Fréttatíminn - 04.11.2016, Síða 60
Gæðavara frá Revlon Þurrkar og sléttir hárið með jónatækni sem skilur hárið eftir silkimjúkt.
Unnið í samstarfi við Byggt og búið
Revlon snyrtivörumerkið þekkja flestir og nú hef-ur Byggt og búið hafið sölu á mjög vönduðum
hársnyrtitækjum frá Revlon,
hárblásurum, sléttujárnum, og
krullujárnum. Nýi blástursburst-
inn frá Revlon fæst í Byggt og
búið og hefur vakið mikla lukku.
„Þetta gæti orðið ansi vinsæl
jólagjöf,“ segir Jens Harðarson,
verslunarstjóri Byggt og búið.
Frábær bursti sem þurrkar og sléttir
Afrafmagnar hárið og skilur það eftir silkimjúkt
„Burstinn blæs og sléttar hárið í
einu og er mjög einfaldur í notk-
un. Hann er líka með jónatækni
sem afrafmagnar hárið og hjálp-
ar til við að slétta það,“ segir
Jens sem hefur góða reynslu af
tækinu en hann notar það við
góðan árangur á hár dóttur sinn-
ar eftir bað. „Ég get því sagt
með sanni að þetta svínvirkar.“
Burstinn tekur ekki mikið pláss
og mjög þægilegt er að hafa
hann meðferðis hvert sem er.
Handhægt Tækið er
með 2 hitastillingum
og köldum blæstri.
Ásta Sigurðardóttir Stílisti hjá Byko.
Tekur lítið pláss
Burstinn er léttur
og meðfærilegur
og skilur hárið eftir
silkimjúkt.
Gerðu frábær kaup
Allt parket og allar flísar á 20-40% afslætti til 14. nóvember.
Unnið í samstarfi við BYKO
Það sem er mest „inn“ í parketi núna er ljós við-ur með gráum undir-tóni. Það passar vel með
blátóna litunum sem eru mikið
„inn“ núna og margir mála hjá
sér einn og einn vegg í dökk
bláum, grænbláum og gráum lit-
um,“ segir Ásta Sigurðardóttir,
stílisti hjá Byko. „Harðparket er
mest selt hjá okkur núna en það
er mjög sterkt og endingargott
á álagsrými og fyrir fólk með
gæludýr.“
Ásta segir vínylparket vera að
koma sterkt inn í parketflóruna.
„Þetta er frábært efni og 100%
vatnshelt. Það er mýkra en harð-
parket og er þar að leiðandi góð
lausn, t.d. í eldhús. Vínylparketið
kemur með undirlagi svo það
bætist ekki við aukakostnaður
vegna þess.“
Hvað flísar varðar er tískan
síbreytileg, þær eru til dæm-
is alltaf að stækka, að sögn
Ástu. „Núna er 60x60 flísar það
heitasta. Þær eru líka notaðar á
veggi á baðherbergjum þar sem
gólf og veggir eru látin fljóta
saman sem ein heild,“ segir
Ásta. „Við höfum gott úrval af
mósaík flísum sem eru notaðar í
sturtubotna og þá í sama lit og
aðrar flísar í rýminu. Mér finnst
hafa orðið aukning í að fólk
flísaleggi heilrými eins og stofu
og borðstofu. Þar sem gólfhiti
er eru flísar líka betri varma-
lega séð, getur munað nokkru
um kyndingarkostnað miðað við
parket.“.
Önnur nýjung sem er að falla
vel í kramið, að sögn Ástu,
eru parketflísarnar. „Þær eru
alltaf að verða vinsælli og eru
skemmtileg viðbót við flóruna.
Við seljum þær flísar jafn mikið á
baðherbergi sem og önnur rými
þar sem fólk vill kalla fram hlýju
inni á baðherbergjum.“
Nú er hægt að gera frábær
kaup í BYKO þar sem allt park-
et og allar flísar eru á 20-40%
afslætti.
20%-40%
afsláttur af öll
u
parketi og öllu
m
flísum.
…heimili & hönnun kynningar 8 | amk… FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016