Fréttatíminn - 22.12.2016, Side 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
Sigrún Ruth López Jack er ein
af fjögur hundruð Sjöunda dags
aðventistum á Íslandi. Hún er
alin upp í skipulögðu kirkjustarfi
og hefur lifað fyrir guð síðan hún
var 19 ára.
„Ég ólst eiginlega upp í kirkju Sjö-
unda dags aðventista því mamma
mín var aðventisti. Pabbi minn
varð það reyndar ekki fyrr en ég
varð unglingur en það var hluti af
minni æsku að taka þátt í skipu-
lögðu kirkjustarfi og lesa í Biblí-
unni. Ég gerði það samt aðallega
vegna þess að mamma vildi að ég
gerði það. Ég hafði enga sérstaka
þörf fyrir það sjálf. Þetta var eitt-
hvað sem við fjölskyldan gerðum
og engin sérstök ástríða hjá mér.
Þegar ég var fimmtán ára ákvað ég
að skírast, og það var líka vegna
þess að mér fannst ég þurfa að gera
það. Ég hafði hinsvegar oft heyrt
að það væri nauðsynlegt að eiga
persónulegt samband við Jesú og
þó ég trúði frásögnum fólks af
þeirra trú, þá hafði ég aldrei upp-
lifað það sjálf. Það var ekki fyrr en
ég var nítján ára gömul að þetta
breyttist. Þá varð trúin mín raun-
veruleg og ekki til komin af því að
mamma eða einhver annar vildi
það. Síðan hefur ekki verið aftur
snúið.“
Sigrún segist hafa fundið fyrir
vendipunkti áramótin 2012-2013,
þegar hún var stödd á hóteli í
Seattle í Bandaríkjunum. „Á þess-
um tíma var ég með allskonar áætl-
anir um allt sem mig langaði til að
gera í lífinu. Ekki endilega það sem
guð vildi að ég gerði. Ég sá lífið fyr-
ir mér með ákveðnum hætti. For-
eldrum mínum fannst ég þurfa að
taka trú mína alvarlega og ég hafði
oft fengið leiðbeiningar frá þeim
um hvernig væri hægt að gera það.
Lifir fyrir guð
Þau sögðu mér til dæmis að ég gæti
leitað til guðs og beðið hann um
hjálp. Svo ég ákvað að prófa það.
Ég bað hann um að hjálpa mér að
skilja hann, um að gefa mig hon-
um og helga honum líf mitt. Þessi
sérstöku áramót fann ég að það
gerðist eitthvað innra með mér. Ég
fann að mig langaði ekki lengur til
að lifa bara fyrir sjálfa mig. Ég sá
engan tilgang með lífinu án þess
að hafa guð. Upp frá þessu ákvað
ég að lifa fyrir guð, ekki bara fyrir
sjálfa mig.”
Varð miklu hamingjusamari
Sigrún segir svo margt hafa breyst
eftir þessi sérstöku áramót. „Mér
finnst ég miklu hamingjusamari.
Ég var oft svo neikvæð og þarna
fann ég hvað ég varð miklu já-
kvæðari. Þegar maður hættir að
hugsa um að lífið snúist bara um
sjálfan sig. Því það er enginn sem
ég get reitt mig alfarið á, og mun
aldrei bregðast mér, nema guð.
Þegar allt fer úrskeiðis og það er
engin ástæða til að vera hamingju-
samur, þá hef ég guð – og þar með
ástæðu til að vera hamingjusöm.
Svo öðlast maður einhvernvegin
aðra sýn á heiminn og sér hann frá
öðru sjónarhorni þegar maður hef-
ur guð.“
–Og á hvað trúir þú?
„Ég trúi á Krist. Ég trúi á Biblí-
una. Ég trúi eitt hundrað prósent
að Biblían sé orð guðs. Og að það
sem hún segir, hvert einasta orð,
sé innblásið af guði.“
Ekki erfitt að tengja við Biblíuna
–Finnst þér ekkert erfitt að túlka
hana eða tengja við atburðina sem
hún fjallar um?
„Nei, mér finnst ótrúlega merki-
legt að svona gömul bók hafi enn
svona sterk áhrif á fólk og geti
breytt lífi þess. Biblían er mest
selda bók í heimi enn í dag. Það
hlýtur að vera vegna þess að það
er hægt að tengja við sögurnar
og fólkið sem var uppi á þessum
tíma. Það er auðvitað margt flók-
ið í henni, eins og spádómar og
svona. En hún útskýrir sig sjálf og
ef maður rýnir vel í hana, og með
guðs hjálp, þá lærir maður alltaf
eitthvað nýtt.“
–Þannig að þegar fólk les Arnald
og Yrsu um jólin, þá lest þú Bibl-
íuna? „Já, ég les hana á hverjum
degi. Ég hef gert það í mörg ár,“
segir Sigrún og hlær.
