Fréttatíminn - 15.10.2016, Side 6
Hluthafar leigufélagsins Heimavalla:
Nafn %
Eigendur
Stálskip ehf. 49,20
Ágúst Sigurðsson, Guðrún Lárusdóttir og
börn þeirra
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 28,60
Stærstu hluthafar: SVN eignafélag ehf
(Síldarvinnslan hf.), Gildi lífeyrissjóður,
Snæból ehf. (Steinunn Jónsdóttir og Finnur
Reyr Stefánsson)
Túnfljót ehf. 17,10
Iðusteinar ehf. (Magnús Pálmi Örnólfsson)
Heimavellir GP ehf. 15,60
Sio ehf. (Iðusteinar ehf., Magnús Pálmi
Örnólfsson;Stálskip ehf., Guðrún Lár-
usdóttir og fleiri; Orbis Invest ehf., Magnús
Magnússon), Landeigendafélagið ehf. (Ekki
tekið fram hjá RSK) og Gunnlaugsson ehf.
(Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir og Þórður
Már Jóhannesson)
Eignarhaldsfélagið VGJ ehf. 12,40
Eiríkir Vignisson/Sigríður Eiríksdóttir
G og K ehf. 11,20
Karri ehf ( Lúðvík Smári Kristinsson/Erling-
ur Kristinn Guðmundsson) og Gunnlaugs-
son ehf. (Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir
og Þórður Már Jóhannesson)
Fjallatindar ehf 8,80
Magnús Gunnarsson/Gunnhildur Gunnars-
dóttir
Unit fjárfestingar ehf 8,20
Gylfi Einarsson/Helga Lind Björgvinsdóttir
Volcanic FX Fund slhf 5,50
Volcanic Capital ehf. (Eignarhald óljóst)
1929 Capital ehf. 5,30
Ekki gefið upp hjá RSK
EV-17 ehf. 5,30
Stefán Arnalds
Gunnlaugsson ehf. 5
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir
Holt og hæðir ehf 4,80
Halldór Jóhannsson
Landás ehf 4,80
Stefán Jökull Sveinsson/Sjöfn Sigurgísl-
asdóttir
Fagriskógur ehf. 3,80
Stefán Hrafnkelsson/Anna Ólafía Sigurðar-
dóttir
Vaðlaborgir ehf. 3,10
Kristján V. Vilhelmsson/Leó Árnason
Laugavegur ehf. 3,10
Jónas Rafn Tómassson
Kverkin eignarhaldsfélag ehf. 2,90
Sigurþór Stefánsson
Karri ehf. 2,80
Lúðvík Smári Kristinsson/Erlingur Kristinn
Guðmundsson
Klambratún ehf. 1,90
Ólafur Andri Ragnarsson
Efniviður ehf. 1,80
Magnús Einarsson
Forni sf. 1,70
Kemur ekki fram hjá RSK
Fasteignafélagið Sel ehf. 1,40
Steinþór Bjarni Kristjánsson/Martha Sigríð-
ur Örnólfsdottir
G. Bergsson ehf. 1,20
Guðni Bergsson/Elín Konráðsdóttir
Ósea fjárfestingar ehf 1,10
Ómar Svavarsson/Sigríð Eik Árnadóttir
Bæjarbraut ehf 0,60
Ólöf Jóna Haraldsdóttir/Jónína Halla
Víglundsdóttir/Haraldur Ingólfsson
Óðinn fasteignafélag ehf. 0,50
Magnús Einarsson og VB Bakki (Þórunn
Guðmundsdóttir
Neytendur Útgerðarfélögin
Stálskip og Síldarvinnslan
eru tveir stærstu hluthafar
leigufélagsins Heimavalla
sem hefur keypt upp 1200
íbúðir. Stálskip seldi útgerð
og kvóta fyrir um 10 millj-
arða árið 2014. Fyrrver-
andi fótaboltamenn einnig
áberandi í hluthafahópi
Heimavalla. Mikill skortur
á íbúðarhúsnæði fyrir
almenning á höfuðborgar-
svæðinu og byggja þarf 5500
íbúðir á næstu árum.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Útgerðarfélögin Stálskip og Síldar-
vinnslan í Neskaupsstað, sem er
að stóru leyti í eigu Samherja, eru
meðal stærstu hluthafa í leigufé-
laginu Heimavalla sem hefur keypt
rúmlega 1200 íbúðir á Íslandi á
síðustu árum. Fyrirtækið hefur
meðal annars keypt íbúðirnar af
ríkisstofnunni Íbúðalánasjóði. Á
föstudaginn sendi fyrirtækið frá
sér fréttatilkynningu þar sem það
sagði frá uppkaupum á 300 íbúðum
til viðbótar við þær 900 sem það
átti fyrir.
