Fréttatíminn - 22.12.2016, Page 2
Kjartan Eiríks-
son er fram-
kvæmdastjóri
Kadeco. .
2 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hefur nú skipað sérfræðinga-hóp úr ráðuneytunum til að greina hættuna af sí-
hækkandi gengi krónunnar. Vonum
seinna. Allt þetta ár og einkum frá
liðnu vori hafa allar viðvörunar-
bjöllur klingt. Síðustu mánuði hafa
allir lúðrar pípt vegna krónunn-
ar. Það var þó ekki fyrr en núna í
vikunni sem ríkisstjórnin ákvað að
skipa nefnd.
Viðvörunarbjöllurnar vöktu ekki
ráðherranna til umhugsunar. En
þeir fengu undirmenn sína til að
hugsa málið. Kannski eigum við að
þakka fyrir það.
En eru þessi rólyndislegu við-
brögð ríkisstjórnarinnar ef til vill
merki þess að ekkert sé að óttast?
Ég veit ekki. Í nokkur ár hafa
viðvörunarbjöllur klingt vegna
fjölgunar ferðamanna. Þrátt fyrir
að sú fjölgun sé í eðli sínu gleðiefni
fylgir henni þörf fyrir viðbrögð-
um. Einstaklingar og fyrirtæki hafa
svarað ágætlega þeim kröfum sem
að þeim snýr. Einstaklingar hafa
umbreytt heimilum í gistiaðstöðu
og skipt um starfsvettvang til að
manna ferðaþjónustuna. Fyrirtæki
í gisti-, veitinga- eða ferðaþjónustu
hafa margfaldað umsvif sín. Ríkið
hefur hins vegar varla svarað neinu
sem því snýr.
Það sama má segja um krónuna.
Þrátt fyrir að efnahagslífið nötri hef-
ur það ekki vakið ráðherrana.
Við hin, sem höfum hag af við-
brögðum stjórnvalda gagnvart
hækkun krónunnar og fjölgun
ferðamanna, verðum að vonast til
þess að þetta tvennt hafi áhrif á
starfsemi Kaupfélags Skagfirðinga.
Þegar það gerist mun ríkisstjórn
sérhagsmuna líklega hrökkva upp
til aðgerða.
Gunnar Smári
ÁHUGALAUS
STJÓRN
3 ×
í viku
Lögregla telur Scream-árásina tilefnislausa
Lögreglumál „Við teljum að þetta
fólk þekkist ekki neitt. Hann hafi
ekki þekkt þessa konu áður og hafi
ekki setið sérstaklega fyrir henni.
Við göngum út frá því að það hafi
ekki endilega verið ásetningur að
stinga konuna heldur hafi þetta
alveg eins getað verið mistök þegar
þau rákust saman,“ segir Grímur
Grímsson yfirlögregluþjónn um
hnífsstunguna á Greiningar- og
ráðgjafarstöð-
inni við Digra-
nesveg.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@frettatiminn.is
Maðurinn var með Scream drauga-
grímu fyrir andlitinu. Konan var
ekki stungin heldur fremur skor-
in, að sögn lögreglu. Talsvert blóð
var á vettvangi. Konan sem varð
fyrir árásinni telur að maðurinn
hafi verið á þrítugsaldri en
vegna grímunnar get-
ur hún ekki lýst
árásarmanni nánar.
„Þó að maðurinn
sé klæddur með
þessum hætti og
hnífur komi við sögu, þá er þetta ekki
beint þannig að maðurinn veitist að
konunni og stingi hana. „Þau mæt-
ast og hún finnur högg í öxlina, þar
sem hún var skorin,“ segir Grímur
og bætir við að það sé þó mögulegt
að konan hafi komið að manninum
þar sem hann hafi ætlað að ráðast á
annan einstakling.
Soffía Lárusdóttir, forstöðumað-
ur Greiningar og ráðgjafarstöðvar
ríkisins, segir í samtali við Frétta-
tímann að starfsmenn séu mjög
slegnir. „Það hefur aldrei neitt því-
líkt áður gerst á stofnuninni. Stofn-
unin þjónustar fyrst og fremst fötluð
börn og foreldra þeirra. Þetta hefur
verið mjög friðsæl starfsemi,“ seg-
ir Soffía. Hún segir að konan, sem
varð fyrir árásinni, sé ekki í dag-
legum samskiptum við notendur.