–Hvernig lestu bók sem þú hefur
lesið svona oft áður?
„Stundum ákveð ég að mig
langar að læra meira um einhverja
ákveðna bók, eða ákveðna lexíu.
Í alþjóðakirkju sjöunda dags að-
ventista, fáum við ákveðið efni
sem allir aðventistar í heiminum
fara yfir á sama tíma. Þeir eru um
tuttugu milljónir. Svo ræðum við
um lexíuna í hvíldardagsskólanum
þegar við hittumst á laugardögum.
Þá er mjög skemmtilegt að tala við
fólk sem er búið að vera pæla í ná-
kvæmlega sömu hlutunum alla vik-
una.“
Hvíldardagarnir framandi öðrum
Sigrún segir að í kirkju Sjöunda
dags aðventista fái hún auk þess
verkefni fyrir hvern dag. Hún sé
því virkur iðkandi og í því felist
ákveðin menning sem hún kann
vel við. „Svona lifi ég bara og það
er ýmislegt sem ég geri ekki, eða
segi ekki, þó að allir hinir geri
það. Ég reyni að vera jákvæð og
láta gott af mér leiða. Það er mikil-
vægur hluti af því að vera kristinn,
að deila trúnni og segja óhræddur
frá henni. Ég reyni að gera það og
mér finnst spennandi þegar fólk
er móttækilegt. Stundum rekst ég
á fólk sem kannski var með mér í
skóla, sem trúir en þorði aldrei að
segja frá því. Flestir halda að öðr-
um þyki það asnalegt. Ég held að
mjög mörgum þyki trúin áhuga-
verð. Gagnrýnisraddirnar eru bara
háværari.“
–Upplifir þú að það geti verið
erfitt að vera aktífur kristinn?
„Nei, því þegar þú iðkar trúna
þá veistu að hún skiptir meira máli
en álit annarra. En það getur verið
erfitt að hafa skoðanir sem stang-
ast á við skoðanir fjöldans.“ Hún
viðurkennir þó að stundum hafi
hún skorið sig úr hópnum fyrir að
vera aðventisti. „Til dæmis vegna
hvíldardaganna. Ég vinn ekki á
laugardögum, ég fer ekki í skól-
ann, tek ekki próf, versla eða geri
neitt sem veldur stressi og áhyggj-
um. Það olli því stundum að ég tók
ekki þátt í mótum þó ég væri að
æfa badminton og sumum fannst
það kannski skrítið. Ég fer í kirkju
á hvíldardögum. Eftir það förum
við stundum saman í göngutúra
út í náttúruna, borðum saman um
kvöldið og njótum samveru með
fjölskyldu og trúsystkinum. Ég held
að þó að einhverjum hafi fund-
ist það skrítið, hafi ég bara orðið
sterkari fyrir vikið og er þakklát
fyrir það í dag.“
–Hvernig er samband þitt við
Jesú?
„Það er stöðugt og það er alltaf.
Ég reiði mig mjög mikið á hann.
Lífið kastar alltaf einhverju í mann
og þá verð ég að hafa Jesú. Ég á
auðvitað margar fyrirmyndir sem
láta gott af sér leiða og lít sennilega
mest upp til mömmu minnar fyrir
það. En Jesús er algjör „utlimate“
fyrirmynd.“
Sigrún Ruth López Jack segir Jesú vera sína helstu fyrirmynd í lífinu. Myndir | Hari
„Ég fann að mig langaði ekki lengur til að lifa bara fyrir sjálfa mig. Ég sá engan
tilgang með lífinu án þess að hafa guð.“
„Þegar þú iðkar trúna
þá veistu að hún skipt-
ir meira máli en álit
annarra. En það getur
verið erfitt að hafa skoð-
anir sem stangast á við
skoðanir fjöldans.“
Vissir þú að Gunnar B. Eydal er bróðir þeirra landskunnu
tónlistarmanna, Ingimars og Finns? Hann lærði lögfræði
og var skrifstofustjóri borgarstjórnar í 30 ár
og starfaði með 12 borgarstjórum.
Glefsurnar hans Gunnars eru mjög forvitnilegar.
Fæst í bóka-
verslunum
um land allt