Stálskip er langstærsti hluthafinn
en útgerðarfélagið gerði út frá
Hafnarfirði þar til árið 2014 þegar
það seldi togara sinn Þór og kvóta
með fyrir um tíu milljarða króna
árið 2014. Útgerðin á rúm 50 pró-
sent í leigufélaginu, það heldur
sjálft á rúmlega 49 prósent hlutafjár
og svo einnig hlut í félaginu Heima-
vellir GP ehf. Síldarvinnslan, sem
Samherji á stóran hlut í, á svo fyrir-
tækið SVN eignafélag sem er stærsti
einstaki hluthafi Sjóvár með tæp
13 prósent. Annar stærsti hluthafi
Samherja, Kristján Vilhelmsson, á
svo lítinn hlut í fyrirtækinu í gegn-
um annað félag.
Meðal annarra þekktra hluthafa
fyrirtækisins eru Magnús Pálmi
Örnólfsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri hjá Glitni, sem var
einn af lykilvitnunum í Stím-mál-
inu svokallaða, fótaboltamennirnir
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir og
Þórður Már Jóhannsson, fyrrver-
andi forstjóri fjárfestingarbankans
Straums. Tveir aðrir fyrrverandi
fótboltamenn eiga svo einnig hlut
í fyrirtækinu, þeir Guðni Bergsson
og Gylfi Einarsson.
Athygli vekur að hluthafahópur-
inn er að hluta til sá sami og fjár-
festi í greiðslumiðlunarfyrirtækinu
Borgun í umdeildum viðskiptum
við Landsbankann árið 2014. Meðal
sömu hluthafa eru Stálskip, Magnús
Pálmi Örnólfsson, Magnús Magnús-
son og Halldór Jóhannsson.
Fjárfestar eins og Heimavellir, og
fyrirtækið GAMMA, eru einungis
tveir af þeim stóru fjárfestum sem
keypt hafa upp íbúðahúsnæði á höf-
uðborgarsvæðinu og annars staðar
á Íslandi á liðnum árum með það
fyrir augum að leigja það út til al-
mennings. Mikill skortur er á íbúð-
um á höfuðborgarsvæðinu og sagði
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri á
upplýsingafundi í ráðhúsi Reykja-
víkur á föstudaginn að byggja þyrfti
5500 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu
til að mæta þörfinni. Eftir því sem
þörfin eykst fyrir íbúðir á höfuð-
borgarsvæðinu, þeim mun hærra
leiguverð er hægt að fá fyrir þær
íbúðir sem fyrir eru.
Félagið tapaði hins vegar rúm-
um 20 milljónum á fyrst rekstrar-
ári sínu þegar það var með rúm-
lega 500 milljóna leigutekjur og átti
eignir upp á rúmlega 10 milljarða.
Félagið hefur hins vegar keypt að
minnsta kosti 600 íbúðir það sem af
er þessu ári. Sú þróun að stórir fjár-
festar eigi íbúðarhúsnæði almenn-
ings á Íslandi virðist því vera aug-
ljósari með hverju árinu sem líður.
Hjónin Guðrún Lárusdóttir og Ágúst Sigurðsson seldu útgerðina Stálskip árið
2014, meðal annars kvóta á 8 milljarða króna, og eiga nú rúm 50 prósent í leigufé-
lagi sem keypt hefur upp 1200 íbúðir sem leigðar eru til almennings.
Útgerðarfélög stærst í 1200
íbúða leigurisa sem stækkar ört
Stjórnmál Össur Skarphéð-
insson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, greiddi atkvæði
með bráðabirgðarákvæði
um að frestun réttaráhrifa
Útlendingastofnunar, en
samflokksmaður hans
greiddi atkvæði á fyrri stig-
um frumvarpsins fyrir mis-
tök á meðan sá þriðji missti
stjórn á sér á Twitter og
kallaði þjóðþekktan einstak-
ling öllum illum nöfnum í
tengslum við umræðuna.
Össur var eini þingmaður stjórnar-
andstöðunnar sem greiddi frum-
varpinu atkvæði sitt, en það gerði
hann ekki í fyrri umræðum.
Varaþingmaðurinn, Margrét
Gauja Magnúsdóttir, greiddi aftur
á móti atkvæði með frumvarpinu
í annarri umræðu, en hún segir í
samtali við Fréttatímann að það
hafi hún gert fyrir mistök.
