Fréttatíminn - 04.11.2016, Side 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
Menntaskólakennarinn Arnar
Már Arngrímsson gerði sér
lítið fyrir og hlaut barna- og
unglingabókaverðlaun Norður-
landaráðs fyrir sína fyrstu bók.
Hann segir mikla möguleika
í íslenskunni til að ná til unga
fólksins en mikilvægt sé að ýta
réttu bókunum að unga fólkinu
okkar.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
„Maður er að reyna að koma sér
aðeins niður á jörðina, svona rétt
fyrir næsta flug,“ segir Arnar Már
Arngrímsson staddur á Reykja-
víkurflugvelli. Hann er nýkominn
úr flugi frá Kaupmannahöfn og er á
leið heim, norður á Akureyri. Arnar
er menntaskólakennari, kennir ís-
lensku- og félagsgreinar við Mennta-
skólann á Akureyri. Og nú er hann
verðlaunahöfundur, með barna- og
unglingabókaverðlaun Norðurlanda-
ráðs í farangrinum.
Sú staðreynd kom flatt upp á hann
enda fékk hann verðlaunin afhent í
Kaupmannahöfn á þriðjudagskvöld
fyrir sína fyrstu bók. Geri aðrir bet-
ur. „Þetta var galið,“ segir Arnar
Már. „Eins og aðrir tilnefndir sat ég
eins og dæmdur maður úti í sal með
ræðu upp á vasann og var því bú-
inn að sjá þetta lauslega fyrir mér ef
ég þyrfti að fara upp á svið. Mér leið
dálítið eins og þegar ég var að fara á
sjó sautján ára gamall, en væri þegar
orðinn sjóveikur. Síðan fór þetta allt
vel, en kom auðvitað gríðarlega á
óvart.“
Hver er Sölvi?
Verðlaunabókin heitir Sölvasaga
unglings, en hver er Sölvi? „Sölvi er
15 ára og dálítið strand í kollinum á
sér. Hann er fastur í því sem nú er
að verða dálítið dæmigert þegar við
hugsum um unglingsstráka sem er
fíkn í tölvuleiki og að velta sér upp
úr klámi. Hann vantar mótvægi í líf-
inu, er til dæmis ekki íþróttastrákur
en hefur eitthvað fiktað við tónlist.
Sölvi er vinafár og einangrar sig sí-
fellt meira.
Einn merkimiðinn sem við notum
á stráka í dag er að þeir lesi ekki neitt
og það má segja að Sölvi gangist við
þeim merkimiða, þó að innst inni
sé hann maður orða og mjög áhuga-
samur um rímaðan skáldskap.
Hann leitar því á náðir orðanna,
skrifar niður rímur og rapptexta en
gengst ekki alveg við því.“ Í bókinni
verða breytingar á högum Sölva,
fjölskyldan er í fjárhagskröggum
og með hangandi haus, tættur og
þreyttur, fer hann austur á land
til ömmu sinnar. Þær breytingar
minnka ekki tilfinningasveiflurn-
ar í honum.
Strákarnir okkar
Arnar Már er að velta fyrir sér
reynslu stráka á unglingsaldri í
bókinni. „Mér finnst þetta bara
vera svo öskrandi eitthvað, þessi
veröld unglingsins sem einangrar
sig frá heiminum, situr of mikið
fyrir framan tölvuna og er í hættu
um að mála sig út í horn.“
Sjálfur er Arnar Már fæddur
árið 1972, í allt öðrum félagslegum
veruleika en nú er uppi í lífi ung-
lingsstráka, eins og við vitum öll.
„Ég var samt sjálfur dálítill ein-
angrunarsinni á sínum tíma, en var
líka dálítill lestrarhestur. Ég er á því
að maður finni styrk í góðum bók-
um og einhvers konar hugarró. Í dag
sé ég ekkert nema flótta í því þegar
þú lokar þig af til dæmis í ofbeldis-
fullum tölvuleik, eins og of margir
gera,“ segir menntaskólakennarinn
sem finnur greinilega fyrir þessum
flótta unglingsstráka í starfi sínu.
