Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 15.10.2016, Qupperneq 30

Fréttatíminn - 15.10.2016, Qupperneq 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016 Mynd | Hari Draslskúffa Karolinu Flestir eiga eina skúffu sem allt drasl heimilisins lendir í. Allskonar gersemar geta leynst í henni. Karolina Boguslawska leyfði Frétta- tímanum að sjá hvað leynist í drasl- skúffunni hennar. „Ég er ekki með bara draslskúffu heldur er komin á næsta stig og er með draslkommóðu sem er antíkskrifborð með enda- lausum pínulitlum skúffum. Þar má finna alls konar hluti sem eru einsk- is virði en ég ber miklar tilfinn- ingar til. Þetta er minn persónulegi skápur þar sem ég geymi alls konar hluti sem ég hef sankað að mér og minnir mig á sjálfa mig í bernsku þegar ég var mikill safnari og safn- aði frímerkjum, steinum, skeljum og jurtum eða úrklippum úr blöð- um með myndum af ævintýralegum heimum. Svo var þessi kommóða reynd- ar sjálf notuð sem „props“ í atriði stuttrar listrænnar myndar sem vinkona mín var að gera. Hún stóð í vatni Gljúfrabúafosss og hefur verið hálf ónýt síðan. Ég tengi hins svo margar og góðar minningar við hana og get því ekki hent henni.“ | bg Alltaf gaman þegar stóru bíómyndirnar gerast á Íslandi. Komið er út nýtt frumsýningar- myndband fyrir næstu Star Wars- mynd, Rouge One: A Star Wars Story. Aðdáendur eru margir orðnir spenntir fyrir myndinni sem frum- sýnd verður 16. desember og þeirra á meðal er Örvar Hafþórsson. Hvað finnst þér um nýja Star Wars trailerinn? Það er mikið í gangi í hinni væntan- legu Star Wars: Rogue One. Hún ger- ist á undan atburðum Episode IV, og er því athyglisverð fyrir þær sakir að við vitum í raun hvernig hún endar. Alltaf gaman að sjá “litla” Ísland í stórum Hollywood bíómyndum en maður gleymir sér síðan í dularfullu drama og stríði, sprengingum og lát- um. Hluti myndarinnar var tekinn upp hér á landi. Ertu spenntur fyrir myndinni? Já. Stjörnustríðsheimurinn er risa- stór og maður fær á tilfinninguna að maður sé bara að sjá brotabrot af honum í hvert skipti sem ný mynd kemur út. Það verður gaman að fylgjast með glænýjum söguhetjum í reyndar dálítið kunnuglegum að- stæðum. Við hverju má búast í næstu mynd? Það hefur verið viðvarandi þema í mörgum Star Wars myndum hingað til að nokkrar persónur berjast gegn “myrkru hliðinni” á meðan Upp- reisnin er að hamast eitthvað í bak- grunninum. Í þessari mynd, hins vegar, munum við kynnast Upp- reisninni betur en nokkurntímann fyrr og fylgjast með henni takast á við Dauðastjörnuna, Heimsveldið og jafnvel sjálfan Svarthöfða. Hvað finnst þér um að aðalsögu hetjan í myndinni og þeirri síðustu sé kona? Frábært. Upprunalegu Star Wars myndirnar hafa fengið gagnrýni fyr- ir hve lítið er um kvenkyns söguhetj- ur og lestarslysið sem Episode I, II og III voru, gerði lítið til að jafna á vogarskálun- um. Seint er betra en aldrei og það er löngu tímabært að sjá konur í aðalhlutverk- um Stjörnustríðsmynda. Reyndar má nefna að á nýjasta plaggati Rogue One eru sex karlmenn (eða sjö ef karllega vélmennið K-2SO er talið með) en einungis ein kona. | bg Næsta Star Wars-mynd fjallar um upphaf Uppreisnarinnar Sigríður Fossberg Thorlacius 29 ára. Dögun. 1Já ég hef tekið námslán nokkrum sinnum. 2Reynsla mín er bæði góð og slæm. Ég hef ekki reynslu af því að taka námslán annarsstaðar svo ég hef ekki samanburð en mér gremst að það sé ekki boðið upp á styrkjakerfi hér eins og í ná- grannalöndum okkar til dæmis. 