Fréttatíminn - 04.11.2016, Blaðsíða 50
Grafík um alla borg Um níu þúsund gestir
eru á Iceland Airwaves og fer það ekki
framhjá neinum í miðborg Reykjavíkur.
Grafík Arnars má meðal annars sjá á
varningi á borð við boli og bollum.
Arnar hannar Airwaves
Arnar Geir Ómarsson á
heiðurinn af grafíkinni sem
prýðir allt auglýsingaefni
og söluvarning Iceland
Airwaves-hátíðarinnar.
Hönnuður Airwaves Arnar Geir Ómarsson, teiknari og trommuleikari, hannar alla grafík Iceland Airwaves-hátíðarinnar sem nú stendur yfir.
Verk hans eru því áberandi í Reykjavík þessa dagana. Mynd | Hari
Grafíkin er svona eins og tónlistin. Hún er allskonar leikur að lit-um og formum og fær að breytast og vera lif-
andi,“ segir Arnar Geir Ómarsson,
teiknari og trommuleikari.
Verk Arnars eru áberandi víða
um Reykjavík þessa vikuna enda
er hann höfundur grafíkurinnar á
Iceland Airwaves-hátíðinni sem nú
stendur sem hæst.
„Þetta er annað árið í röð sem
ég geri grafíkina en hún er alltaf
breytileg milli ára. Í ár ákváðum
við að halda áfram með útlit síð-
ustu hátíðar, að taka það lengra.
Það er farið að huga að útliti þeirr-
ar næstu strax þegar hátíð lýkur
enda er farið að „tísa“ á samfé-
lagsmiðlum eftir áramótin. Svo fer
þetta yfir í vefsíðu, plaköt, auglýs-
ingar og svoleiðis.“
Auk þessa hannar Arnar líka
söluvarning hátíðarinnar sem
nýtur mikilla vinsælda hjá erlend-
um gestum hátíðarinnar en þeir
eru nokkur þúsund talsins. Þar
með talið eru bolir, hettupeysur,
töskur, húfur og derhúfur, límmið-
ar og plaköt.
„Og sokkar. Ég hef sjálfur farið
á svona hátíðir og mann vantar
yfirleitt sokka og eitthvað hlýtt til
að fara í. Varningsdeildin hefur að-
eins verið að auka við sig. Þetta er
svona ný tegund af lundaverslun,“
segir hann og hlær. „Nei, við erum
mjög ánægð með þetta. Okkur
finnst þetta mjög flott.“
Arnar segir að það hafi verið
skemmtilegt verkefni að hanna
Airwaves-grafíkina.
„Já, af því að maður fær að gera
allskonar sem gengur kannski ekki
upp í öðru samhengi en á tónlist-
arhátíð. Þetta er ekki þessu venju-
lega vinna fyrir venjuleg fyrirtæki.
Þetta er einskonar frjáls tími og
hann er fullnýttur til að geta leyft
sér að gera einhverja vitleysu sem
annars væri ekki í boði.“
Arnar er sjálfur trommuleikari
og frægastur fyrir störf sín með
hinni goðsagnakenndu hljómsveit
Ham. Hann hefur jafnan troðið
upp á Airwaves en svo er ekki í ár.
„Það er ágætis tilbreyting að vera
ekki að spila og geta bara notið
hátíðarinnar. Þetta er oft heilmik-
ið stress þegar maður er að spila.
Fyrir þremur árum kom ég til
dæmis beint af fæðingardeildinni
og upp á svið.“
Airwaves-rúta Þúsundir hátíðargesta koma hingað með flugi og ekki er verra að geta ferjað þá til og frá vellinum í Airwaves-rútu.
Nýir sokkar Arnar segir að fólk á tónlistarhátíðum vanti oftast hlý föt og sokka og því var
brugðið á það ráð í fyrra að byrja að selja Airwaves-sokka með grafík Arnars.
…airwaves 10 | amk… FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
9.999 kr.
ALICANTE f rá
T í m a b i l : n óve m b e r 2 0 1 6 & j a n ú a r 2 0 1 7
9.999 kr.
BERLÍN f rá
T í m a b i l : j a n ú a r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
BARCELONA f rá
T í m a b i l : n óve m b e r 2 0 1 6 - j a n ú a r 2 0 1 7
9.999 kr.
KANARÍ f rá
T í m a b i l : n óve m b e r 2 0 1 6 & j a n ú a r 2 0 1 7
9.999 kr.
AMSTERDAM f rá
T í m a b i l : n óve m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
EDINBORG f rá
T í m a b i l : n óve m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
Vertu
memm!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.