Fréttatíminn - 04.11.2016, Blaðsíða 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
Saga notar Messenger
til að ná í mömmu sína,
kærasta og vini.
María segir
best að ná í
yfirmann sinn
á Facebook.
Hún sé virkust
þar. Mynd | Hari
Er heimasíminn
dauður?
Tímarnir breytast og mennirnir með. Ekki er
langt síðan við gátum bara notað heimasímann
til að ná í okkar nánustu. Í dag höfum við
hins vegar úr mörgu að velja og má nefna:
Farsímann, Facebook, Snapchat, Twitter,
tölvupóst og Tinder. Hvaða miðla notum
við til að ná í fólk og er það
misjafnt eftir því hvern við
erum að reyna að ná í?
Fréttatíminn ræddi við
Maríu Johnsen og Sögu
Garðars um málið.
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Það er ekki slæmt að hafa margar leiðir til að ná í fólk. Ef það væri bara ein leið, bara heimasími, þá væru allir í ruglinu,“
segir María, 17 ára nemi.
Saga og María voru sammála
um það að nenna ekkert alltaf að
svara í símann: „Stundum nenni
ég ekki að svara mínum eigin
síma og vil bara að fólk sendi mér
skilaboð. Oft þegar ég fæ hring
ingu frá númeri sem ég þekki
ekki þá nenni ég ekki að svara,“
segir Saga.
Maríu finnst leiðinlegt að tala í
símann og hentugra að nota netið:
„Mér finnst aðeins óþægilegra að
vera með símann alveg upp við
eyrað á mér. Ef ég tala við ein
hvern á netinu þá get ég allavega
verið að gera eitthvað annað á
meðan.“
Þær segja eðlilega misjafnt
hvaða leiðir séu
farnar við að
ná í fólk, allt
fari eftir því
um hvern
ræðir. Þegar
kennari sé
annars vegar
megi maður
ekki vera
of persónu
legur,
til að
mynda.
Facebook sé til dæmis of persónu
legur staður fyrir þess konar sam
skipti.
„Kennarar vilja helst ekki að
maður hafi samband í gengum
samfélagsmiðla því það er of
persónulegt. Tölvupóstur er bara
einhvern veginn eðlilegastur,“
segir María.
Saga er útskrifuð úr Listaháskól
anum en meðan á náminu stóð
fannst henni samskipti sín við
kennara eiga að vera formleg, ekki
frjálsleg: Ég hef haft samband við
kennara á Facebook eftir útskrift
þegar við erum orðnir vinir. Þegar
þeir voru að kenna mér langaði
mig bara að hafa samskiptin eins
og þau eiga að vera; á einhverjum
formlegum nótum milli nemenda
og kennara. Þess vegna notaði ég
tölvupóst.
Hvernig er með heimasímann, notið
þið hann?
„Nei, eiginlega aldrei nema þegar
ég er að reyna ná í litlu frændur
mína, þá hringi ég í heimasíma
foreldra þeirra,“ segir Saga.
„Ekki ég heldur,“ segir
María. „Það er líka hentugra
fyrir mig og minn aldurs
hóp að hafa allt fyrir framan
mig. Í staðinn fyrir að geta
bara hringt í og úr einum
heimasíma.“
Hvernig nærðu
í eftirfarandi?
Saga
29 ára
Mamma:
Farsími eða Messen-
ger
Kærasti:
Hringja. Sendum
eitthvað á Messen-
ger líka en ef ég
þarf að ná í hann þá
hringi ég.
Vinir:
Hringja eða
Messenger. Maður
er eiginlega hættur
að senda sms og fá
sms, nema frá Dom-
inos eða eitthvað.
Amma eða afi:
Hringja.
Yfirmaður:
Farsíma.
Kennarar:
Tölvupóstur.
María
17 ára
Mamma:
Hringi alltaf í
mömmu mína eða
sendi henni sms.
Kærasti:
Við erum mjög
virk að tala við
hvort annað á
samfélagsmiðlum
en við hringjumst
og sms-umst
alveg jafn mikið
líka. Snapchat og
Messenger. Skrifa
honum oftast á
Snapchat í staðinn
fyrir að senda
myndband. Við
erum bara af og til
að tékka á hvort
öðru.
Vinir:
Snapchat. Við
erum líka með
hópspjall á Face-
book. Við erum
mjög duglegar á
Snapchat að senda
hvor annari allan
daginn.
Amma eða afi:
Ég hitti afa ekkert
mjög oft en ég
myndi hringja í
hann í farsímann.
Yfirmaður:
Facebook, hún
er lang virkust að
svara þar.
Kennarar:
Alltaf í gegnum
tölvupóst.
9.999 kr.
ALICANTE f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 & j a n ú a r 2 0 1 7
9.999 kr.
BERLÍN f rá
T í m a b i l : j a n ú a r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
BARCELONA f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - j a n ú a r 2 0 1 7
9.999 kr.
KANARÍ f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 & j a n ú a r 2 0 1 7
9.999 kr.
AMSTERDAM f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
EDINBORG f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
Vertu
memm!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.