Fréttatíminn - 04.11.2016, Qupperneq 1
Þegar hjónabandið brestur
Unnur Ösp og Björn Thors
eru hjón og leika hjón
Móður-
hlutverkið
snúnara en
söngurinn
Jóhanna Guð-
rún á tíma
mótum
amk fylgir Fréttatímanum
Viðskipti hluthafa íslensks
útgerðarfélags á Tortólu send
til rannsóknar hjá héraðssak-
sóknara. Seldu útgerð í Afríku
í gegnum fyrirtæki á Tortólu.
Kredikortareikningar
greiddir af aflandsfélögum.
Engin svör fást frá eigendum
útgerðarinnar.
Embætti skattrannsóknarstjóra hef-
ur kært viðskipti eigenda útgerðar-
innar Sjólaskipa í skattaskjólinu
Tortólu til héraðssaksóknara. Kær-
an var send fyrir nokkrum vikum.
Sjólaskip er útgerð í Hafnarfirði sem
Jón Guðmundsson stofnaði árið 1963.
Bryndís Kristjánsdóttir skattrann-
sóknarstjóri sagðist, aðspurð um
málið í samtali við Fréttatímann í
síðustu viku, ekki getað tjáð sig um
einstök mál eða hvaða einstaklinga
embættið hefur kært fyrir skattalaga-
brot. Eins og Fréttatíminn greindi þá
frá áttu eigendur Sjólaskipa fjögur fé-
lög á Tortólu sem meðal annars voru
notuð til að halda utan eignarhald á
útgerð þeirra í Afríku. Þessar upplýs-
ingar koma fram í Panamaskjölunum
svokölluðu, gögnum frá panamaísku
lögmannsstofunni Mossack Fonseca.
Eigendur Sjólaskipa, þau Harald-
ur Jónsson, Guðmundur Jónsson,
Berglind Jónsdóttir og Ragnheiður
Jónsdóttir, seldu útgerð sína í Afríku
til Samherja fyrir um 140 milljónir
evra, tólf milljarða króna, árið 2007.
Eignarhaldsfélög þeirra Berglindar
og Ragnheiðar á Tortólu voru not-
uð til að halda utan um hlutabréf-
in í útgerðinni. Tortólufélög þeirra
áttu hlutabréf í fyrirtækjum í Belís í
Mið-Ameríku sem áttu þrjú af skip-
um Afríkuútgerðarinnar. Skipin þrjú
voru seld fyrir 98 milljónir evra og
fengu fyrirtæki systranna á Tortólu
því söluhagnaðinn. Ekki liggur fyrir
hvert söluhagnaður bræðranna fór.
Bæði Guðmundur og Ragnheiður
hafa neitað að ræða um Tortólafé-
lög sín og viðskiptin með Afríkuút-
gerðina í samtölum við Fréttatímann
og blaðið hefur ekki náð í Berglindi
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Tortólufélögin voru líka notuð
til að greiða kredikortareikninga
meðlima Sjólafjölskyldunnar en
upplýsingar um þetta koma einnig
fram í Panamaskjölunum í tilfelli
Guðmundar Jónssonar og móður
systkinanna, Marinellu Haralds-
dóttur. Skattrannsóknarstjóri hef-
ur um árabil rannsakað slík mál
sem kunna að vera skattalagabrot
ef tekjur aflandsfélaganna voru ekki
rétt taldar fram. Fréttatíminn hefur
heimildir fyrir því að hluti kærunnar
snúi að kreditkortanotkun gegnum
skattaskjól.
Ólafur Hauksson héraðssakóknari
segir að hann geti ekki tjáð sig um
einstök mál þegar Fréttatíminn leitar
svara um kæruna hjá embættinu. Ná-
kvæm efnisatriði kærunnar liggja því
ekki fyrir eða að hverjum úr Sjólafjöl-
skyldunnni hún beinist. |ifv
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
72. tölublað
7. árgangur
Föstudagur 04.11.2016
Leið eins og sautján
ára á leið til sjós
Arnar Már Arngríms-
son varð Norður-
landameistari í
unglingabókum 2620
38
2
8
22Eigendur Sjólaskipa kærðir út
af viðskiptum í skattaskjólum
20%
AFSLÁTTUR AF
YFIRHÖFNUM
OG PEYSUM
2. HÆÐ - SMÁRALIND
KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur
Fisléttir, klárir og öugir
Forpöntun á
Mavic drónum.
iStore Kringlunni er
viðurkenndur sölu- og
dreifingaraðili DJI á Íslandi
DJI Mavic Pro
179.900 kr.
Saga Sigríðardóttir er ein þeirra sem vilja búa smátt
Gott að búa á
20 fermetrum
Sjómenn eiga að
fá hæstu launin
Kjararáð barna býr til
launastigann
Betrun
í helvíti
Saga Magdalene
þvottahúsanna
Offita barna útbreidd
í Breiðholti
Fátækt barna vaxandi vandi
Þetta viljum við!
Verkefnalisti verðandi
ríkisstjórnar12