Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 15.10.2016, Page 55

Fréttatíminn - 15.10.2016, Page 55
Hver kannast ekki við að eiga langan akstur fyrir höndum milli lands­ hluta og börnin eru farin að spyrja „hvenær erum við komin“ áður en þið hafið komist að bæjarmörkum. Hér eru nokkrar pottþéttar leiðir til þess að hafa ofan af fyrir börnunum í löngum ökuferðum. - Hljóðbækur búa yfir þeim góða kosti að þær eru langar og börnin sofna jafnvel úr frá þeim sem styttir þeim leiðina mjög. - Sum börn eiga ipad sem þau gefa gleymt sér í, gallinn er að börnin geta orðið stíf í hálsinumvið að vera of mikið í ipad og ef þau eru í leikj- um gæti það ýtt undir ógleði. - DVD tæki í bíla sem er fest á höf- uðpúðann getur stytt mjög stundir. - Sum börn geta lesið í bíl án þess að finna fyrir ógleði og þá er gott að eiga lítinn lampa sem hægt er að smella á bókina. - Takið með litla teikni- eða krítar- töflu. - Litlar segultöflur eru líka skemmti- legar til að leika með stafi og fígúr- ur. - Bílabingó fæst víða á bensínstöðv- um en með því þurfa börnin að veita leiðinni athygli og fá þannig áhuga á umhverfi sínu. • Notaðu lítinn svampbursta til þess að ná á milli rifa í viftum í bílnum. Einnig geturðu notað pensil en ryksugaðu jafnóðum svo að rykið þyrlist ekki bara upp og setjist annars staðar í bílnum. • Farðu djúpt í alla vasa, hirslur og króka bílsins og sæktu allt rusl og drasl - það er ótrúlegt hvað getur leynst í myrkustu hornunum - sér í lagi ef börn eru í spilunum. • Töfrasvampur frá Blindravinnu- stofunni virkar ótrúlega vel á mælaborðið, sér í lagi ef það eru fastir blettir sem nást illa af með tusku. Töfrasvampurinn virkar vel á sparkför barnanna sem virðast stundum vera um allan bíl. Það virkar líka vel að nudda vel með tannbursta ef óhreinindin ligga þeim mun dýpra. • Ef það eru gæludýrahár sem virðast nánast hafa gróið föst við bílsætin er gott ráð að spreyja vel í sætin með sápu- blönduðu vatni og skafa svo fast með gluggasköfu. • Notaðu lítinn bursta til að ná kuski og mylsnu upp úr skilum og saumum á áklæði sæta bíls- ins. • Ef litir eða annar ófögnuður hefur bráðnað í sætin geturðu notað straujárn og dagblöð til þess að ná því úr. Leggðu blað- ið á blettinn og straujaðu hægt yfir. • Ef þú vilt forðast að nota mikið af sterkum efnum er gott ráð að blanda matarsóda og ediki við vatn og þrífa bílinn að innan með svampi og þessari blöndu. • Þrífðu gluggana að innan með dagblöðum og strjúktu yfir með hreinum þurrum klút. • Það borgar sig að vera með almennilegar mottur hér á norð- urhjara veraldar – annars kemur auðveldlega gat á þær, gólfið verður rennblautt þegar þú ferð að bera snjóinn inn í bíl og gólf- teppið fer að lykta illa. Þrífðu motturnar með því að skrúbba þær vel með uppþvottabursta og sápu. Leyfðu þeim að þorna áður en þú færir þær aftur inn í bíl. Gerðu bílinn skínandi hreinan að innan Erum við komin? - Farið í leiki eins og Hver er mað- urinn. - Syngið saman og notið tækifærið til þess að tala um það sem brennur á börnunum. - Börn sem hafa náð aldri og þroska geta skrásett leiðina og búið til ferðadagbók. - Búið til lítinn kassa sem er fullur af mismunandi dóti; bókum, spil- um, vasaljósi, litum, lítilli teikni- blokk, playmo-i eða hverju því sem barnið hefur gaman að. Þannig get- ur barnið gleymt sér í leik án þess að þurfa að gera það sama. - Verið tilbúin með nesti þegar svengdin sverfur að. Ávextir, salt- stangir, þurrkaðir ávextir, samlokur og niðurskorið grænmeti er tilvalið að hafa til taks. LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 201614 BÍLAR Netpartar er alþjóðlega vottað fyrirtæki. Netpartar er fyrsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi með ISO 14001 vottun og vottun Bílgreinasambandsins skv. BGS gæðastaðli . Þetta gerir fyrirtækinu kleift að vera leiðand í umhverfismálum og hjálpar okkur að gera enn betur. Netpartar er verslun með varahluti á netinu og er leiðandi í flokkun og endurvinnslu notaðra bifreiða. Netpartar ehf. | Byggðarhorn 38 | 801 Selfoss | Sími 486 4499 | netpartar@netpartar.is | netpartar.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.