Fréttatíminn - 04.11.2016, Síða 52
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
DICK CEPEK dekkin eru amerísk gæðavara
og þekkt fyrir frábæra endingu, auk þess að
vera afar hljóðlát. DICK CEPEK dekkin fást
í þremur mismunandi útfærslum í stærðum
frá 29 til 44 tommu, og passa því undir
flestar gerðir jeppa og jepplinga.
NOKIAN er einn virtasti framleiðandi í heimi
á vetrardekkjum. Arctic Trucks hefur átt
gott samstarf við Nokian sem skilað hefur
frábærum árangri, enda koma hér saman
tveir sérfræðingar í vetrarakstri.
AT315 35 tommu dekkið er afrakstur
þessa samstarfs og í byrjun næsta árs er
væntanlegt á markað nýtt 44 tommu dekk
sem sérstaklega er hannað til aksturs við
afar erfiðar aðstæður að vetri til.
ÖLL ALMENN
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.com
alla föstudaga
og laugardaga
Seagal til Rússlands
Leikarinn Steven Seagal hefur fengið rússneskan
ríkisborgararétt. Hann hefur oft heimsótt landið og talað vel um
Vladimír Pútín. Ætli Rússar viti hvað þeir eru að kalla yfir sig?
Fór Nicole í
brjóstaaðgerð?
Mikið fjallað um söngkonuna í Bretlandi.
Mikið er nú rætt og ritað í Bretlandi um hvort
söngkonan Nicole Scherzinger hafi farið í
brjóstaaðgerð. Nicole, sem fræg er fyrir hljóm-
sveitina Pussycat Dolls, hefur hin síðustu ár
verið fastagestur á sjónvarpsskjánum sem dóm-
ari í hæfileikaþáttum.
Og það var við tökur á einum slíkum í vik-
unni sem sagan fór á kreik. X-Factor dómarinn
Louis Walsh var gestur í öðrum þætti og þar
var farið í leik þar sem talað var um leyndar-
mál stjarnanna. Einn gestanna nefndi brjóst
Scherzinger og þá sagði þessi kollegi hennar:
„Já, þetta eru ný brjóst! Hún er með ný brjóst!“
„Þetta er ekki satt. Nicole er svo heppin að
vera blessuð með ótrúlegum genum og verður
bara heitari með aldrinum,“ hafði talsmaður
Scherzinger um málið að segja.
Ótrúleg gen Nicole
Scherzinger kveðst
ekki hafa farið í
brjóstaaðgerð. Mynd
| NordicPhotos/Getty
Bók um friðsæla
forseta
Önnur bók sem eflaust mun
vekja athygli í jólabókaflóðinu er
forsetabókin Fyrstu forsetarnir:
Embætti þjóðhöfðingja Íslands á
20. öld eftir Guðna Th. Jóhannes-
son, forseta Íslands. Forsetinn
stefndi upphaflega að því gefa
bókina út fyrir forsetakosningarn-
ar í vor en lét af þeim áformum
þegar hann fór sjálfur í forseta-
framboð. Forsetabók Guðna
forseta hefur greinilega tekið
breytingum frá því sem áður var
ráðgert. Nú er kynnt að bókin nái
aðeins fram til aldamóta og
sneiðir forsetinn þar með hjá því
að fjalla um umdeild embættis-
verk forvera síns í forsetaemb-
ættinu, Ólafs Ragnars Grímsson-
ar. Það að útgefandinn er
Sögufélagið, hvar Guðni gegndi
embætti forseta þar til í vor, en
ekki Forlagið eins og til stóð,
bendir líka til þess að forsetabók-
in verði fremur settleg sagnfræði-
leg yfirferð heldur en bók sem
vekja mun deilur.
Metupplag Arnaldar
Ný bók Arnaldar Indriðasonar,
Petsamo, kom út á þriðjudaginn
og fór beint á toppinn á metsölu-
lista Eymundsson eftir einn dag í
sölu. Það eru svo sem ekki ný
tíðindi að Arnaldur fari beint á
toppinn þegar ný bók eftir hann
kemur út en útgefandinn,
Forlagið, býst greinilega við
mikilli sölu í ár. Þannig voru yfir
sex þúsund eintök send út í fyrstu
dreifingu, sem er um það bil
fjórföld meðalsala á íslenskri
skáldsögu, og hafa aldrei verið
send út fleiri í fyrstu atrennu.
Sjálfur er Arnaldur ekki mikið að
stressa sig á útgáfunni því hann
er á kynningarferðalagi um
Þýskaland og Frakkland en bækur
hans njóta mikilla vinsælda þar
um slóðir.
Ég fyrirverð
mig ekki
fyrir fagnaðar-
erindið. Það
er kraftur
Guðs sem
frelsar hvern
þann mann
sem trúir...
www.versdagsins.is