„Þetta beindist ekki gegn ákveðinni
persónu." Þetta er annað skipti á
stuttum tíma sem árás á Íslandi virð-
ist vera innblásin af hryllingsmynd.
Árið 2014 var 15 ára drengur dæmdur
í öryggisgæslu fyrir tilraun til mann-
dráps. Hann skar háls ungrar stúlku,
klæddur grímu, og við skýrslutöku
sagðist hann hafa verið undir áhrif-
um af hryllingsmyndinni Halloween.
Fréttatíminn hefur fengið það stað-
fest að drengurinn er enn vistaður í
öryggisgæslu.
Viðskipti Íslenska ríkið hefur
selt 93 prósent af eignum sínum
á svæði bandaríska hersins við
Reykjanesbæ. Fjárfestingarfélag
mun gera upp og leigja út 470
íbúðir. Kaupverð eignanna er
fimm milljarðar króna. Verður
eitt stærsta leigufélag Íslands.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Fjárfestingarfélagið Ásbrú ehf. mun
gera upp og leigja út 470 íbúðir á
svæði gamla varnarliðsins á Miðnes-
heiði við Reykjanesbæ. Íbúðirnar
voru í eigu íslenska ríkisins í gegn-
um félagið Kadeco en hafa verið
seldar til þessa fyrirtækis, sam-
kvæmt tilkynningu frá Kadeco á
þriðjudaginn. Kaupverðið var fimm
milljarðar króna og var kaupsamn-
ingurinn undirritaður þann 20. des-
ember. Með viðskiptunum verður til
enn eitt leigufélagið á Íslandi sem
sérhæfir sig í því að eiga og leigja
út íbúðir til almennings en með-
al annarra slíkra félaga má nefna
GAMMA og Heimavelli.
Gunnar Thoroddsen, stjórnar-
formaður Íslenskra fasteigna ehf.
sem skipuleggur fjárfestinguna, seg-
ir að fjárfestarnir ætli að leggja um
tvo milljarða króna í lagfæringar
á íbúðarhúsnæðinu. Á bak við Ís-
lenskar fjárfestingar standa, auk
Gunnars, Sveinn Björnsson, fyrr-
verandi starfsmaður Novator, Þór-
ir Kjartansson og Arnar Þórisson.
„Þetta eru um 470 íbúðir og um 17
prósent af íbúðunum er í útleigu nú
þegar. Planið er bara það að ráðast
í endurbætur á eignunum og laga
þær þannig að þær komist í leigu-
og íbúðarhæft ástand. Við ætlum
að eiga megnið af þessum eignum
og leigja þær út áfram þó það sé vel
hugsanlegt að við seljum eitthvað
af þessu með tíð og tíma.“ Gunnar
segir að allar íbúðirnar sem búið er
að gera upp sé nú þegar í útleigu.
Auk íbúðanna er um að ræða 28
fasteignir sem flokkast sem atvinnu-
húsnæði.
Í tilkynningu frá Kadeco kemur
fram að félagið hafi ekki forsendur
til að leggjast í þá tveggja milljarða
króna fjárfestingu sem þurfi til að
gera íbúðirnar leiguhæfar. Kadeco
hefur nú selt 93 prósent af því hús-
næði sem bandaríski herinn gaf ís-
lenska ríkinu þegar herinn fór frá
Íslandi fyrir rúmum áratug.
Kjar tan Eir íksson, f ram-
kvæmdastjóri Kadeco, segir að ekk-
ert tilboð sem barst í eignirnar hafi
verið eins umfangsmikið og tilboðið
frá Íslenskum fasteignum ehf. Fé-
lagið hafi boðið í svo margar eignir.
„Þeir gera tilboð í allan eignapakk-
ann og þeirra tilboð var hagstæð-
ast. Það var ekkert annað tilboð í
þessa veru heldur tilboð í stakar
eignir. Við gáfum kaupendunum
möguleika á því að ákveða sjálfir
hversu margar eignir þeir byðu í.
