Fréttatíminn - 04.11.2016, Page 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
Þetta viljum við að þið gerið!
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafði aðeins setið við völd í
eitt og hálft ár þegar Austurvöllur fylltist af mótmælendum sem
kröfðust aðgerða til varnar heimilunum. Ríkisstjórn Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar var aðeins níu mánaða gömul þegar
völlurinn fylltist af fólki sem mótmælti afturköllun aðildarum-
sóknar að Evrópusambandinu. Í vor logaði Austurvöllur síðan
á ný vegna spillingarmála ráðherranna. Fyrstu mótmæli gegn
komandi ríkisstjórn hafa verið boðuð á morgun, laugardag, gegn
ákvörðun kjararáðs um hækkun launa þingmanna og ráðherra.
Mynd | Hari
Síðustu ríkisstjórnir hafa
allar hrökklast undan vaxandi
kröfum almennings. Tvær
gáfust upp á miðju kjörtímabili
og sú þriðja lyppaðist niður.
Völdin hafa færst til í íslensku
samfélagi. Það dugar stjórn-
málaflokkunum ekki lengur að
mynda ríkisstjórn með þing-
meirihluta og knýja mál sín í
gegnum þingið. Hrunið færði
til völdin í samfélaginu. Hið
raunverulega vald liggur nú hjá
þjóðinni, sem veitir ríkisstjórn
vald sitt með skilyrðum. Ef
stjórnin nær að byggja sátt út
í samfélagið fær hún lifað. Ef
ekki mun henni verða steypt.
Þetta eru nýju leikreglurnar
á Íslandi. Fréttatíminn tapp-
aði af þjóðinni og spurði hver
yrði helstu verkefni komandi
stjórnar.
„Atvinnumál eru
aðkallandi. Upp-
boð á veiðiheim-
ildum ber hæst.
Núverandi kerfi er
óréttlátt, óhag-
kvæmt og leiðir
til rentusóknar af hálfu útgerðar-
manna sem skekkir alla þjóðfé-
lagsumræðu í landinu. Stokka þarf
upp landbúnaðarkerfið. Sumt tek-
ur tíma en annað má gera strax.
Til dæmis að heimila frjálsan inn-
flutning á hvítu kjöti. Taka þarf til
hendinni í ferðaþjónustu, hækka
virðisaukaskatt á gistingu í þrep-
um og fjárfesta í innviðum.“
Jón Steinsson, hagfræðiprófessor
„Nú þegar hafa
ýmis útgjaldalof-
orð fallið. Tímabil
góðæris mun hins
vegar taka enda
fyrr eða síðar, það
er því nauðsynlegt
að búa í haginn. Ég tel mikilvægt
að sátt skapist um forgangsröð-
un í ríkisrekstri og að sá tónn sem
verður sleginn varðandi efnahags-
stefnu stjórnvalda og gagnvart
vinnumarkaði verði ábyrgur.“
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumað-
ur efnahagssviðs Samtaka atvinnu-
lífsins
„Velferðarmál
eldri borgara eru
í lamasessi. Sam-
kvæmt kjaradómi
fá eldri borgarar
núna 50.000 kr.
niðurgreiðslu á
hvort eyra en bestu heyrnartæk-
in kosta hálfa milljón. Svo hafa
tannlækningar hafa verið í frosti
í meira en tíu ár. Biðtíminn eftir
hjúkrunarrýmum er líka rosalega
sársaukafullur fyrir fjölskyldur og
þann sem er aldraður og veikur.
Við viljum bara fá að halda reisn
alla ævi og að það sé borin sama
virðing fyrir okkur og öðrum í
samfélaginu.“
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður
félags eldri borgara
„Helstu verkefni
næstu ríkisstjórn-
ar eru að koma
heilbrigðis- og
velferðarmálum í
myndarlegt horf.
Gera þarf betur
við ellilífeyrisþega og öryrkja. Að
efna Parísarsáttmálann og sýna
gott fordæmi í loftslagsmálum.
Nauðsynlegt er að fá fram siðbót í
íslenskum stjórnmálum og byggja
upp traust almennings á Alþingi
og öðrum stofnunum ríkisins.“
Frosti Logason útvarpsmaður
„Nýja ríkisstjórnin
þarf að hafa dug
til að takast á við
vaxandi stétta-
skiptingu í sam-
félaginu, nokk-
uð sem á ekki að
þrífast í svo fámennu samfélagi í
landi, ríku af auðlindum jafnt sem
hugviti. Það hlýtur, bara hlýtur,
líka að vera hægt að setjast niður
og sníða mannúðlegra regluverk
fyrir Útlendingastofnun og hætta
að túlka Dyflinnarreglugerðina
eftir skáldlegri hentisemi.“
Auður Jónsdóttir rithöfundur
„Það þarf að
endurskoða nýju
útlendingalög-
in frá grunni því
þau setja íslenskt
samfélag fimmtíu
ár aftur í tím-
ann. Má þá helst nefna hugtakið
„útlendingur“ sem er skilgreint
þannig að það séu allir sem ekki
eru með íslenskan ríkisborgara-
rétt. 14. grein laganna segir að
útlendingi sé ávallt skylt að vera
með skilríki á sér, það á líka við
um fólk sem hefur búið hér í fjölda
ára. En sé útlendingurinn ekki
með skilríki má lögreglan, skv 110
gr. laganna, án dómsúrskurðar
gera húsleit hjá viðkomandi.“
Davor Purušic, lögfræðingur hjá
Rauða krossinum.