Fréttatíminn - 04.11.2016, Side 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
Haukur Valdimarsson, annar eigandi heilsugæslustöðvarinnar í Salahverfi, sagði
við Fréttatímann fyrir skömmu að óljóst væri hvort eigendurnir myndu halda
áfram rekstri út af arðgreiðslubanninu. Hann og Böðvar Örn Sigurjónsson, sem
sjást hér saman á mynd, hafa tekið sér 244 milljóna arð frá hruninu 2008.
Svíar ætla að leyfa 7 prósenta arð en Ísland bannar hann
Stjórnmál Sænska ríkisstjórnin
mun banna hærri arðgreiðslur
en sjö prósent af hlutafé einka
rekinna heilbrigðisfyrirtækja
og skóla. Kristján Þór Júlíusson
bannaði arðgreiðslur úr einka
reknum heilsugæslustöðvum
alveg.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Sænska ríkisstjórnin mun að öll‑
um líkindum heimila einkarekn‑
um skólum og heilbrigðisfyrir‑
tækjum, sem fjármögnuð eru með
almannafé, að greiða út árlegan
arð sem nemur sjö prósent af hluta‑
fé fyrirtækjanna. Þetta mun koma
fram í tillögum frá sænska sósíal‑
‑demókratanum og fyrrverandi
borgarstjóra Malmö, Ilmar Repalu,
sem kynntar verðar þann 8. nóvem‑
ber, samkvæmt frétt sænska ríkis‑
útvarpsins.
Reepalu hefur unnið að því síð‑
astliðið eitt og hálft ár að finna út
hvernig eigi að setja reglur um há‑
mark arðgreiðslna úr einkareknum
velferðarfyrirtækjum eins og skól‑
um og heilbrigðisfyrirtækjum. Mikil
umræða hefur verið um málið og
tillögur Repaalus í Svíþjóð þar sem
svo mikið er af slíkum fyrirtækj‑
um í landinu. Með tillögunum vill
sænska ríkisstjórnin koma í veg fyr‑
ir að milljarðar sænskra króna verði
teknir út úr fyrirtækjunum sem arð‑
ur en sum þeirra, eins og til dæmis
Attendo, eru á endanum í eigu fyr‑
irtækja á lágskattasvæðum eins og
eyjunni Jersey á Ermarsundi.
Ísland hefur gengið lengra en Sví‑
þjóð að þessu leyti þar sem Kristján
Þór Júlíusson, fráfarandi heilbrigðis‑
ráðherra, innleiddi arðgreiðslubann
út úr einkareknum heilsæugæslu‑
stöðvum á höfuðborgarsvæð‑
inu á síðasta kjörtímabili. Sjúkra‑
tryggingar Íslands munu í kjölfarið
ekki gera neina nýja samninga við
einkareknar heilsugæslustöðvar
sem ekki eru reiðubúnar að undir‑
gangast arðgreiðslubannið. Tiltölu‑
lega lítil umræða var um þessa að‑
gerð í íslensku samfélagi.
Heilbrigðismál Fötluð kona
gaf Barnaspítala Hringsins
rimlarúm í minningu sonar síns
sem lést af völdum veikinda á
spítalanum síðasta sumar. Hún
hefur ekki enn náð að safna
fyrir rúminu.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
„Sonur minn var langveikur. Hann
lést í sumar og í stað þess að þiggja
blóm og kransa þá bauð ég fólki að
gefa peninga inn á reikning sem færi
i gott málefni,“ segir Aðalheiður Dav‑
íðsdóttir, sem afhenti Barna spítala
hringsins fyrr í vikunni sjúkrarúm
með rimlum fyrir lítil börn, en hana
vantar hundrað þúsund krónur upp
á að fjármagna rúmið.
Sonur Aðalheiðar, Aron Hlyn‑
ur, lést á Barnaspítala Hringsins
í byrjun júlí. Fréttatíminn greindi
skömmu síðar frá því að Aðalheiður
átti ekki fyrir útför sonar síns.
Sonur Aðalheiðar var fatlaður, en
sjálf lenti hún í alvarlegu bílslysi á
unglingsárum og hefur mátt búa við
fötlun síðan.
Aðalheiður óskaði eftir útfarar‑
styrk hjá Kópavogsbæ en vegna
vandkvæða treysti bæjarfélagið sér
ekki til þess að styrkja móðurina til
þess að jarðsyngja barn sitt.
Áður en sonur Aðalheiðar lést
eyddu þau öllum stundum á Barna‑
spítalanum. Hún snéri þangað aftur
í fyrsta skiptið frá andláti sonar síns
á þriðjudaginn og afhenti rúmið sem
kom til landsins í byrjun mánaðar‑
ins.
