Fréttatíminn - 21.10.2016, Side 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 21. október 2016
Samkvæmt vitnisburði Sturlu Pálssonar, framkvæmdastjóra markaðsviðskipta og fjárstýr-ingar hjá Seðlabankanum,
var ákvörðun um 75 milljarða króna
lán til Kaupthings, fáeinum klukku-
stundum áður en bankinn féll, tek-
inn með eftirfarandi hætti: Davíð
Oddsson Seðlabankastjóri ræddi
málið við Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra í síma. Að því símtali loknu
hringdi Davíð í Hreiðar Má Sigurðs-
son, bankastjóra Kaupthings, og
tilkynnti honum að bankinn fengi
75 milljarða króna lán í erlendum
gjaldeyri. Þetta var allur gjaldeyr-
isvarasjóður Seðlabankans, síðustu
peningarnir á Íslandi sem hægt var
að nota í viðskiptum í útlöndum.
Restin var krónur sem enginn vildi
taka við.
Það sem er athugavert við þenn-
an söguþráð er að Davíð tók þessa
ákvörðun án þess að ræða við
nokkurn mann. Hann var þó aðeins
einn þriggja bankastjóra. Þótt Davíð
hafi verið titlaður aðal fólst ekki í því
að honum væri frjálst að lána allan
gjaldeyrissjóðinn fallandi banka vit-
andi að litlar líkur væru til þess að
hægt yrði að endurheimta lánið.
Davíð hegðaði sér þarna eins og
klíkubróðir Geirs H. Haarde. Og
veitti lánið eins og væri hann guð-
faðir klíkunnar. Ég á þetta, ég má
þetta. Davíð leit svo á að vald sitt
væri utan stjórnsýslulaga, utan
valdsviðs bankastjóra Seðlabankans,
svífandi langt yfir þeim reglum og
lögum sem aðrir þurfa að beygja sig
undir.
Það er ekkert eðlilegra en að menn
sem voru undir slíku álagi sem
var á Geir og Davíð dægrin í byrj-
un október 2008 geri mörg mistök
og stór. Þeir félagar þurftu að taka
ákvarðanir hratt og án þess að sjá
niðurstöðuna fyrir í andrúmslofti
þar sem staða mála var flestum hul-
in. Það verður hins vegar að gera þá
kröfu til manna að þeir haldi sig við
eðlilega ferla við ákvarðanatöku.
Þeir ferlar eiga enn frekar við þegar
staðan er snúin. Það er ekki svo, að
þegar staðan verður slæm að við yf-
irgefum þá góða ferla en treystum
í staðinn einvörðungu á brjóstvit
þeirra sem hafa mesta sjálfsálitið.
Það hefur þvælt umræðuna um
Hrunið og afleiðingar að þeir sem
brutu og sveigðu reglurnar krefjast
þess að allir viðurkenni að þeir hafi
gert allt rétt.
Í yfirheyrslunni yfir Sturlu kom fram
að hann taldi vonlaust að opna bank-
ana og kauphöllina hinn örlagaríka
mánudag 6. október. Það myndi
leiða til áhlaups þeirra sem þekktu
raunverulega stöðu fjármálafyrir-
tækja og þjóðarbúsins og vissu af yf-
irvofandi aðgerðum á bankana og út
úr krónunni.
Auðvitað er þetta rétt hjá Sturlu.
Það var glapræði að setja neyðarlög-
in ekki að kvöldi sunnudags, eins
og að hafði verið stefnt. Opnunin á
mánudeginum þjónaði aðeins þeim
sem vissu stöðuna og vildu bjarga
því sem bjargað varð – ekki fyrir
þjóðarbúið heldur sjálfa sig.
Ummæli Sturlu minna okkur á að
enn á eftir að rannsaka öll viðskipti
þennan mánudag. Hverjir gátu forð-
að verðmætum undan fyrirsjáanleg-
um og þegar ákveðnum aðgerðum
ríkisstjórnar og Seðlabanka?
Hrunið gengur aftur í umræðu um
samfélagsmál á Íslandi vegna þess
að það hefur ekki verið að fullu
rannsakað og atburðarásin ekki
komið fram í dagsljósið. Hverjir
voru það sem fluttu á annað þús-
und milljarða króna út úr krónu-
hagkerfinu misserin fyrir Hrun.
Hið gríðarlega útstreymi fjármagns
úr krónuhagkerfinu í skjóli inn-
streymis spákaupmanna í leit að
vaxtamunaviðskiptum var megin-
skýringin á gengishruni krónunnar
og kjaraskerðingu almennings eft-
ir Hrun. Þrátt fyrir fyrirsjáanlega
áhættu var þetta ástand látið óátalið
misserum saman, ástand sem varði
eignir hinna efnamestu en átti eft-
ir að höggva niður kaupmátt hinna
efnaminni.
Við fengum örlitla innsýn inn í
þessa fjárflutninga í Panamaskjölun-
um, hvaða fólk flúði krónuna og
hvert. En þetta fjárútstreymi var
svo umfangsmikið og örlagaríkt að
nauðsynlegt er að kanna það nánar
og ræða opinskátt.
Sama á við um viðskipti á mánu-
deginum 6. október og aðdraganda
ákvarðana sem þá voru teknar. Það
gengur aldrei að málsaðilar hafi
sjálfdæmi um hvaða upplýsingar
eru lagðar fram. Það virkaði engan
veginn í málsvörn Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar vegna Wintrismáls-
ins og það virkar heldur ekki varð-
andi ákvarðanir Davíðs Oddssonar
og Geirs H. Haarde í Hruninu miðju.
Gunnar Smári
MARGT AÐ
RANNSAKA
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
xA
…minna fúsk
Vilt þú almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni?
Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.
…minni okurvexti
Vilt þú hætta að borga húsnæðislánið þitt
margfalt til baka? Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.
…minni hrútskýringar
Vilt þú að Alþingi verði ekki sveittur karlaklúbbur?
Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.
…minni sóðaskap
Vilt þú að Íslendingar hætti að gefa skít í umhverfið?
Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.
…minni einsleitni
Vilt þú fjölbreytt samfélag og manneskjulegar
stofnanir? Þá skaltu kjósa Bjarta framtíð.
Óttarr Proppé
þingmaður
1. sæti
Suðvestur
Björt Ólafsdóttir
þingmaður
2. sæti
Suðvestur