Fréttatíminn - 22.12.2016, Page 6
Grunur beinist að sömu konu
Sakamál Lögreglan á Suður
nesjum rannsakar tvær íkveikjur
í Reykjanesbæ sem tengd mál. Í
báðum tilvikum var eldur lagður
að eign sömu konunnar. Annars
vegar var reynt að kveikja í
fjölbýlishúsi við Hafnargötu í
Keflavík, þar sem konan býr, í
upphafi mánaðar og hins vegar
var kveikt í bíl hennar í sumar.
Í báðum tilvikum er íslensk kona
á fertugsaldri grunuð um verkn-
aðinn en konan sem íkveikjurnar
beinast að er í sambandi við fyrr-
verandi kærasta íslensku konunnar.
Jón Halldór Sigurðsson, lögreglu-
fulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesj-
um, segir í samtali við Fréttatím-
ann að rannsókn beinist enn að
konunni sem var handtekin í upp-
hafi mánaðar vegna íkveikjunnar
í Keflavík. Hann hefur áður sagt að
málið snúist um fyrrverandi sam-
býlinga sem skilja ekki sáttir. Konan
á ekki að baki sakaferil og hafnar
sök.
Hæglega hefði getað farið verr
í eldsvoðanum í Keflavík en ríf-
lega 20 manns búa í húsinu við
Hafnargötu. Átta manns voru flutt-
ir á slysadeild Landspítalans vegna
reykeitrunar. Eldur logaði á tveim-
ur stöðum, annars vegar í þvottavél
í sameiginlegu þvottahúsi og hins
vegar fatahrúgu á öðrum stað í hús-
inu. | hjf
Reynt var að kveikja í fjölbýlishúsi
við Hafnargötu. Mynd | Google
Konsúl Makedóníu
brugðið vegna sjálfsvígs
Hælisleitendur Alls hafa 625
einstaklingar frá Albaníu og
Makedóníu sótt um hæli hér á landi
á fyrstu ellefu mánuðum ársins.
Þar af 164 börn. Enginn þeirra
sem sótt hafa um hæli frá þessum
tveimur löndum hefur fengið hæli.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Langflestir hælisleitendur koma
frá Makedóníu, eða rúmlega 400
manns. Ungur maður frá Makedóníu
framdi sjálfsmorð fyrr í mánuðinum,
en konsúl Makedóníu er verulega
brugðið yfir því að landi hans hafi
gripið til slíkra örþrifaráða.
Konsúll Makedóníu hér á landi,
Saso D. Andonov, segir flóttann frá
Makedóníu margþættan, en þó sé al-
veg ljóst að íbúar sem þaðan flýja, séu
ekki að flýja harðræði stjórnvalda.
„Langflestir hælisleitendur, sem
hingað koma, eru af albönskum upp-
runa og sá hópur er oftast að leita að
vinnu eða betri tækifærum,“ útskýrir
Saso, en Makedónía hefur lengi ósk-
að eftir því að komast í Evrópusam-
bandið, nokkuð sem Grikkir hafa
ávallt komið í veg fyrir vegna nafna-
deilu þjóðanna. Saso segir að það sé
þörf á því að veita Makedónum at-
vinnuleyfi í anda samkomulags á
milli ESB ríkjanna, að hans mati gæti
það leyst vandann að stórum hluta.
Saso er harðorður í garð landa
sinna vegna ásóknar þeirra í hæli á
Vesturlöndum og segir meðal annars
ástæðuna vera að þeir sækist eftir því
að komast í betra velferðarkerfi, með-
al annars á Íslandi, þar sem dæmi eru
um að umsóknarferlið hefur tekið
um þrjú ár, eins og í tilfelli ungrar
makedónískrar fjölskyldu sem Frétta-
tíminn ræddi við síðustu helgi.
„Á tímabili fóru fjölmargir
Makedónar til Sviss því yfirvöld þar
borguðu hælisleitendum 500 sviss-
neska franka á mánuði (það gera
55 þúsund íslenskar krónur),“ segir
Saso. Þess má geta að mánaðarlaun
í Albaníu eru um 40 þúsund krón-
ur, og laun í Makedóníu eru á svip-
uðu róli.
Enginn deilir um að grunnástæð-
an fyrir flóttanum – sem er umfangs-
mikill – sé vegna bágra efnahagslegra
kjara í heimalandinu. Á síðasta ári
sóttu tæplega fjörutíu þúsund Alb-
anir um hæli í Þýskalandi á fyrstu
átta mánuðum ársins, en aðeins
Sýrlendingar voru fjölmennari.
Makedónar voru í áttunda sæti yfir
þær þjóðir sem sóttu um hæli í Þýska-
landi, en yfir tíu þúsund sóttu um
hæli árið 2015.
Bráðabirgðalög voru samþykkt á
Íslandi fyrr í vetur á Alþingi þar sem
Útlendingastofnun var gefin heim-
ild til þess að send hælisleitendur til
baka, ef í ljós kæmi að enginn grund-
völlur væri fyrir umsókninni. Lög-
in beinast meira eða minna að þess-
um 600 hælisleitendum, en bæði
Makedónía og Albanía eru skilgreind
sem örugg lönd í bókum Útlendinga-
stofnunar og þar af leiðandi er slík-
um umsóknum hafnað nánast sam-
stundis.
Þetta telur Saso mikilvægt og býst
hann við að straumur hælisleitenda
frá þessum tveimur löndum eigi efti
að snarminnka á næstu mánuðum.
Einnig vegna aðgerða ríkisstjórnar
Makedóníu, sem Saso segir að hafi
gert skurk í atvinnumálum í landinu.
„Ég er mjög bjartsýnn á framtíð
Makedóníu, og vonandi minnkar
straumurinn, enda er flóttamann-
straumurinn hingað ekki endilega
mælikvarði á ástandið í Makedóníu,“
segir Saso.
Spurður út í ungan hælisleitanda,
sem kveikti í sér sjálfum á Víðinesi í
byrjun desember og þá örvæntingu
sem slíkt athæfi ber með sér, svar-
ar Saso:
„Þetta var hrikalegur atburður, ég
var í sjokki, og vantrúaður á að ein-
hver frá Makedóníu skyldi gera þetta.
En ég hef engin svör um ástæðu þess
að hann gerði þetta,“ segir Saso, en
íslenskir fjölmiðlar greindu frá því
að maðurinn, sem var á þrítugsaldri,
hefði framið sjálfsmorð vegna sál-
rænna kvilla. Í makedónískum fjöl-
miðlum er greint frá því að hann hafi
kveikt í sér eftir að umsókn hans var
hafnað.
Konsúll Makedóníu hér á landi, Saso
D. Andonov, segir flesta flóttamennina
af albönskum uppruna og að þeir leiti
ýmist í velferðarkerfið eða atvinnu
tækifæra.
6 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
Jólagjöf gr i l lmeistarans
Hamborgarapressa Kjúklingastandur
Gerðu þína eigin
gæða hamborgara
Fjöldi grilla á Jólatilboði
Pizzusteinn
Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
www.grillbudin.is
15”
Spaði og
skeri fylgja
Fyrir grill og ofna
Þráðlaus kjöthitamælir
JÓLATILBOÐ
5.990
VERÐ ÁÐUR 8.990
Stilltu á
tegund og steikingu
Mælirinn lætur þig vita
þegar maturinn er tilbúinn
Fyrir grill og ofna
JÓLATILBOÐ
4.990
VERÐ ÁÐUR 7.990
JÓLATILBOÐ
1.990
VERÐ ÁÐUR 2.490
JÓLATILBOÐ
2.990
VERÐ ÁÐUR 3.990
JÓLATILBOÐ
149.900
VERÐ ÁÐUR 169.900
LED útisería að
verðmæti kr. 8.990
fylgir öllum grillum
til jóla
Niðurfellanleg
hliðarborð
EGGIÐ
Large
Alvöru grill fyrir
metnaðarfulla
grilláhugamenn
Opið virka daga kl. 11-18
Opið aðfangadag kl. 10-12
3.900 KR.
1 par
6.900 KR.
3.450 parið
2 pör
9.900 KR.
3.300 parið
3 pör
Afgreiðslutími sjá
www.dorma.is
Holtagörðum, 512 6800
Smáratorgi, 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
Aðeins 9.900 kr.
Notalegar og
hlýjar jólagjafir
Komdu í Dorma
TVENNUTILBOÐ
Dúnsæng og dúnkoddi
Sæng 140x200 cm. 85% smáfiður
og 15% hvítur andadúnn. 100% bómullarver.
Fullt verð: 9.900 kr
Koddi 50x70 cm. 70% smáfiður
og 30% hvítur andadúnn. 100% bómullarver.
Fullt verð: 4.900 kr.
Fullt verð samtals: 14.800 kr.
ÓTRÚLEGT
jólatilboð
Dúnsæng + dúnkoddi
Inniskór sem laga sig að fætinum
og dreifa þyngd jafnt um allt
fótasvæðið. Ný og
endurbætt útgáfa!
HINIR MARGRÓMUÐU
Memory Foam heilsuinniskór