Spurð hvernig það var að snúa aft‑
ur á spítalann svaraði Aðalheiður:
„Það voru blendnar tilfinningar, en
þó gleðilegt að geta gefið barnaspít‑
alanum gjöf til minningar um líf son‑
ar míns.“
Frétt Fréttatímans vakti mikla
athygli og náði fjölskyldan að safna
fyrir öllum útfararkostnaði.
Þá greindi Fréttatíminn einnig frá
því að Aðalheiður bjó þannig um
hnútana að sonur hennar var líf‑
færagjafi eftir andlát. Hjarta Arons
var gefið ungu barni auk þess sem
lifur, bris og nýru voru gefin.
„Ástæðan fyrir því að ég ákvað
að safna fyrir svona rimlarúmi er
að spítalinn á ekki slíkt rúm og það
hefði gagnast mér vel,“ segir hún.
Aðalheiður segir starfsfólk spítalans
hafa sagt sér að rúmið myndi nýtast
vel, en það hefur þegar verið tekið í
notkun, að sögn Aðalheiðar.
Hún er ekki búin að safna fyrir
öllum kostnaði, en hundrað þúsund
krónur vantar upp á. Rúmið kostaði
um 800 þúsund krónur.
Hafi lesendur áhuga á að styðja
við Aðalheiði má leggja inn á reikn-
ing hennar sem er, 537-14-407916.
Kennitalan er 261083-3969.
Safnar fyrir barnarúmi
í minningu sonar síns
Aðalheiður afhenti rúmið á þriðjudaginn. Guðrún Eygló Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Ólafur Thorarensen barnalæknir tóku við rúm
inu fyrir hönd barnaspítalans. Mynd | Landspitalinn.is
Viðskipti Verðbréfafyrirtækið mælir fyrir
einkavæðingu ríkisfyrirtækja á Íslandi í skýrslu
sem ætlað er að fá erlenda fjárfesta til Íslands.
Verðbréfafyrirtækið GAMMA, sem starfar á Íslandi
og erlendis, telur að það sé „lógískt“ næsta skref
að yfirvöld á Íslandi selji ríkisfyrirtæki sem mynda
innviðina í íslensku samfélagi, eins og til dæmis
hlutabréf í rafmagnsflutningsfyrirtækinu Landsneti.
Þetta kemur fram í skýrslu GAMMA um innviðafjár‑
festingar sem gerð var opinber í vikunni.
Í skýrslunni eru færð rök fyrir mikilvægi þess að
ríki og sveitarfélög dragi sig út úr rekstri innviða‑
fyrirtækja eins og Landsvirkjun og Orkuveitu Reykja‑
víkur og segir meðal annars: „Flest innviðafyrir‑
tæki á Íslandi eru í opinberri eigu, en með auknum
umræðum og með árangursríkri þátttöku einkaaðila
á öðrum sviðum, er sala hlutabréfa opinberra aðila
rökrétt næsta skref.“
Bent er á í skýrslunni að fjárfesta þurfi í innviðum
fyrir um 600 milljarða á næstu árum og að með‑
al annars þurfi að stækka Keflavíkurflugvöll. Til‑
valið væri að einkaaðilar kæmu að þeirri stækkun,
til dæmis. GAMMA segist hafa fundað með erlend‑
um fjárfestum sem vilji fjárfesta í ríkisfyrirtækjum
á Íslandi. | ifv
GAMMA segir „lógískt“ að selja
Orkuveituna og Landsvirkjun
Í skýrslunni eru færð rök fyrir mikilvægi
þess að ríki og sveitarfélög dragi sig út úr
rekstri innviðafyrirtækja eins og Lands
virkjun og Orkuveitu Reykjavíkur. Mynd | Hari
www.husgagnahollin.is
558 1100
Allir sófar á taxfree tilboði*
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum og
jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt
af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað
Húsgagnahallarinnar.
SÓFAR
TAXFREE
KIRUNA
Þriggja sæta sófi.
Dökkgrátt slitsterkt áklæði.
Stærð: 227 x 90 x 78 cm 80.637 kr. 99.990 kr.
Þú finnur nýja
bæklinginn á
hugsagnahollin.is
EASY
Nettur og skemmtilegur tungusófi. Tunga
getur verið bæði vinstra og hægra megin.
Dökk- eða ljósgrátt áklæði.
Stærð: 232 x 145 x 85 cm 145.153 kr. 179.990 kr.
DEVON
Horntungusvefnsófi. Geymsla undir tungu og í armi.
Stærð: 244 x 225 x 82 cm
217.734 kr.
269.990 kr.