Fréttatíminn - 04.11.2016, Page 44
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Ég byrjaði að syngja aft-ur eins fljótt og ég gat og hef svo verið að auka þetta hægt og rólega, en er komin alveg á fullt
núna,“ segir söngkonan Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir sem eignaðist
dóttur í byrjun október á síðasta ári
og er sú litla því nýorðin eins árs.
Dóttirin var aðeins þriggja mánaða
þegar Jóhanna fór að skreppa frá í
stutt gigg, en þá var hana virkilega
farið að klæja í fingurna að fara
upp á svið að syngja. „Það er svo-
lítið skrýtið að vera tónlistarmað-
ur, þetta er svo óhefðbundin vinna,
og þegar maður fær ekki útrás fyrir
að syngja þá byggist upp „fruster-
ation“. Það er ekki gott fyrir sjálfið
að vera ekki að syngja. Þess vegna
gat ég ekki sleppt því mjög lengi,“
segir Jóhanna og brosir.
Áhættumeðganga vegna gigtar
Hún varð að hægja töluvert á sér
í söngnum á meðgöngunni vegna
slæmrar gigtar sem hún hefur
glímt við frá barnsaldri. Hún var
því í svokallaðri áhættumeðgöngu.
„Mér var ráðlagt að vera róleg og
taka styttri verkefni þar sem ég
gæti labbað inn, sungið nokkur lög
og farið aftur, engin böll eða neitt
slíkt. Það tók alveg 50 til 60 pró-
sent af vinnunni og margar tegund-
ir af verkefnum duttu út. Það var
því mjög gaman að geta byrjað aft-
ur, það voru allir svo hungraðir í að
fá mig í verkefni,“ segir hún kímin.
Jóhanna segir meðgönguna og
fæðinguna reyndar hafa gengið
mun betur en hún bjóst við, vegna
gigtarinnar. „Af því ég gat ekki
unnið jafn mikið og áður þá var
ég úti að labba með hundana mína
alla daga. Ég hreyfði mig því mikið,
borðaði hollt og naut þess að vera
slök í fríi og með því náði ég að
halda mér góðri framan af. En eftir
35. viku fór að síga á ógæfuhliðina
og ég fékk mikinn bjúg. Ég var svo
sett af stað við 38. viku og fæðingin
gekk mjög vel. Ég held því að ég
hafi sloppið vel miðað við að ég er
með þennan sjúkdóm og er frekar
slæm af honum.“
Stundum er hver hreyfing sár
Jóhanna segir svefnleysið og eðli-
legt álag sem fylgir því að vera
með ungbarn hafa haft verri áhrif
á gigtina. „Svefnleysi er svo slæmt
fyrir liðagigt og óhjákvæmilega
verður maður stundum svefnlaus
með lítið barn. En maður tæklar
það bara eins og hvert annað ver-
kefni. Það koma góðir og slæmir
dagar og ég reyni að verkjastilla
mig þegar ég er mjög slæm. Áður
en ég átti hana þá gat ég tekið því
rólega ef ég var slæm, en það er
ekki endilega í boði núna, því ég
get ekki látið hana afskiptalausa.
Stundum er hver einasta hreyfing
sár. Einföld aðgerð, eins og að taka
hana upp, getur stundum verið erf-
ið,“ segir Jóhanna hreinskilin en
tekur það samt fram að margir séu
verri af gigt en hún. „Sem betur
hefur mér tekist að vinna vel í mín-
um málum. Þetta hefur aldrei kom-
ið niður á neinu sem ég er að gera.
Ég kemst alltaf í gegnum allt sem
ég ætla mér. Ég er á góðum lyfjum
Sparkar í rassinn á sjálfri sér
Jóhanna Guðrún er komin á fullt í söngnum
aftur, eftir að hafa eignast dóttur fyrir ári, og
reynir að skapa sín eigin verkefni. Hún viður-
kennir að móðurhlutverkið sé töluvert erfiðara
en hún bjóst við og hlær nú af ýmsum rang-
hugmyndum sem hún hafði um barnauppeldið.
Heldur jólatónleika Jóhanna ætlar að halda sína eigin jólatónleika í fyrsta í Vídalínskirkju á Þorláksmessu. Mynd | Rut
sem virka vel og þetta er sjúkdóm-
ur sem hægt er að halda niðri með
réttu meðferðinni,“ útskýrir hún.
Konur setja pressu á sig
Jóhanna sá fyrir sér að vera heima
með dótturina þangað til hún kæm-
ist inn á leikskóla, en í ljós kom að
það myndi ekki ganga. Hún er því
nýbyrjuð hjá dagforeldum. „Það
var orðið svo mikið að gera hjá
mér að ég var farin að gera hvorugt
vel. Ég var hvorki að sinna henni
eins vel og ég vildi, né vinnunni.
Ég reyni því frekar að vera dug-
leg að gefa henni tíma frá því hún
kemur heim úr dagvistun og þang-
að til hún fer að sofa. Það er ekki
hollt að „múltitaska“ svona mik-
ið með barn, þá er maður aldrei
að veita því fulla athygli. Maður á
veita börnunum athygli þegar mað-
ur er með þeim, gefa sér tíma til að
leika við þau og lesa fyrir þau. En
líf nútímakvenna er mjög áhuga-
vert. Það er dálítið magnað hvern-
ig konur láta þetta allt ganga upp
og gera allt vel. Við erum flestar
þannig gerðar að okkur langar að
gera allt vel; vera mæður, standa
okkur í vinnunni, hafa allt hreint
og fínt heima og vera sjálfar fínar.
