Fréttatíminn - 22.12.2016, Síða 21
J.S. Bach
JÓLAÓRATÓRÍAN
I-III BWV 248
29. DESEMBER FIMMTUDAGUR KL. 20 - 30. DESEMBER FÖSTUDAGUR KL. 17
JÓLATÓNLISTARHÁTÍÐ HALLGRÍMSKIRKJU 2016
Eitt dáðasta jólaverk allra tíma flutt á hátíðartónleikum í tilefni af 20 ára afmæli Schola cantorum (1996 - 2016).
Þrír einsöngvaranna eru meðlimir kórsins en með hlutverk guðspjallamannsins fer Benedikt Kristjánsson, sem
nú er eftirsóttur á þessu sviði um allan heim.
Flytjendur: Schola cantorum og Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju.
Einsöngvarar: Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran, Hildigunnur Einarsdóttir alt, Benedikt Kristjánsson
tenór og Fjölnir Ólafsson bassi.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Miðaverð: 9.500 kr. (úrvalssæti), 6.500 kr. (almenn sæti), 50% afsláttur af lægra verði fyrir nemendur, öryrkja og
félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.
Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrimskirkju (áður Den Haag) er skipuð afburðahljóðfæraleikurum sem flestir hafa stundað
nám við konunglega tónlistarháskólann í Haag. Barokksveitin hefur margsinnis komið hingað til lands á undanförnum árum
og flutt stórvirki barokktímans með kórum Hallgrímskirkju og hefur jafnan hlotið ríkulegt lof gagnrýnenda og áheyrenda
fyrir leik sinn. Konsertmeistari er Tuomo Suni fiðluleikari frá Finnlandi.
Schola cantorum, sem í ár fagnar 20 ára afmæli sínu, hefur frá upphafi hlotið mikla athygli fyrir fágaðan og tæran söng
sinn. Kórinn hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og unnið til verðlauna í erlendum keppnum og komið fram á tónleikum
og tónlistarhátíðum víða um Evrópu og í Japan. Ný geislaplata kórsins MEDITATIO, gefin út af BIS í Svíþjóð, hefur hlotið
frábærar viðtökur og hástemmt lof hjá erlendum gagnrýnendum. Stjórnandi kórsins frá upphafi er Hörður Áskelsson.
Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson,
Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson,
Eggert Pálsson pákuleikari og Björn St.
Sólbergsson leika hátíðarverk eftir J.S.
Bach, Albinoni, o fl. barokkmeistara.
Einir vinsælustu tónleikar ársins, þ.s.
hátíðarhljómar þeirra félaga koma öllum í
áramótaskapið!
Miðaverð 3.900 kr. 50% afsláttur fyrir
nemendur, öryrkja og félaga í Listvinafélagi
Hallgrímskirkju.
Hátíðarhljómar við áramót
31. desember Gamlársdagur kl. 16.30
(ath breyttan tíma)
Miðasala er í Hallgrímskirkju s. 510 1000 og á TIX.IS.
LISTVINAFELAG.IS - SCHOLACANTORUM.IS