Fréttatíminn - 15.10.2016, Page 46
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 20166 BÍLAR
Brynjar Valdimarsson „Það er ótrúlegt hvað maður fær mikið betra verð þegar sölumenn tala við sölumenn heldur en þegar kaupandinn reynir sjálfur að semja um verðið.“ Mynd | Rut
Betri kaup með
Betri bílakaupum
Bíllinn kemur tilbúinn til notkunar í hendurnar á kaupandanum
Unnið í samstarfi við Betri Bílakaup
Betri bílakaup sérhæfir sig í að aðstoða fólk við að kaupa bíla erlendis og flytja þá til Íslands. „Við
finnum bíla fyrir fólk og sjáum
um að semja um verðið. Við erum
með mjög vana og færa sölumenn
hjá okkur. „Það er ótrúlegt hvað
maður fær mikið betra verð þegar
sölumenn tala við sölumenn held-
ur en þegar kaupandinn reynir
sjálfur að semja um verðið,“ segir
Brynjar Valdimarsson, eigandi
Betri bílakaupa. Brynjar hefur átt
og rekið Snóker- og poolstofuna í
18 ár en hefur nýlega snúið sér að
bílaviðskiptunum og nýtir þannig
þá reynslu sem hann hefur öðlast
í samningum og rekstri gegnum
árin.
„Við gerum allt frá a til ö fyrir
viðskiptavininn. Allt fá því að
semja við erlendu bílasöluna,
panta flutninginn og síðan sjá-
um við um alla pappíra, skrán-
ingar á bílnum og tollafgreiðslu.
Við sækjum bílinn og förum með
hann í skoðun fyrir kaupandann,
sem fær síðan bílinn afhentan ný-
skoðaðan og tilbúinn til notkun-
ar,“ segir Brynjar. Sölumenn Betri
bílakaupa ganga úr skugga um
að bílinn standist þær kröfur sem
kaupandinn gerir og láta iðulega
söluaðilann ytra mynda smáatriði
bílsins til þess að það sé ekkert
sem komi á óvart í kaupunum.
Bílasölurnar sem Betri bílakaup
eiga viðskipti við eru traustar og
tryggar, að sögn Brynjars. „Þegar
við skiptum við tryggar bílasöl-
ur eru gæði bílanna góð, þetta
helst auðvitað í hendur. Við viljum
líka helst eiga viðskipti við sölur
sem eru með nýja bíla og eigum
aldrei viðskipti við einstaklinga.“
Þegar sölumenn Betri bílakaupa
hafa gengið frá samþykktu tilboði
borgar kaupandinn bílasölunni
og bíllinn fer í öruggar hendur
Eimskipa sem tryggja það að bíll-
inn komi heilu og höldnu til lands-
ins. Brynjar segir fólk ekki vera
skuldbundið til þess að kaupa
bíl þó það komi í bílaleit hjá Betri
bílakaupum. „Þetta fer þannig
fram að fólk kemur hérna til okk-
ar og segir okkur hvað það er
að hugsa og út frá því förum við
strax í að finna bíl á besta verðinu
og með bestu gæðin fyrir viðkom-
andi. Langflestir enda svo með
því að kaupa sér bíl.“
Bílarnir eru pantaðir bæði frá
Evrópu og Bandaríkjunum. „Það
er aðeins meiri pappírsvinna að
panta bíl frá Bandaríkjunum en
frá Evrópu en við erum komin í
ansi góðan farveg með það og
oftast eru bílar frá Bandaríkjun-
um töluvert ódýrari svo fólk fer í
auknum mæli þá leið,“ segir Brynj-
ar og nefnir í því samhengi Nissan
bíla sem eru á afar góðu verði í
Bandaríkjunum, til dæmis hinum
vinsælu Nissan Leaf rafmagnsbíl-
ar. „Nissan er með lægstu bilana-
tíðni allra bíla í heiminum svo þeir
eru afar vinsælir.“
Bílaleit kostar 24.900 með
VSK en þjónustan við að koma
bílnum heim kostar 149.000 án
VSK.