Fréttatíminn - 22.12.2016, Page 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
Laugavegur - Kringlan - Glerártorg - kunigund.is
Jólagjöfin sem seldist
upp löngu fyrir jól
Jól Fuglsunginn Hatcimal, sem
brýst úr plasteggi er jólagjöfin
sem hefur valdið mestri múgæs-
ingu fyrir þessi jól en markaðs-
herferðin sem snýr að fimm til
tíu ára börnum þótti einkar vel
heppnuð. Ekki tókst þó betur til
en svo að leikfangið seldist upp
löngu fyrir jól og hefur síðan
gengið kaupum og sölum á netinu
á margföldu verði eins og fágætur
safngripur.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Byrjað var að auglýsa eggið sjálft
á netinu fyrir mörgum mánuðum
en leikfanginu haldið leyndu þar
til skömmu fyrir jól. Það varð því
mikið uppnám þegar leikfangadýrið
seldist upp, alls staðar í heiminum
og var aðeins fáanlegt á okurverði
á netinu, til að mynda á söfnunar-
síðum eins og Ebay. „Dóttir mín
sá þetta í Toys’R’us bæklingnum
strax í haust og setti þetta efst á sinn
óskalista fyrir jólin,“ segir Berglind
Björk Halldórsdóttir. „Ég vil auð-
vitað hafa allt fullkomið fyrir jólin
og lét afa hennar vita að þetta væri
hennar óskagjöf. Ég bauðst síðan til
að kaupa þetta fyrir hann. Ég var þó
ekkert að flýta mér en þegar ég ætl-
aði að kaupa þetta í nóvember, var
bara hlegið að mér í búðinni.“
„Fyrst fengum við 20 egg, en við
vissum ekkert hvað við vorum með
í höndunum en krakkarnir virtust
hafa þetta á hreinu. Þau fóru auð-
vitað strax og þegar við ætluðum
að panta meira voru þau uppseld
og því var skammtað í allar búðir i
heiminum,“ segir Sigurður Þorge-
ir Jónasson, verslunarstjóri í Toys
‘R’us, en einungis komu 120 eintök
til Íslands. Sigurður Þor geir segist
ekki hafa fest kaup á leikfanginu
sjálfur enda eigi hann ekki börn
á þessum aldri: „En mér finnst
þetta ótrúlega sniðugt. Þau þurfa
að hugsa um dýrið þar til það verð-
ur unglingur, sinna því og kenna.
Þetta er sniðugra en margir leikir
sem þau nota einu sinni og setja svo
inn í skáp.“
Í seinna skiptið, í byrjun des-
ember, komu hundrað egg. „Um
morguninn var komin biðröð við
allar verslanir. Þau fóru því strax,“
segir Sigurður Þorgeir.
Þeir sem létu sér ekki segjast
þurftu því að kaupa leikfangið á
netinu og reiða fram fúlgur fjár. „Ég
hef séð þetta auglýst til sölu á allt
að 40.000 á síðum eins og Ebay, en
þetta kostaði 11.000 út úr búð hér.“
Eigendurnir geta ekki valið lit á
leikfangið, liturinn verður að koma
þeim á óvart þegar unginn skríð-
ur úr egginu. Og það gerir hann
ekki nema eigandinn, nuddi eggið
og kreisti það og knúsi í svona 25
mínútur. Eftir það má búast við því
að fuglinn byrji að brjótast um og
brjóti af sér plastskurnina. Þegar
hann er kominn úr egginu, fer hann
í gegnum þrjú bernskuskeið með
eiganda sínum, sem þarf að annast
hann og kenna honum, en með tíð
og tíma lærir fuglinn að tala, syngja
og dansa. Að mörgu leyti minnir
fuglinn á tölvudýrið sem sló í gegn
meðal barna og unglinga á tíunda
áratugnum, en það þurfti að hugsa
um það eins og venjulegt gæludýr,
viðra það og gefa því að borða,
annars gaf það upp öndina.
Berglind Björk mætti í verslun-
ina skömmu eftir að hún opnaði og
greip í tómt. „Það var bara stór tóm-
ur kassi á gólfinu og pappír og um-
búðir fljótandi allt um kring eins og
það hefði gengið eitthvað mikið á,“
segir hún.
Hún segist ekki hafa fylgst von-
leysi heldur hafi hlaupið í hana
þrjóska, hún hafi lagst á netið og
ákveðið að sigrast á mótlætinu.
„Mig langaði að gefa henni þessa
gjöf sem hún bað um en ekki eitt-
hvað sem væri næstum því eins . Ég
sá þetta sumstaðar á mörg þúsund
dollara en það voru líka tilvik þar
sem þetta var bara boðið á tvöföldu
eða þreföldu verði. Ég var heppin og
fékk eintak, ég greiddi átta þúsund
krónum meira en ég hefði greitt
hérna heima. Tilfinningin þegar ég
tók við kassanum á pósthúsinu var
ótrúlega góð. Jólunum hafði verið
bjargað. Ég sagði afanum ekki hvað
hefði gengið á eða hvað ég hefði
þurft að borga mikið þegar upp
var staðið. Og svo verður auðvitað
rosalega gaman á aðfangadagskvöld
þegar hún tekur upp pakkann. En
ég er raunsæ, eftir nokkra klukku-
tíma verður hún sjálfsagt orðin leið
á þessu leikfangi. það endar fljót-
lega upp í skáp og gleymist.“
Þarf að ræða lýðræðið fyrr
Stjórnmál Stjórnmálaþátttaka
ungs fólks er mun lakari en hjá
eldri kynslóðum.