En það er bara svolítið mikið mál.“
Jóhanna telur að konur setji
gjarnan sjálfar þessa pressu á sig og
beri sig saman við aðrar konur, til
dæmis á snapchat. „Þær sem maður
sér þar ráða auðvitað hvernig þær
koma fram og hvernig þær sýna
heimilið sitt. En þegar maður sér
allt fullkomið hjá þeim þá hugsar
stundum maður hvort heimilið hjá
manni sjálfum eigi að vera svona
fínt. Ég er sjálf nefnilega með mikla
fullkomnunaráráttu þegar kemur
að heimilinu,“ segir hún og hlær.
„Stundum skil ég ekki hvernig fólk
sem á mörg börn lætur þetta ganga
upp, eins og það er samt yndislegt
að eiga barn og ég myndi aldrei ekki
vilja vera foreldri. En að eignast
barn vekur mann dálítið til lífsins.“
Skapar sín eigin verkefni
Eftir að dóttirin byrjaði í dagvistun
hefur Jóhanna getað hellt sér út í
vinnuna af heilum hug. Það er
líka eins gott, því verk-
efnin hrúgast inn. Þetta er
sá árstími. Þá er hún líka að
reyna að skapa sín eigin verkefni.
„Ég hef verið svo heppin í gegn-
um tíðina að ég hef fengið mikið af
góðum verkefnum. Þau hafa bara
komið til mín og ég hef vandað mig
við þau. En ég er að reyna að gera
meira sjálf núna, eins og ég ætla að
halda jólatónleika í Vídalínskirkju
á Þorláksmessu. Þetta verða mjög
lágstemmdir tónleikar, frekar ódýrt
inn, þannig flestir ættu að geta leyft
sér að koma. Mig langar bara að
hafa notalega stemningu og svo get-
ur fólk farið inn í jólin. Þá verð ég
með Evu Cassidy tónleika í Salnum
11. febrúar og það er strax farið að
seljast ágætlega á þá. Þannig ég er
aðeins að reyna að sparka í rassinn
á sjálfri með að halda tónleikana
sjálf,“ segir Jóhanna einlæg. Þá er
væntanlegt lag frá henni í byrjun
ársins, en hún vill leyfa jólavertíð-
inni að klárast fyrst. Hún er nefni-
lega ekki bara sjálf með jólatón-
leika því hún mun syngja á fjölda
annarra jólatónleika, meðal annars
með Björgvini Halldórssyni, Stefáni
Hilmarssyni og Friðriki Ómari.
„Þetta er skemmtilegasti tími
ársins í mínum huga, þó álagið sé
auðvitað mikið líka, sérstaklega
núna, því þetta er fyrsta jólatörnin
með barn. Það gæti orðið stremb-
ið að láta þetta ganga upp því við
erum bæði svo upptekin,“ seg-
ir Jóhanna, en barnsfaðir hennar
og unnusti, Davíð Sigurgeirsson,
er einnig tónlistarmaður og þau
þurfa því stundum bæði að vinna
á kvöldin og um helgar. Sem betur
fer eiga þau góða að og ömmurnar
og afarnir eru dugleg að stökkva til
og passa. „Mamma mín er til dæmis
alveg komin í stellingar fyrir nóv-
ember og desember. Þó ömmurnar
og afarnir séu alltaf glöð að passa
þá finnst mér þetta stundum full-
mikið og fæ samviskubit yfir því að
vera að níðast á fólki.“
Hélt þetta yrði svo auðvelt
Jóhanna viðurkennir að móðurhlut-
verkið sé töluvert erfiðara en hún
gerði ráð fyrir, en þó frekar á kó-
mískan hátt en neikvæðan og hún
barmar sér alls ekki yfir því. Hún
getur stundum ekki varist hlátri yfir
þeim ranghugmyndum sem hún
hafði um ýmislegt sem viðkemur
því að vera með ungbarn.
„Ég var með svo brenglaða hug-
mynd um hvernig þetta yrði. Ég
hélt að þetta yrði svo auðvelt af því
ég ræð mér svo mikið sjálf í vinnu.
Ég hélt að ég gæti stjórnað öllu sjálf,
en hef áttað mig á því að ég er með
lítinn einstakling með sjálfstæðan
vilja. Ég hélt að hún gæti bara leikið
sér á meðan ég svaraði tölvupóstum
og hringdi símtöl og svo þegar hún
legði sig þá gæti ég æft mig, en svo
er þetta ekki þannig. Hún er ekkert
endilega til í að leika sér þegar ég
er í tölvunni. Hún vill frekar vera
hjá mér og ýta á alla takkana. Svo
fer hún að gráta þegar ég set hana
niður, bara eins og börn gera,“ segir
Jóhanna sem hefur lært ansi margt
á þessu eina ári sem móðir.
„Ég stjórna mínum tíma í raun-
inni ekki lengur. Ég ræð því ekkert
sjálf hvernig dagurinn er og þess
vegna ákváðum við líka að fá dag-
vistun. Þá get ég allavega gengið að
þessum tíma vísum í vinnu.“
Jóhanna spyr sig stundum að því
hvað hún hafi eiginlega verið að
gera áður en hún eignaðist barn.
„Mér finnst eins og ég hefði átt að
nýta tímann minn miklu betur, ég
var svo slök með allt. Það var vissu-
lega gott að njóta þess á meðan
maður gat, en ég hefði örugglega
líka getað gefið út tíu plötur,“ segir
hún hlæjandi.
Faxafeni 14 l Sími 5516646
Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-15
FULL BÚÐ
AF NÝJUM VÖRUM
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
Ég var með
svo brenglaða
hugmynd um hvernig
þetta yrði. Ég hélt að
þetta yrði svo auðvelt
af því ég ræð mér svo
mikið sjálf í vinnu. Ég
hélt að ég gæti stjórn-
að öllu sjálf, en hef átt-
að mig á því að ég er
með lítinn einstakling
með sjálfstæðan vilja.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is.
Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.