Fréttatíminn - 21.10.2016, Blaðsíða 11
NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI
4BLS
PS4
STÝRIPIN
NI
FYLGIR
NÝKYNSLÓÐÖFLUGRI, ÞYNNRI OG LÉTTARI
Ný og endurhönnuð slim útgáfa af einni
vinsælustu leikjatölvu í heimi. Spotify,
Netflix, Youtube ofl. öpp, 500GB harður
diskur, HDR tækni, styður PS VR ofl. ofl. 49.990
PS4SLIM
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
PS4SL
IM
1TB
59.99
0
V I L T U N Æ R A
V A X A N D I V I N N U S T A Ð ?
R E K S T U R M Ö T U N E Y T I S
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
Isavia óskar eftir áhugasömum aðila til að sjá um rekstur mötuneytis fyrir
starfsfólk á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða tvö rými til útleigu undir
mötuneyti sem allir starfsmenn á Keflavíkurflugvelli hafa aðgang að.
Gerð er krafa um að ákveðin hæfisskilyrði verði uppfyllt, þar á meðal að
stjórnendur hafi reynslu af veitingarekstri sem nýtist við mötuneytisrekstur
og mannaforráði, auk þess sem aðilar hafi á að skipa starfsmanni sem lokið
hefur sveinsprófi í matreiðslu.
Áhugasamir geta óskað eftir frekari upplýsingum í gegnum tölvupóstfangið
vidskipti@isavia.is fyrir 31. október nk.
Í hröðum vexti er þörf á góðum og næringarríkum mat. Ánægt og orkumikið
starfsfólk er lykilatriði í velgengni fyrirtækja á einum stærsta vinnustað landsins
og undirstaða þess að vera hluti af góðu ferðalagi milljóna farþega ár hvert.
Um 6.000 starfsmenn starfa á Keflavíkurflugvelli og fer þeim fjölgandi.
U M S Ó K N A R F R E ST U R :
31. O KTÓBER 2016
16
-3
09
2
—
H
VÍ
TA
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
| 11FRÉTTATÍMINN |
Stór fiskútflytjandi í Eyjum
Theódór tengist svo öðru félagi í
Panamaskjölunum, Arctic Circle
Invest á Tortólu, sem hann stofn-
aði með nokkrum öðrum íslensk-
um fjárfestum árið 2007. Meðal
annarra íslenskra fjárfesta í því
félagi sem tengjast sjávarútvegi er
fiskútflutningsfyrirtækið Godthaab
á Nöf í Vestmannaeyjum og Árni
Stefán Björnsson sem rekið hefur
smábátaútgerðina Rakkanes.
Félagið var stofnað í gegnum
eignastýringu Landsbankans í Lúx-
emborg að sögn Theódórs og tap-
aði hann persónulega talsverðum
fjármunum á því. „Þetta var félag
sem var í eignastýringu í Lands-
bankanum í Lúxemborg. Við áttum
þetta nokkrir félagarnir. Það var í
einhverjum hlutabréfaviðskiptum.
Við ætluðum að sigra heiminn en
það gekki ekki eftir. Þetta fór lóð-
beint á hausinn í hruninu. Það var
maður í eignastýringunni í Lúxem-
borg sem sá um þetta fyrir okkur.“
Theodór segir að bankarnir hafi
verið duglegir að bjóða fólki upp á
eignastýringu á þessum árum. „Ég
var bara með venjulegan rekstur,
saltfiskverkun, og við unnum hörð-
um höndum og gekk ágætlega. Svo
var alltaf verið að bjóða manni
þessa eignastýringu af því hún átti
að mala gull en svo reyndist þetta
bara tómt kjaftæði.“
Kannast ekki við félagið
Í Panamaskjölunum er einnig að
finna útgerðarmenn með tengsl
við aflandsfélög. Áður hefur ver-
ið fjallað um félag í eigu Kristjáns
Vilhelmssonar, útgerðarmanns í
Samherja, sem heitir Hornblow
Continental Corp. Þá er bróð-
ir hans, Þorsteinn Vilhelmsson,
einnig í gögnunum vegna viðskipta
við félagið Cliffs Investments á
Tortólu. Stjórnarformaður Ísfélags
Vestmannaeyja, Gunnlaugur Sæv-
ar Gunnlaugsson, var einnig með
tvö fyrirtæki í skattskjóli, eins og
Fréttatíminn greindi frá fyrr á ár-
inu.
Í gögnunum er einnig að finna
nafn Jakobs Valgeirs Flosasonar
sem á útgerðarfyrirtækið Jakob
Valgeir í Bolungarvík. Jakob Val-
geir er í sextánda sæti yfir kvóta-
hæstu útgerðir landsins og skilaði
meðal annars rúmlega 830 milljóna
króna hagnaði í fyrra. Félagið sem
Jakob Valgeir er tengdur við heiti
Aragon Partners Inc. í Panama en
nafn hans kemur fram á lista frá
Mossack Fonseca yfir eigendur
aflandsfélaga og hefur ekki verið
greint frá því áður í fjölmiðlum.
Ég skil ekki hvernig ég á
að tengjast þessu. Ég veit
ekki hvernig stendur á
þessu.“
Jakob Valgeir Flosason í Bolungarvík