Fréttatíminn - 04.11.2016, Síða 54
varð ólétt að öðru barni þeirra
hjóna ákváðu þau hins vegar að
flytja til Íslands þar sem fyrirtækið
hefur tekið mikið stökk. „Eftir að
við komum til Íslands höfum við
getað gert stærri vörur. Við vorum
fyrst að einblína á vörur sem við
gátum pakkað og sent. En hérna
höfum við verið að þróa borðstofu-
borð, barstóla, sófa og fleira sem við
spáðum ekki einu sinni í þegar við
vorum að byrja.“
Fyrirtækið hefur því heldur
betur vaxið og dafnað á síðustu
fimm árum og í lok október bauðst
Agustav að taka þátt í Dubai Design
Week sem er stærsta hönnunarsölu-
sýning í Miðausturlöndum. „Okk-
ur var boðið í gegnum Hönnunar-
miðstöðina, en þau voru beðin um
að skaffa hönnunarvikunni í Dúbaí
lista yfir hönnunarfyrirtæki sem
þeim þóttu frambærileg. Og við
vorum svo heppin að vera á þessum
lista og vera valin úr ásamt tveim-
ur öðrum íslenskum fyrirtækjum.
Við fórum svo út sem fulltrúar
Hönnunarmars á Íslandi.“
Virðing fyrir handverkinu
Ágústa segir þetta hafa verið stór-
kostlegt tækifæri fyrir þau hjón-
in. „Við reiknuðum aldrei með
því að fá jafn góðar móttökur og
við í rauninni fengum þegar við
komum út. Það seldist allt upp hjá
okkur á fyrstu tveimur tímunum.
Það kom okkur líka mikið á óvart
hvað það var mikill áhugi, ekki
bara á hönnuninni, heldur líka
handverkinu. Við handgerum allar
vörurnar okkar og fólki fannst það
rosalega áhugavert og sérstakt.
Fólk bar mikla virðingu fyrir því
sem maður mætir ekki hvar sem
er. Það var mjög fullnægjandi fyrir
okkur að fá viðurkenningu á þeim
hluta líka.“
Agustav fékk margar viðskipta-
tengingar á sýningunni og eru þau
hjónin að vinna sig í gegnum þær
núna og kanna hvort þau fá hugsan-
lega einhverja sölu- eða dreifingar-
aðila. „Við vorum líka í sambandi
við nokkra innanhúsarkitekta sem
sýndu okkur mikinn áhuga og hafa
áhuga á nota okkur í stærri verk-
efni eins og hótel, villur og fleira.
Stærðin á öllu þarna úti er svo rosa-
leg og möguleikarnir miklu meiri en
við gerðum okkur grein fyrir. Þessi
ferð opnaði því alveg nýjan heim
fyrir okkur sem er rosalega áhuga-
verður.“
Þitt er valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum,
klæðningum og einingum
styrkur - ending - gæði
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
HÁGÆða ÞvOttaHÚSiNNrÉttiNGar
FATASKÁPAR &
reNNiHUrðir
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15
H
jónin Ágústa Magn-
úsdóttir og Gúst-
av Jóhannsson
mynda saman
hönnunarteymið
Agustav en þau sérhæfa sig í
stílhreinum og endingargóðum
timburhúsgögnum. Fyrirtækið var
formlega stofnað árið 2011 en áður
höfðu hjónin hannað og smíðað
húsgögn til eigin nota af praktísk-
um ástæðum.
Hönnuðu húsgögn sem
pössuðu
„Við kynntumst í Danmörku og
þegar við byrjuðum að búa þá
bjuggum við frekar smátt. Íbúðin
var mjög kræklótt og það voru
engin 90 gráðu horn þannig við
þurftum að sérsmíða inn í hana
rosalega mikið af innrétting-
um. Við fórum að hanna og þróa
hlutina eins og við sáum fyrir okk-
ur að þeir gætu verið í íbúðinni
og þannig byrjaði þetta samstarf.
Svo varð það bara stærra og stærra
og við ákváðum að prófa að setja
eina vöru á netið til að athuga
hvort einhver annar hefði áhuga
á þessu og þá rauk þetta af stað og
fyrirtækið varð til,“ segir Ágústa
sem hannar húsgögnin og vinn-
ur að markaðssetningu á meðan
Gústav smíðar og hannar, en hann
lærði fyrst húsasmíði hér á landi
og svo húsgagnasmíði í Danmörku.
Ágústa segir þau hjónin vinna
rosalega vel saman og þau vinni
eiginlega betur saman en í sitt
hvoru lagi.
Stórt stökk á Íslandi
„Við leggjum áherslu á að gera vör-
ur sem endast og passa inn á sem
flestum stöðum og vonumst til að
vörurnar okkur geti erfst til næstu
kynslóða á eftir. Svo hugum við
líka að náttúrunni í framleiðslunni
og plöntum tré fyrir hverja selda
vöru,“ útskýrir Ágústa.
Fyrirtækið hefur starfað í þremur
löndum, fyrst voru þau í Danmörku
en fluttu til Ítalíu til að koma því al-
mennilega af stað. Þegar Ágústa
Sniðugt Bókahillan er ansi skemmtileg og
öðruvísi en við eigum að venjast.
Fengu stórkostlegt tækifæri í Dúbaí
Hönnunarteymið
Agustav samanstendur
af hjónunum Ágústu
og Gústav sem byrjuðu
upphaflega að hanna
og smíða húsgögn af
praktískum ástæðum.
Fyrirtækið hefur vaxið
og dafnað og vakti
hönnun þeirra mikla
athygli á sölusýningu
í Dúbaí. Nýr heimur
opnaðist og fleiri
tækifæri eru handan
við hornið.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Samhent hjón Ágústa segir þau
hjónin vinna miklu betur saman
en í sitt hvoru lagi. Mynd | Rut
Nýjasta varan Klassísk hilla er nýjasta
afurð hönnunarteymisins.
Öðruvísi Fallegir tungl- og stjörnusnagar til
að hengja upp uppáhaldsflíkurnar.
Stílhreint
Þau hjónin
leggja áherslu
á stílhrein og
endingargóð
húsgögn sem
geta erfst frá
einni kynslóð
til annarrar.
Hægt er að
velja áklæði
á stól og
sófa úr 50
mismunandi
litum.
…heimili & hönnun 2 | amk… FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016