Þetta voru einu aðilarnir sem buðu
í svona margar eignir. Þetta var ekki
eignapakki sem var rammaður inn.“
Gunnar Thoroddsen segir að-
spurður að hann vilji ekki gefa
upp nöfn hluthafa Ásbrúar ehf. að
svo stöddu en hann segir að stofn
þeirra séu hluthafar fjárfestingar-
félagsins BK eigna ehf. sem hefur
keypt upp eignir af Íbúðalánasjóði
á þessu ári. Meðal eigenda BK eigna
ehf. eru Andri Sveinsson og Birgir
Már Ragnarsson sem í gegnum árin
hafa verið nánir samstarfsmenn
Björgólfs Thors Björgólfssonar, Þor-
stein M. Jónsson, Óli Þór Barðdal og
Baldur Guðlaugsson. Hluthafalisti
Ásbrúar ehf. er ekki orðinn opinber
hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.
Leigja 470 íbúðir á svæði
varnarliðsins til almennings
Hluthafar
BK eigna
ehf.
27,29%
Omega ehf.
(Andri Sveinsson
og Birgir Már
Ragnarsson)
14,56%
JÖKÁ ehf.
9,23%
Óli Þór Barðdal
9,10%
147 ehf.
8,82%
M ehf.
(Þorsteinn
M. Jónsson)
7,28%
Cappucino
Partners
5,46%
HAKK ehf
4,55%
Baldur
Guðlaugsson
3,64%
Joseph Stewart
3,61%
BMA ehf.
2,09%
Olafsson & co ehf.
1,82%
Fjallatindar ehf.
1,82%
Alvar Invest ehf
0,73%
Jon Salisbury
Dómsmál Mikill fjöldi skattsvika-
mála, sem hafa verið í bið fyrir
dómstóli, hafa verið sett aftur á
dagskrá. Til marks um það var einn
saksóknari hjá héraðssaksóknara,
Ásmunda Björg Baldursdóttir, með
fimm slík mál á dagskrá á miðviku-
dag. Málin eru nokkurra ára gömul
en þeim var öllum frestað vegna
dómsmáls sem Jón Ásgeir Jóhann-
esson höfðaði fyrir Mannréttinda-
dómstóli Evrópu.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@frettatiminn.is
Mál Jóns Ásgeir varðar hvort hann
hafi tekið út refsingu með því að fá
á sig álag við endurákvörðun skatt-
rannsóknarstjóra. Engin niðurstaða
er komin í það mál en nýlega féll
dómur fyrir Mannréttindadóm-
stólnum þar sem dómurinn komst
að þeirri niðurstöðu að norska ríkið
hefði mátt sekta og síðar dæma tvo
menn í fangelsi vegna skattsvika.
Ásmunda segir í skriflegu samtali
við Fréttatímann að ákveðið hafi
verið að fara með málin fyrir dóm
nú bæði vegna norska málsins og
eins tíma. „Þegar málin voru sett í
frest var talið að dómur myndi falla
innan örfárra mánaða [í máli Jóns
Ásgeirs], talið var að hann myndi
falla öðru hvoru megin við ára-
mótin 2014/2015. Nú eru liðin tvö ár.
Forsendur eru því allt aðrar en þær
voru þegar málin voru sett í frest,“
segir Ámunda.
Eitt slíkt mál er mál Péturs Þórs
Sigurðssonar, héraðsdómslög-
manns og eiginmanns Jónínu Bjart-
marz, fyrrverandi ráðherra. Hann
var ákærður árið 2013 og gefið að
sök að hafa látið undir höfuð leggj-
ast að færa bókhald lögfræðistofu
sinnar árin 2009 og 2010. Hann
gerði upp við skattinn árið 2011.
Skattsvikamál hrúgast inn
Mörg gömul skattsvikamál fara fyrir
dóm á næstunni. Mynd | Hari
Maðurinn var
með grímu eins
og morðinginn
í Scream
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Evonia eykur hárvöxt með því að
veita hárrótinni næringu og styrk.
Evonia er hlaðin bætiefnum sem
næra hárið og gera það gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
www.birkiaska.is