3Það má bæta margt í náms-lánakerfinu, t.d. að hækka þak á tekjum þar sem það er vinnuletjandi og ákveðin fátækt- argildra. Ég er þó fegin að hér er námslánakerfi yfir höfuð sem er með hagstæðari vexti en önnur framfærslulán hérna. Þó að ég sé ánægð með innleiðingu styrkja í námslánakerfið þá líst mér ekki á nýja námslánakerfið þar sem það gagnast síst þeim sem fara í langt nám og eru með lágar tekj- ur. Breytingar á námslánakerfinu eiga að miða að því að sem flestir geti sótt sér það nám sem þeir vilja sækja og því þarf að tryggja jafnan rétt til náms. Hvað segja ungu frambjóðendurnir? Kosningar til Alþingis fara fram í lok mánaðar en alls eru tólf flokkar í framboði. Finna má reynslubolta í röðum frambjóðenda en líka ný andlit. Fréttatíminn tekur púlsinn á ungu frambjóðendunum fram að kosningum og heyrir hvað þeir hafa að segja um málin. Í síðasta tölublaði ræddum við um húsnæðismál en nú snúum við okkur að námslánakerfinu og spjöllum við Viðreisn, Bjarta framtíð og Dögun. Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Spurningar: 1 Hefur þú tekið námslán? 2 Ef svo er, hver er reynsla þín af námslánakerfinu á Íslandi? 3 Hvað finnst þér um íslenska námslánakerfið? Starri ætlar að reyna að vera án náms- lána eins lengi og hann getur. Mynd | Hari Sigríður María Egilsdóttir 23 ára. Viðreisn. 1Já 2 Misgóð. Í fyrstu kom mér á óvart hversu strangar reglur um skerðingu láns með tilliti til tekna fólks voru. Það er ekki hvetj- andi að vera duglegur að vinna yfir sumarið ef það vofir yfir að námslánin verði skerð töluvert fyrir vikið. 3 Nýja LÍN-frumvarpið inni-heldur mörg góð skref í átt að sanngjarnara kerfi, en þó mætti margt betur fara sömuleiðis. Ég myndi vilja sjá upptöku styrkjakerfis, en einnig sjá afborganir áfram tekjutengdar, enda mikilvægt jöfnunartæki. Starri Reynisson 21 árs. Björt Framtíð. 1Nei, ég hef ekki tekið námslán og ætla að reyna ná eins langt og ég get án þess. 3Námslánakerfið á að sjá til þess að allir hafi jöfn tækifæri til náms óháð efnahag. Til þess þarf það að virka fyrir alla, sem það gerir ekki nógu vel í núverandi mynd. Breytingarnar sem fráfar- andi menntamálaráðherra leggur til yrðu til þess að kerfið myndi virka fyrir færri en það gerir í nú- verandi mynd en myndi virka bet- ur fyrir þá, og þá er kerfið ekki að sinna grunnhlutverki sínu. Afnema á tekjutengingu náms- lána svo fólk sem þarf að vinna með námi geti gert það án þess að það skerði greiðslurnar frá lánasjóðn- um. Það þarf að loka á tengingu bank- anna við LÍN. Námsmenn eiga ekki að þurfa að sækja um yfirdrátt hjá viðskiptabankanum sínum mánað- arlega þar til sýnt er fram á viðun- andi námsárangur í lok annar og skuldirnar færast yfir á lánasjóðinn. Við eigum líka að stefna að því að færa kerfið í auknum mæli í styrki fremur en lán svo fólk sé ekki að skuldsetja sig um aldur og ævi til að geta stundað það nám sem það vill. Sigríði Maríu finnst LÍN-frumvarpið innihalda mörg góð skref í átt að sann- gjarnara kerfi. Mynd | Hari Sigríði Fossberg gremst að ekki sé boðið upp á styrkja- kerfi. Mynd | Hari Í þessum skúffum finnast eftirfarandi: Blómaspil sem er jólagjöf frá Gúðrunu Evu Minervudóttur rithöfundi Hálsmen sem eru gerð af vin- konum mínum Karolinu Dariu og Unu Stigsdóttir sem eru ótru- lega hæfileikaríkar listakonur Slaufur og fullt af eyrnatöpp- um af því það eru svo mikil kappaksturslæti í Vesturbænum á nóttunni Túss til að mála frá vini sem er góður tússmálari Barrokk-engill úr gifsi Fallegt tómt glerbox Steinasafn í skartgripakassa Vaxkaka hunangsbýflugna sem var notuð í bíómynd sem ég var að vinna í 100 ára gamalt box fyrir prjónagarn með mynd af litlum prinsi, afmælisgjöf frá vinkonu, Katrínu Ólafsdóttur kvikmynda- gerðakonu Útrunnir grænlenskir smokkar sem vinkona frá Nuuk kom einu sinni með til mín 20 ára gamlar reimar frá Timberland Örvar og plaggatið fyrir Rogue One: A Star Wars Story. Mynd | Hari P ORTRET T AÐGANGUR ÓKEYPIS Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð, 101 Reykjavík · Opið 12–19 mán–fim, 12–18 fös, 13–17 um helgar · www.borgarsogusafn.is Handhafar Hasselblad-verðlaunanna 24. 9. 2016 –15.1. 2017

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.