„Mér finnst strákar yfirleitt eiga erf-
iðara uppdráttar í dag en stelpur.
Þeir eru leiðari, neikvæðari og það
er erfiðara að ná til þeirra.“
Möguleikar íslenskunnar
Orðin eru mikilvæg og Arnar Már
segir að þetta mikilvægi sé rauður
þráður í bókinni um unglinginn
Sölva, sem nú hefur verið verð-
launuð í þessu ágæta norræna sam-
hengi. „Við erum oft að tala um að
allt sé á hverfanda hveli með íslensk-
una og notkun á henni drabbist nið-
ur, en ég er samt á því að það séu
í henni heilmikil tækifæri. Það er
svo margt hægt að gera með þetta
tungumál. Unglingar þurfa að verða
fyrir réttu textunum og þeim þarf
að koma til þeirra með jákvæðum
hætti.
Í þeim efnum þarf margt að bæta,
til dæmis hvernig við búum að
skólunum og reynum að vekja áhuga
ungs fólks á bókum. Það eru ekkert
allir sem leggjast í bækur en ég held
að þegar að líður á ævina finni flestir
sér eitthvað við hæfi. Að mínu mati
er skólakerfið bæði of nískt og var-
kárt þegar kemur að því að taka sér
tíma til þess að rétta krökkum bæk-
ur sem að gætu hentað þeim.“
Arnar Már er áhugasamur um
lestur ungmenna og er á því að
hann geti opnað þeim víðari sýn
á heiminn. „Það hefur sýnt sig að
það eru kannski eins og fjögur at-
riði sem virka vel: Það virkar greini-
lega að skáld og rithöfundar heim-
sæki skóla, það þarf að vera réttur
bókakostur á skólabókasöfnum sem
sitja allt of oft uppi með tuttugu ára
gamlar bækur, kennararnir þurfa
að vera áhugasamir um bækur og
lestur og lifa sig inn í þetta með nem-
endunum og loks skipta fyrirmyndir
máli. Strákar virðast vera tregir til
að viðurkenna að þeir lesi og verji
frítíma sínum í það.
Það sem vekur bjartsýni hjá mér
er hve hlutirnir geta breyst hratt á
Íslandi. Unglingar eru hrifnæmir.
Þetta sjáum við til dæmis á því að
danskir og íslenskir unglingar eru
farnir að sletta norsku út af sjón-
varpsþáttunum Skam. Þetta sýn-
ir að allt getur gerst. Einn daginn
verða kannski miðnæturopnanir í
bókabúðum út af einhverri flottri
umritun á Íslendingasögunum,“ seg-
ir Arnar Már Arngrímsson, lukku-
legur með barna- og unglingaverð-
laun Norðurlandaráðs og á leið í flug
heim á Akureyri.
Nýr Norðurlandameistari í barna- og unglingabókum, Arnar Már Arngrímsson, hefur í Sölvasögu unglings búið til „áhuga-
verða, fyndna, óþolandi, leitandi og heillandi persónu,“ eins og segir í dómnefndarálitinu.
Mynd | Rut
Hugarró í bókum
— flótti í tölvuleikjum
Á unglingsárunum geisa stundum
stormar í kollinum. Sölvi er engin
undantekning.
T ILBOÐ
OPNUNARTÍMI
Virka daga 11-18
laugardaga 11-16
1.500 kr.
Ármúla 44 - Sími: 517 2040 - facebook.com/skomarkadurinn
Mikið úrval
BARNASKÓR
Já, nú verðurgaman!
Kringlukráin
Kringlunni 4-12
103 Reykjavík
Sími 568 0878
kringlukrain@kringlukrain.is
www.kringlukrain.is
4. - 5.
NÓV.
SÉRBLAÐ UM
HREINGERNINGAR
þann 10. nóvember
Allt um jólaþrifin,
hvaða vörur er gott að nota
og góð þrif ráð.
Endilega hafið samband og tryggið ykkur pláss
gt@frettatiminn.is | 531 3310