Fréttatíminn - 21.10.2016, Síða 52
Hvað á nú að bjóða krakkagríslingunum upp á í barnaafmæl-unum þetta árið? Þetta er spurning sem
við spyrjum okkur öll að og engju-
mst yfir á einhverjum tímapunkti.
Hér eru hugmyndir sem hægt er
að blanda saman og nýta þegar
stóri dagur barnsins bankar upp
á. Við mælum með að þið klippið
greinina út.
Pítsa
Þægilegt að panta, ódýrara að
baka. Munið að börn í barnaaf-
mælum eru eins og svangir úlfar
svo það þarf að gera ráð fyrir ríf-
legu magni – ef þið ætlið að gera
foreldrum gestanna þann greiða
að sleppa því að gefa börnunum
kvöldmat. Skerið bara litlar sneið-
ar.
Kaka
Það þarf að vera kaka. Munið að
krakkar þurfa ekki mikið meira en
skúffuköku með smartís þannig
að ef tími gefst til er um að gera
að skella í eina slíka, það er ódýrt
og gott. Þau sem hafa gaman af
skreytingum geta gert dúllerískök-
ur sem eru líka skemmtilegar. Ef
tíminn eða bökunarhæfileikarnir
eru af skornum skammti er snilld
að kaupa einhverja krúttlega köku
af einhverju bakaríinu.
Rice Crispies eða
kornflexkökur
Lítil fyrirhöfn og hægt að fá mikið
fyrir lítið. Pottþétt uppskrift:
200 g dökkt súkkulaði eða ljóst
og dökkt til helminga
1 dl síróp
100 g smjör
200 g Rice Krispies
Byrjið á því að setja súkkulaði,
síróp og smjör saman í pott og
bræða saman við meðalhita. Bætið
Rice Krispies út í og blandið vel
saman þar til allt er vel samlagað.
Raðið formum á bakka og setjið
u.þ.b. teskeið af blöndunni í hver
form, meira ef formin eru stór. Það
er þó sniðugt að hafa einmitt lítil
form til þess að drýgja skammtinn.
Einnig má setja blönduna í stórt
form eða dreifa á bökunarpappír
og kæla, skera síðan í litla fern-
inga. Vissulega umhverfisvænna
en að nota formin.
3 msk. smjör
40 sykurpúðar
150 g Rice Krispies
Bræðið sykurpúða og smjör saman
í potti eða örbylgjuofni og bætið
Rice Krispies saman við. Setjið
síðan í muffinsform eða dreifið í
stórt form eða á bökunarpappír,
kælið og skerið svo í teninga. Hér
má leika sér með matarliti og gera
alls kyns liti eða nota kökuskraut
eða bræða súkkulaði og dreifa yfir.
Hugmyndaflugið er gott veganesti í
þessa uppskrift. Hægt er að lauma
smávegis hollustu ofan í börnin
með því að bæta fræjum og hnet-
um við.
Kökupinnar
Smá vesen og kannski ekki fyrir
stór afmæli. En gerir mikið fyrir
augað og bragðlaukana. Þetta er
í raun auðvelt í framkvæmd en
bara dálítil handavinna – bakið
eða kaupið kökubotn, myljið hann
niður og blandið kremi saman við.
Búið til kúlur úr deiginu og raðið
þeim á bökunarpappír og kælið.
Bræðið súkkulaði og dýfið pinn-
anum fyrst í áður en þið stingið í
kúluna til þess að pinninn festist.
Kælið aftur áður en þið hefjist
handa við að hjúpa og skreyta af
hjartans list.
Hvað á að gefa
börnunum að
borða?
Hugmyndir í barnaafmælið.
Smápítsur
Ef það eru fá börn
í afmælinu geta
þau jafnvel feng-
ið að gera eigin
pítsu, það finnst
þeim gaman og
drepur tímann.
Dansað við uppáhalds
prinsessuna
Hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar er hægt að halda barnaafmæli
þar sem krakkarnir læra nýja dansa við óskalögin og fá að hitta
uppáhalds Disney prinsessuna.
Unnið í samstarfi við
Listdansskóla Hafnarfjarðar
Í Listdansskóla Hafnarfjarðar býðst að halda barnaafmæli með danskennslu við óskalög með ákveðnu þema. Meðal
þess sem hægt er að velja um
er Justin Bieber, High School
Musical eða Michael Jackson og
sjóræningjaþema. Einna vinsæl-
ast er Disney prinsessu þema þar
sem kennarinn mætir sem ein af
Disney prinessunum, Anna, Elsa,
Öskubuska, Þyrnirós, Esmeralda,
Fríða, Skellibjalla, Mjallhvít, Álfa-
drottningin eða Pochahontas og
krakkarnir mæta jafnvel sjálfir í
búningum.
„Afmælisbarnið trúir stundum
varla sínum eigin augum þegar
uppáhaldsprinsessan kemur bros-
andi á móti því,“ segir Eva Rós
Guðmundsdóttir hjá Listdans-
skóla Hafnarfjarðar.
Photo-booth klefi er svo á
staðnum sem er að sjálfsögðu
með sama þema. Þar geta krakk-
arnir sett á sig allskonar fylgihluti
og tekið skemmtilegar myndir.
„Fyrir stelpurnar bjóðum við svo
upp á naglalökkun, eða það er
hægt að velja um að fara í skap-
andi leiki,“ segir Eva. Góð aðstaða
er til veisluhalda og í boði að
koma inn með veitingar eða panta
pítsur og kökur í gegnum skólann.
Heitur pottur er á staðnum og
hægt að enda afmælið í pottinum.
„Við erum með prógram í gangi
allan tímann á meðan krakkarn-
ir eru hjá okkur, og það er aldrei
dauð stund,“ segir Eva. Aðspurð
segir hún að þó kennarar séu með
krökkunum allan tímann er ekki í
boði að skilja börnin eftir í þeirra
umsjón og séu foreldrar því alltaf
á staðnum. Á heimasíðu skólans
má finna lista yfir þá afmælis-
pakka sem í boði eru og hvernig
hægt er að sníða þá eftir þörfum
hvers og eins. „Við tökum að sjálf-
sögðu við séróskum og leggjum
okkur fram við að bjóða ógleym-
anlega skemmtun,“ segir Eva.
…barnaafmæli kynningar 12 | amk… FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER
Dans afmæli Danskennarinn er kátur í búningi sem tengist þema afmælisins og kennir
krökkunum skemmtilega dansa.
Litríkar neglur Eftir að hafa lært að stíga nokkur ný dansspor
er í boði að fá naglalökkun með fallegum litum og mynstri.