„Ég ætlaði að sitja hjá,“ sagði hún
undrandi þegar blaðamaður hafði
samband við hana. Atkvæði stend-
ur engu að síður.
Frumvarpið hefur raunar hleypt
illu blóði í Samfylkingarmenn.
Ritari Samfylkingarinnar, Óskar
Steinn Jónínu- og Ómarsson, þurfti
að biðja Egil Einarssonar, einka-
þjálfara og fjölmiðlamann, afsökun-
ar eftir að hafa misst stjórn á sér og
kallað hann illum nöfnum á Twitter
sem Vísir greindi frá.
Óskar vakti athygli á umræðunni
um frumvarpið á meðan Unnur Brá
Konráðsdóttir gaf barni sínu brjóst,
en hún var einn af flutningsmönn-
um frumvarpsins ásamt Sjálfstæð-
is- og Framsóknarmönnum í Alls-
herjar- og menntamálanefnd. Egill
gagnrýndi þá Óskar sem
brást hinn versti við
gagnrýninni og sagði
honum að „fokka
sér“ og þaðan af
verra.
Fréttatíminn hafði
samband við Óskar
Stein og spurði út í
afstöðu þingmanna
flokksins.
Óskar sagði Össur
þurfa að svara fyrir
sitt atkvæði, en sjálfur
teldi hann að það ætti
að auðvelda fólki að sækja hér um
almennt dvalarleyfi.
„Við erum að sjá fram á
gríðarlega þörf á erlendu
vinnuafli á komandi árum og
þá er galið að loka landinu
svona fyrir fólki sem vill búa
hér.“ | vg
Einn ruglaðist á tökkum, annar greiddi
atkvæði og sá þriðji missti stjórn á sér
Össur Skarphéðinsson
greiddi atkvæði að
lokum með frumvarpi
um að fresta ekki réttar-
áhrifum.
Fréttatíminn kemur þrisvar í viku
Frá og með fimmtudeginum 20.
október mun Fréttatíminn koma út
þrisvar í viku, á fimmtudegi, föstu-
degi og laugardegi. Þetta er í annað
sinn á árinu sem Morgundagur, út-
gáfufélag Fréttatímans, fjölgar út-
gáfudögum en útgáfa laugardags-
blaðs hófst 7. maí síðastliðinn.
Mikill meðbyr hefur verið með
Fréttatímanum það sem af er ári.
Efnistök blaðamanna hafa vak-
ið mikla athygli og auglýsendur
hafa brugðist mjög vel við auknu
framboði á auglýsingaplássi. Auk
þess hefur vefsvæðinu frettatim-
inn.is vaxið fiskur um hrygg á ár-
inu. Virkni lesenda á vefnum hefur
fimmfaldast frá áramótum og þús-
undir Íslendinga deila efni Frétta-
tímans á samfélagsmiðlum.
Frá fjölmennum kynningarfundi Íslensku þjóðfylkingarinnar síðasta vor.
Sakar liðhlaupa um
skemmdarverk
Stjórnmál Íslenska þjóðfylk-
ingin mun aðeins bjóða fram
í þremur kjördæmum, að því
gefnu að aðrir listar verði
ekki úrskurðaðir ógildir. For-
maður sakar brotthlaupna
oddvita um skemmdarverk.
„Þetta eru bara skemmdarverk,“
segir Helgi Helgason, formaður Ís-
lensku þjóðfylkingarinnar, en hann
sakar Gunnlaug Ingvarsson og
Gústaf Níelsson og tvo aðra flokks-
menn um að hafa haldið mikilvæg-
um gögnum eftir þannig að ekki
tókst að skila inn meðmælalistum í
Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.
Helgi staðfestir að ekki hafi heldur
tekist að skila inn meðmælalistum
í norðausturkjördæmi. Það þýðir að
flokkurinn mun aðeins bjóða fram í
þremur kjördæmum, en ekki öllum
eins og til stóð.
Gunnlaugur og Gústaf sögðu sig
úr flokknum í vikunni og sökuðu
Helga meðal annars um áhuga-
leysi gagnvart stefnu flokksins og
almennt stefnuleysi sem formaður.
Helgi fullyrðir að þeir hafi haldið aft-
ur kjörgögnunum sem hafi orðið til
þess að ekki tókst að skila inn næg-
um gögnum í Reykjavík.
Nú er farið yfir lista flokksins í
þremur kjördæmum, og verður úr-
skurðað um lögmæti þeirra í hádeg-
inu í dag, laugardaginn 15. október.
| vg
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016
Nú einnig á
Glerártorgi
Laugavegur - Kringlan - Glerártorg - kunigund.is