrika eða sveittan rass beint í andlitið en þetta tvennt fylgir því óneitanlega að nota almenningssamgöngur í stórborgum yfir hásumarið. Þessi vandamál eru töluvert umfangsminni utan hefbundins ferðamannatíma þar sem meira pláss er fyrir hvern og einn og fólk almennt aðeins minna sveitt. ○ Markaðir og hátíðir yfir hásumarið eiga það til að vera ekkert meira en túristagildrur. Á vorin og haustin eru slíkir markaðir meira stílaðir inn á heimafólk og það sækir slíka markaði frekar sem þýðir að boðið er upp á ósviknari vöru. ○ Það getur verið mun skemmti- legra að fara í alls konar skipulagð- ar ferðir þegar ekki er allt kjaftfullt af (öðrum) túristum. Þú hefur meiri tíma með leiðsögufólki og getur farið dýpra í viðfangsefnið. Yfir- leitt eru skipulagðar skoðanaferðir farnar mun sjaldnar utan hefð- bundins ferðamannatíma, fylgist vel með á internetinu sem oftast gefur fantafínar upplýsingar. ○ Það er fleira heimafólk á ferðinni utan háannatímans. Það er mikill kostur því þá geturðu elt það út um allar trissur til þess að sjá hvar lókallinn hangir, borðar og verslar. Færri sveittir handakrikar og fleira heimafólk Oft er betra að ferðast utan háannatíma GLÆSILEGAR BORGIR Í A-EVRÓPU Í BEINU FLUGI Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki. BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. GDANSK Í PÓLLANDI Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina að vinsælustu ferðamannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. RIGA Í LETTLANDI Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku frá maí til október. VERÐ FRÁ 87.900.- WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 …ferðir 10 | amk… FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2016 Boqueria markaðurinn Það þarf enginn að vera svangur í Barcelona. Litafegurð Bátsferð niður síkin í Amsterdam er dásamleg upplifun. Græn borg Bristol er borg yfirgripsmikillar og merkilegrar sögu og er einnig mikil mennta- og menningarborg. Jól í Edinborg Það er einstaklega gott að versla í Edinborg og fyrir jólin ljómar borgin. Borgin sem aldrei sefur Suðupottur ólíkra menningaheima, ótrúlegt úrval verslana, einstök söfn og frábært matur.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.