Fréttatíminn - 22.12.2016, Page 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
Klofnaði fimm sinnum
Saga Alþýðuflokksins er síðan of-
boðsleg átakasaga og má segja að
oft hafi verið mikið hatur á milli
fylkinga í flokknum sem klofnaði
fimm sinnum alvarlega. Fyrst voru
kommúnistarnir innan borðs en
þeir mynduðu vinstri andstöðu í
flokknum en síðan er Kommúnista-
flokkur Íslands stofnaður árið 1930
og þá klofnar Alþýðuflokkurinn í
fyrsta sinn.
Síðan gerist það að Kommúnist-
arnir verða ansi öflugir og verka-
lýðshreyfingin verður á kreppuár-
unum mjög hlynnt þeim. Einn af
leiðtogum Alþýðuflokksins, verka-
lýðsforinginn Héðinn Valdimars-
son, vildi sameina þessa flokka
aftur og þar er talað um að mynda
Samfylkingu. Héðinn var mjög
ósáttur við það að Alþýðuflokks-
menn vildu ekki sameiningu sem
verður til þess að árið 1938 gengur
hann úr flokknum með hópi fólks
sem sameinast Kommunum og það
er stofnaður Sósíalistaflokkurinn –
Sameiningarflokkur alþýðu.
Þriðji klofningurinn kemur í
kjölfarið á deilum um samstarf
við Sjálfstæðisflokkinn en Alþýð-
uf lokkurinn starfaði með Sjálf-
stæðisflokknum í Þjóðstjórninni
1939 og svo aftur eftir stríð. Það
mynduðust í raun tvær fylkingar í
flokkum, Reykvískir og hafnfirsk-
ir kratar á móti landsbyggðinni. Á
landsbyggðinni vildu flestir ekkert
samneyti við Sjálfstæðisflokkinn.
Þetta endar með því að árið 1952
er Stefáni Jóhanni Stefánssyni, sem
var formaður flokksins, velt og Ís-
firðingurinn Hannibal Valdimars-
son kosinn formaður. Þetta verða
alveg ofboðsleg átök og þeir sætta
sig ekki við þetta Stefán og félagar
svo Hannibal er velt aftur tveim-
ur árum seinna, það er einfaldlega
safnað liði. Þetta verður svo til þess
Hannibal gengur til samstarfs við
Sósíalistaflokkinn og stofnað er Al-
þýðubandalagið.
Fjórði klofningurinn er svo árið
1983 þegar Vilmundur Gylfason
stofnar Bandalag jafnaðarmanna
og sá fimmti var svo þegar Jóhanna
Sigurðardóttir stofnar Þjóðvaka
1995.
Alþýðuf lokkurinn gekk líka í
gegnum miklar hugmyndafræði-
legar breytingar og var það í anda
sósíaldemókrataf lokka annars
staðar því upprunalega var þetta
þjóðnýtingar flokkur og marxískur
í hugsun. Það eru svo sænskir krat-
ar sem fara að breyta þessu og telja
að það geti alveg samrýmst stefnu
jafnaðarmanna að einkaframtak sé
við hliðina á opinberum rekstri. Á
stríðsárunum er Marxisminn eigin-
lega tekinn út og menn fara leggja
áherslu á blandað hagkerfi. Hug-
myndafræðin fer þá eiginlega að
verða meiri siðferðislegur boðskap-
ur, að kratarnir eigi að sjá um að
velferðarkerfið sé í lagi og að gæta
hagsmuna almennings í samlífi
með einkaframtakinu.
En það breyttist þó ekki að
flokkar eins og Sjálfstæðisflokkur
og Framsóknarflokkur voru með
hagsmuni framleiðenda, bænda
og sjávarútvegsins í forgrunni en
Alþýðuflokkurinn gætti hagsmuna
almennings. Það var alltaf megin-
hugmyndafræði Alþýðuflokksins
að sjá til þess að hérna væri allt í
lagi með almannatryggingakerfið
og félagslega þjónustu hverskyns.
Rofin tenging við verkafólk
Ég má til með að spyrja þig hvenær
eða hvernig það gerðist að flokkur
jafnaðarmanna missti þessa sterku
tengingu við verkafólk? En eins og
kannanir sína þá eru helstu stuðn-
ingsmenn Samfylkingarinnar há-
skólamenntað fólk á miðjum aldri.
Já, það er alveg rétt. Samfélagið
hefur náttúrulega breyst svo gíf-
urlega mikið. Það er komin hérna
gríðarlega stór og vel mennt-
uð millistétt og hópar ófaglærðs
fólks er orðinn miklu fámennari.
Mér finnst í raun Samfylkingin
að mörgu leyti bara vera flokk-
ur menntafólks. Það er mjög lítil
og kannski enginn tenging við
verkalýðshreyfinguna. Það má nú
reyndar segja að kannski er verka-
lýðshreyfingunni líka stjórnað af
menntafólki en ekki þeim sem eiga
þar mest heima. Þannig að það er
bara liðin tíð að hér sé sérstakur
flokkur verkamanna og sjómanna
í raun og veru.
Er einhver tímapuktur í sögunni
sem þetta breyttist eða breytist þetta
hægt og rólega með samfélaginu?
Kannski á nú Alþýðuflokkurinn
mikinn þátt í þessari breytingu af
því að á dögum Viðreisnarstjórn-
arinnar, þegar Alþýðuflokkurinn
var í stjórn með Sjálfstæðisflokkn-
um, þá beitti Gylfi Þ. Gíslason, þá-
verandi formaður, sér fyrir gjör-
breytingu á skólakerfinu. Gylfi
beitti sér fyrir því að fjölga fram-
haldsskólum og að greiða fyr-
ir því að sem flestir gætu farið í
nám. Háskóli Íslands var stórefld-
ur sem og Lánasjóður íslenskra
námsmanna sem varð til þess að
miklu fleiri gátu farið til útlanda
og lært í erlendum háskólum. Það
Alþýðuflokkurinn gekk
líka í gegnum miklar
hugmyndafræðilegar
breytingar og var það í
anda sósíaldemókrata-
flokka annars staðar því
upprunalega var þetta
þjóðnýtingar flokkur og
marxískur í hugsun. Það
eru svo sænskir kratar
sem fara að breyta þessu
og telja að það geti alveg
samrýmst stefnu jafnað-
armanna að einkaframtak
sé við hliðina á opinber-
um rekstri.
Samfylkingin er að mörgu leyti bara flokkur menntafólks.
KR. 339.900,-
Bluetooth & WiFi -
Kraftmikill og þéttur
hljómur - Fimm innbyggðir
magnarar samtals 480 W.
- Einfaldur í notkun með
BeoMusic smáforriti
A9
Þráðlaus hátalari
lágmúla 8 · sími 530 2800