„Lýðræðisvitundin er ekki endilega
verri, það er frekar að hún sé að
breytast. Það eru margir kjósendur
sem samsvara sig ekki með þessu
kerfi og við horfum upp á almennt
dvínandi kjörsókn í landinu,“ seg-
ir Ásta Guðrún Helgadóttir, þing-
maður Pírata og annar yngsti þing-
maður Alþingis, en Hagstofan birti í
gær tölfræði sem sýnir að kosninga-
þátttaka ungs fólks er mun lakari en
þeirra sem eldri eru.
Alls kusu 74,1% landsmanna, en
af þeim greiddu 195.203 atkvæði
eða 79,2% kjósenda. Kosninga-
þátttaka meðal yngri kjósenda var
nokkuð minni en hjá þeim eldri.
Hún var minnst meðal kjósenda
á aldrinum 20-24 ára, en þar var
hún 65,7%. Mest var kjörsóknin hjá
kjósendum á aldrinum 65-69 ára,
en þar var hún 90,2%.
Ásta Guðrún segir dræma kosn-
ingaþátttöku ungs fólks eiga sér
margþættar skýringar. „Ungt fólk er
oft útskúfað úr pólitískri umræðu,
og þannig telur það sig ekki hafa
raunveruleg áhrif,“ útskýrir Ásta
sem bendir á að ungt fólk sé hápóli-
tískt, samanber samskiptamiðla-
byltingar svo sem Free the nipple.
Spurð hvort kosningaþátttaka sé
verri hjá ungu fólki vegna tækn-
innar, segist Ásta Guðrún ekki ætla
að svo sé, frekar að það þyrfti að
styrkja lýðræðisvitund ungs fólks,
meðal annars í grunnskóla. „Það
þarf að byrja samtalið um lýðræði
mun fyrr,“ segir Ásta Guðrún. | vg
Ásta Guðrún Helgadóttir.
„Fyrst fengum við 20 egg, en við vissum ekkert hvað við vorum með í höndunum
en krakkarnir virtust hafa þetta á hreinu. Þau fóru auðvitað strax og þegar við
ætluðum að panta meira voru þau uppseld og því var skammtað í allar búðir i
heiminum,“ segir Sigurður Þorgeir Jónasson, verslunarstjóri í Toys ‘R’ us.
„Tilfinningin þegar ég tók við kass-
anum á pósthúsinu var ótrúlega góð.
Jólunum hafði verið bjargað. Ég sagði
afanum ekki hvað hefði gengið á eða
hvað ég hefði þurft að borga mikið
þegar upp var staðið,“ segir Berglind
Björk Halldórsdóttir.
Dr. Phil bauð viðmælanda
sínum til Íslands
Sjónvarp Sjónvarpssálfræðingur-
inn Dr. Phil bauð Allison Belius
og fjölskyldu hennar til Íslands
en hún sagði harmsögu sína í
þættinum á þriðjudag. Kærasti
Belius myrti dóttur hennar árið
2011. Dr. Phil sagðist hafi komið til
Íslands áður og vildi hughreysta
hana með því að bjóða Belius til
landsins.
Í þættinum á þriðjudag sagði Belius
sögu sína en kærasti hennar, David
Tebilcock, missti vitið og myrti 6
ára dóttur hennar þar sem hún lá
í rúmi sínu við hlið tvíburasystur
sinnar árið 2011. Belius reyndi að
stöðva kærasta sinn og barðist við
hann í tuttugu mínútur. Hún hlaut
alvarlega áverka í átökunum. Dóm-
stólar í Bandaríkjunum komust að
þeirri niðurstöðu að Tebilcock væri
veikur á geði og því ekki hægt að
dæma hann í fangelsi. Belius gagn-
rýndi dóminn harðlega í þætti Dr.
Phil og óttaðist að fyrrverandi kær-
asti sinn myndi ganga laus innan
skamms.
Dr. Phil vildi gleðja viðmælanda
sinni í sorgarferlinu og afhenti
henni og fjölskyldu flugmiða til Ís-
lands yfir jólin. Flugferðin var í boði
WOW air og þakkaði Dr. Phil flug-
félaginu sérstaklega í þættinum.
„Haft var samband við okkur frá
sjónvarpsþættinum Dr.Phil og við
spurð hvort hægt væri að styrkja
þessa fjölskyldu. Okkur fannst það
meira en sjálfsagt, svona rétt fyr-
ir jólin. Sjálfur Dr. Phil hefur kom-
ið til Íslands og sagðist hann hafa
heillast mjög af íslenskri náttúru.
Þetta er mikil sorgarsaga og von-
um við að fjölskyldan njóti sín
þegar þau koma hingað til lands-
ins,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir,
samskiptastjóri WOW air. | þt
Dr. Phil bauð viðmælenda sínum til Íslands yfir jólin.