Fréttatíminn - 22.12.2016, Síða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
Vinsælustu rafmagnstækin 2016
Sodastreamtæki og
blandari Óvæntustu
hástökkvarar ársins
Fréttatíminn hafði samband við nokkrar af raftækjaverslunum bæjarins
til að komast að því hvað landinn er að kaupa í hörðu jólapakkana þetta
árið. Sum tæki eru löngu orðin klassíkerar á meðan aðrir eru óvæntir
hástökkvarar.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Allir geta verið kokkar
„Þetta tæki hefur verið þekkt á
veitingastöðum í mörg ár en kom til
almennings í fyrra og er að springa
út núna. Við vorum vel birg fyrir
törnina en salan var svo mikil að
við urðum að fljúga inn með hraði
einni sendingu í lokin sem er líka
við það að seljast upp,“ segir Hlíðar
Þór Finnsson, framkvæmdastjóri
Heimilistækja. Varan sem um ræðir
er Sous Vide hitatækið sem sett er í
pott með vatni til að hægelda og fá
jafna eldun á steikur eða fisk. Vin-
sælasta tækið kostar 18.000 kr.
Meira gos og minna plast
Eftir að Sodatream auglýsingin
með Hafþóri Júlíusi Björnssyni,
eða Fjallinu, var birt um allan heim
hefur sala á tækjunum margfald-
ast hérlendis og erlendis. Auglýs-
ingaherferðin leggur áherslu á að
minnka plastnotkun með því að
gera sitt eigið gosvatn en auk þess
leggur fyrirtækið áherslu á hollustu
gosvatnsins en ekki líkindi með
sykurdrykkjum líkt og gert var á ní-
unda áratugnum. Hlíðar Þór, fram-
kvæmdastjóri Heimilistækja, segir
Sodastreamið hafa tekið gríðarlegan
kipp fyrir jólin, tækin séu að seljast
upp í öllum litum, þökk sé auglýs-
ingunni.
Hástökkvari ársins
Íslendingar hafa alltaf verið hrifnir
af rafmagnstækjum sem eiga að ýta
undir heilbrigðari lífsstíl og kemur
því kannski ekki á óvart að blandari
og heilsuúr séu vinsælustu tækin
þetta árið. Blandarar seljast grimmt
í öllum heimsins litum og merkjum í
öllum vinsælustu verslunum lands-
ins og segir Óttar Örn Sigurbergs-
son, innkaupastjóri hjá Elko, hann
klárlega vera hástökkvara ársins.
Verð á blöndurum er jafn misjafnt
og þeir eru margir, frá 15.000 og upp
í 40.000 krónur.
Finndu barnið þitt
Sala á heilsu- og snjallúrum hefur
aukist jafn og þétt síðustu tvö ár en
þau hafa aldrei selst jafn vel og þetta
árið. Úrin eru til í öllum stærðum og
gerðum og kosta frá 8-75.000 krónur
en í ár eru snjallúr fyrir börn sér-
staklega vinsæl. Barnaúrin eru með
innbyggðu staðsetningartæki, sos-
hnappi og aðeins er hægt að hringja
í nokkur leyfileg númer.
Óvæntar vinsældir
Eftir að hafa þurft að þola
geisladiskinn í nokkur ár er fólk far-
ið að leita aftur á náðir plötunnar.
Það eru ekki lengur bara sérvitrir
grúskarar sem vilja setja tónlist und-
ir nálina því plötuspilarar hafa tekið
óvæntan sölukipp þetta árið, sala
á þeim hefur til dæmis tvöfaldast í
Elko frá því í fyrra.
Klassíkerar
Playstation er gríðarlega vinsæl gjöf
en vinsældirnar koma verslunar-
fólki ekki á óvart enda verið ein vin-
sælasta jólagjöfin í nokkuð mörg ár.
Eða eins og einn viðmælandi okkar
sagði; „Playstationtölva er klassíker,
það er bara þannig.“
Verð á Playstation 4 tölvu er um
50.000 kr.
Sala á símum er alltaf mikil en
eykst gríðarlega í desember og er
orðin að öðrum klassíker í harða
pakkann.
Jóladagskráin í nýju tæki
Sjónvörpin mokast úr verslunum í
ár eins og alltaf fyrir jólin. Elko gerði
könnun á viðskiptavinum í nóvem-
ber þar sem í ljós kom að tæp 40%
vildu nýtt sjónvarp í jólagjöf en fast
á hæla þess komu símar og leikja-
tölvur.
Verslunarmenn segja fólk al-
mennt vera að fara í stærri og stærri
skjái og eru til að mynda flestir 65
tommu skjáir uppseldir í Heimilis-
tækjum. „Sjónvarp er það sem fólk
óskar sér þó það sé nú ekki það sem
það endilega fær, en það eru margir
sem vilja sjá jóladagskrána í nýju
tæki,“ segir Óttar Örn Sigurbergs-
son, innkaupastjóri Elko.
VIÐ
FÆRUM
ÞÉR
HEIMINN
GEFÐU ÓGLEYMANLEGT
FRÍ MEÐ WOW AIR
Nú á einhver von á góðu. Gjafabréf WOW air gilda í eitt
ár til allra áfangastaða okkar. Þú velur þá upphæð sem
þú vilt og gildir hún sem greiðsla inn á ferð út í heim
með WOW air. Gjafabréfið er svo sent til kaupanda eða
viðtakanda, hvort sem hentar betur. Nánar á wowair.is.
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS