Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 22.12.2016, Page 34

Fréttatíminn - 22.12.2016, Page 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016 Staða jafnaðarmanna á sér enga hliðstæðu í sögunni Guðmundur Ari Sigurjónsson ritstjorn@frettatiminn.is Það eru áhugaverðir tímar uppi hjá jafnaðarmönnum úti um allan heim og ekki síður hér á landi. Í nýlegum alþingiskosningum hlaut Samfylkingin - jafnaðarmanna- flokkur Íslands 5,7% greiddra at- kvæða og náði þar með aðeins þremur sætum á þingi. Allt þetta á sér stað á 100 ára afmælisári Alþýðuflokksins sem var einn af þeim flokkum sem kom að stofn- un Samfylkingarinnar. Undirrituð- um, sem var í framboði fyrir Sam- fylkinguna, fannst því liggja vel við að taka viðtal við Guðjón Friðriks- son sagnfræðing sem nýlega gaf út sögu Alþýðuflokksins í veglegri bók sem ber heitið Úr fjötrum. Í bók- inni er sögu Alþýðuflokksins lýst í máli og myndum, helstu sigrar, átök og endurtekinn klofningur innan flokksins. Ég hitti Guðjón á heimili hans til að ræða bókina og spegla stöðu jafnaðarmanna í dag við söguna. Heill og sæll og innilega til hamingju með bókina. Þetta er ansi vegleg bók, tæplega 600 síður í stóru broti. Ef þú ættir að draga þessa sögu saman, um hvað fjallar saga Alþýðuflokksins? Takk fyrir það, þessi saga hefst í þeirri gríðarlegu breytingu sem á sér stað í upphafi síðustu aldar. Þá allt í einu hefst hér iðnvæðing og það verða gríðarlegar breytingar þegar samfélagið er að breytast úr frekar einsleitu bændasamfélagi yfir í bæjar- og borgarsamfélag. Hingað streymir fólk á mölina til að vinna verkamannavinnu og sjómennsku á skútum og togur- um. Svo gerist það í fyrri heims- styrjöldinni að það verður gríðar- leg verðbólga en kaupið lækkar á sama tíma enda var nóg framboð af vinnuafli. Við þessar aðstæður verður til gríðarlega stór hópur af fólki sem var í raun réttindalaus og búa margir við sárustu neyð. Það ríkir mikill húsnæðisvandi og fólk neyðist til að hírast í kjallarahol- um, skúrum og hanabjálkum. Menn fóru þá að sjá að það varð að gera eitthvað í þessu og að al- þýðan yrði að beita sér á hinum pólitíska vettvangi. Það eru reynd- ar menntamenn sem beita sér að vissu leyti að stofnun flokksins. Jónas frá Hriflu, sem segja má að sé faðir íslenska flokkakerfisins, hafði sterka sýn á að flokkakerfið hér á landi ætti að vera eins og í öðrum löndum og skrifar hann grein þar sem hann lýsir því hvernig kerfið ætti að vera uppbyggt. Hann taldi að það ætti að vera einn flokkur at- vinnurekenda og efnamanna, svo átti að vera flokkur alþýðunnar á mölinni, það er að segja flokkur sjómanna og verkamanna. Þriðji flokkurinn átti svo að vera flokk- ur alþýðumanna í sveitum. Jónas vindur sér í að setja þessa sýn í framkvæmd og á í raun mikinn þátt í stofnun Alþýðuflokksins árið 1916 og svo Framsóknarflokksins sama ár. Þetta er auðvitað fyrir- mynd frá útlöndum en það höfðu margir Íslendingar kynnt sér fyr- irkomulag sósíaldemókrataflokka á Norðurlöndunum en þar voru þeir orðnir sterkir og rótgrónir árið 1916. Guðmundur Ari Sigurjónsson bauð sig fram sem formann Samfylkingarinnar fyrir á árinu. Hann er ungur jafnaðarmaður af Seltjarnarnesi og hefur horft á þennan flokk, arftaka Alþýðuflokksins og farveg sósíaldemókratíunnar á Íslandi, verða nánast að engu á örfáum árum, árunum sem Guðmundur Ari hefur verið að fóta sig í stjórnmálaþátttöku. Til að skilja það sem gengið hefur á fór hann á fund Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings, sem var að senda frá sér hundrað ára sögu Alþýðuflokksins og jafnaðarmennsku á Íslandi. Saga Alþýðuflokksins er síðan ofboðsleg átakasaga og má segja að oft hafi verið mikið hatur á milli fylkinga í flokknum sem klofnaði fimm sinnum alvarlega. Hvert fóru jafnaðarmennirnir? Guðmundur Ari ræðir við Guðjón Friðriksson, rithöfund og sagnfæðing.Myndir | Hari

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.