Fréttatíminn - 22.12.2016, Side 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Borghildur Guðmunds-dóttir skráði sögu sína í bókinni Ég gefst aldrei upp, sem kom út árið 2012. Núna fjórum árum
seinna er fyrrverandi eiginmaður
hennar og faðir barnanna hins-
vegar kominn til landsins í henn-
ar boði til að eyða jólunum með
drengjunum sínum. „Ég bauð hon-
um að koma og vera með drengj-
unum, sem eru 12 og 17 ára í dag,
í íbúðinni minni yfir jólin en þeir
hafa ekki sést í 6 ár. Hann verður
hérna í tíu daga og fær því nægan
tíma til að kynnast þeim og vinum
þeirra og setja sig inn í þeirra dag-
lega líf,“ segir Borghildur.
Áfallastreita eftir Íraksstríðið
Borghildur hafði fullan sigur
gegn barnsföður sínum og fyrr-
verandi eiginmanni, Richard Colby
Busching, í erfiðri forræðisdeilu,
sem lauk með dómi yfirréttar úti í
Bandaríkjunum árið 2011.
Hann hafði snúið aftur úr Íraks-
stríðinu með áfallastreitu og missti
ítrekað stjórn á skapi sínu á heimili
þeirra í herstöð í Kentucky.
Barátta Borghildar fyrir drengj-
unum sínum var afar tvísýn en
það fór svo að hún hafði fullan
sigur í málinu en það segir hún
nánast einsdæmi. „Við bjuggum í
stóru samfélagi hermanna og fjöl-
skyldna þeirra og þegar þú kemur
inn í þannig umhverfi í Bandaríkj-
unum þá er auðvitað engin spurn-
ing í hvaða átt almenningsálitið og
jafnvel lögin hallast.“
Eiginlega alsæla
„Strákarnir hafa verið mjög stillt-
ir og hljóðir síðan þetta kom fyrst
til umræðu og stillt öllum vænting-
um í hóf. Þeir þorðu ekki að trúa
því að þetta yrði að veruleika fyrr
en við fréttum að flugvélin væri
farinn í loftið úti í Bandaríkjunum.
Fengu pabba
sinn í jólagjöf
Eftir að hatrömm forræðisdeila hafði verið til
lykta leidd mátti hermaðurinn Richard Colby
Busching hafa syni sína hjá sér í skólafríum en
missti samt samband við þá. Hann hefur nú
ekki séð drengina árum saman. Það var því
tilfinningaþrungin stund í Leifsstöð á þriðjudag
þegar drengirnir fengu pabba sinn í jólagjöf.
Síðustu nóttina sváfu þeir þó ekk-
ert fyrir spennu.“
Þegar drengirnir hittu Richard
á flugvellinum á þriðjudag báru
tilfinningarnar þá ofurliði og þeir
fleygðu sér í fangið á pabba sín-
um. „Þetta var eiginlega alger al-
sæla,“ segir Borghildur. „Andy, sá
yngri, hoppaði og skoppaði kring-
um pabba sinn og ætlaði að segja
honum allt um sjálfan sig á sem
stystum tíma. Brian, sá eldri, fór
að gráta og sagði bara: Í þetta skipti
kom hann, mamma. Þá leið mér
vel, það fannst mér rosalega gott.“
Richard, faðir drengjanna, seg-
ist í samtali við Fréttatímann, hafa
verið afar spenntur fyrir ferðina
til Íslands og lítið hafa sofið. „En
það er gott að vera kominn hingað
aftur og sjá strákana sem eru ekki
lengur lítil börn heldur unglingar.“
Hann segir að þeir hafi notað tí-
mann til að slappa af saman, rifja
upp gamlar minningar og njóta
samverunnar. Og hann er sáttur
við að strákarnir alist upp hér á
landi. „Það er auðvitað erfitt fyr-
ir mig að sjá þá svona lítið en ég
er viss um að það er betra fyr-
ir þá. Ísland er töfrum líkast fyr-
ir mig en ég bjó hérna í þrjú ár á
tíunda áratugnum og þykir mjög
vænt um landið. Ég held að þeir
eigi meiri möguleika á því að vera
góðir einstaklingar hér en í Banda-
ríkjunum. Þar er sumstaðar gott að
vera en ekki allsstaðar. Ég er ekki á
þeim stað núna að geta boðið þeim
öryggi. Ég er glaður að þeir séu hér
þótt ég sakni þeirra auðvitað mik-
ið.“
Hin harðvítuga forrræðisdeila
tók sinn toll og öll hafa þau þurft
aðstoð sálfræðinga um lengri eða
skemmri tíma til að ná sér.
Eftir harðvítuga forræðis-
deilu, sem varð til þess að
feðgarnir hafa ekki sést í 6
ár, fengu drengirnir pabba
sinn í jólagjöf. Þeir ætla að
eyða með honum jólunum
á heimili sínu í Keflavík.
Mynd | Hari
„Strákarnir hafa verið
mjög stilltir og hljóðir
síðan þetta kom fyrst til
umræðu og stillt öllum
væntingum í hóf. Þeir
þorðu ekki að trúa því að
þetta yrði að veruleika
fyrr en við fréttum að
flugvélin væri farinn í loft-
ið úti í Bandaríkjunum.“SÉRTILBOÐ 21.-28. JANÚAR / FRÁBÆRT HÓTEL
Skelltu þér á skíði á flottu verði
Brottfarir í vetur frá 14. janúar til 25. febrúar
NÁNAR Á UU.IS
Innifalið er flug, gisting, skattar, íslensk fararstjórn, taska og handfarangur.
VERÐ FRÁ
153.900 KR.
M.V. 2 FULLORÐNA, 1 BARN OG HÁLFU FÆÐI
MADONNA - ÍTALÍA
SKÍÐAFERÐIR Í VETUR