Fréttatíminn - 22.12.2016, Page 37
| 37FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
verður í raun bara menntabylting
sem er ekki síst Alþýðuflokknum
að þakka.
Má þá í raun segja að Alþýðuflokk-
urinn geri þær breytingar á samfé-
laginu að hann verði óþarfur?
Já já, það má í raun segja það að
vissu leyti. Og hann má bara vera
ánægður með það. En Gylfi var
líka mikill listunnandi, hann efldi
allt listnám og t.d. var hann mikill
áhugamaður um tónlist og á hans
vegum eru sett lög 1963 um tónlist-
arskóla sem verða til þess að það
spretta upp tónlistarskólar út um
allt land. Hann lætur líka stofna
kennaradeildir við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík til að útskrifa tón-
listarkennara en þetta má segja að
sé grunnur að allri þeirri grósku
sem er í íslensku tónlistarlífi í dag.
Myndir þú segja að þessi tími hafi
verið mesta blómaskeið Alþýðu-
flokksins?
Já, það má alveg segja það enda var
Viðreisnarstjórnin mjög merkileg
þó að hún hafi auðvitað verið með
Sjálfstæðisf lokknum. Ég myndi
nú líka segja að það væri kannski
Stjórn hinna vinnandi stétta sem
var blómaskeið og beitti hún sér
fyrir mjög mörgu en hún er við
völd 1934-1937. Viðreisnarstjórn-
in stóð samt svo lengi að það var
hægt að koma mörgu í verk. Þá
kom til dæmis samkomulagið um
uppbyggingu Breiðholtsins. Svo má
líka segja að þriðja blómatíð Alþýð-
uflokksins sé 1987-1991 eða lengur
jafnvel. Þá er Jón Baldvin orðinn
formaður og Jón Sigurðsson líka
kominn þarna inn en þeir eiginlega
móta mjög mikið nýja efnahags-
stefnu hér á landi, það kemur frá
Alþýðuflokknum mjög mikið. Þeir
eru þarna auðvitað fyrst í stjórn
með Framsókn og Sjálfstæðisflokki
sem síðan springur eftir eitt ár og
þá kemur Alþýðubandalagið inn.
Þá var farið í að losa um gjaldeyr-
ishöft og afnema einokun á fiskút-
flutningi og fleira en þetta er meira
og minna allt komið frá Alþýðu-
flokknum. Svo er auðvitað EES
samningurinn sem er mjög stór
hluti af þessu líka, að opna fyrir
frjáls viðskipti.
Jafnaðarstefna í mörgum flokkum
En hvernig er það með þá stöðu sem
er uppi í dag hjá okkur krötunum, á
þessi staða sér hliðstæðu í sögunni?
Nei, það er í raun ekki hægt að
finna beint hliðstæðu en það væri
þá helst eftir síðasta kjörtímabil
Viðreisnarstjórinnar því þá kemur
hér mikið atvinnuleysi og kreppa
og Alþýðuflokkurinn fer mjög illa
frá því en hann var verkamanna-
flokkurinn í þeirri stjórn. Í kosn-
ingunum 1971 fer hann alveg niður
í tæplega 10% atkvæða. Svo heldur
það áfram 1974, þá fer hann nið-
ur í 9,1% en það er það lægsta sem
hann fór í. Síðan kemur Vilmundar
bylgjan upp úr því en þá endurnýj-
ast flokkurinn alveg og allir þess-
ir gömlu kallar eru settir út. Það
er mjög mikið lægðartímabil fyrir
flokkinn en hann fór nú samt aldrei
jafn langt niður og Samfylkingin
fór núna.
Hvað telur þú að valdi þessu? Á jafn-
aðarstefnan ekki jafn mikið erindi
við íslenskt samfélag í dag?
Ég held nú að jafnaðarstefnan
lifi góðu lífi í mörgum flokkum í
dag. Ég held að þessir nýju flokk-
ar séu meira og minna mótaðir af
jafnaðarstefnunni, svona eins og
Píratar og hinir. Þetta eru í raun
jafnaðarf lokkar bara með öðr-
um formerkjum en áður eða mér
finnst það allavega dálítið þannig.
Og Vinstri græn eru náttúrulega
jafnaðarmannaflokkur í raun og
veru þó það séu líka öflug íhalds-
öfl í flokknum.
Jafnaðarstefnan á auðvitað fullt
erindi í dag þar sem bilið á milli
auðmanna og alls þorra almenn-
ings er alltaf að stækka. Það þarf
að jafna kjörin með tilteknum að-
gerðum og maður sér það bara úti
í heimi með menn eins og Bernie
Sanders sem að kemur fram sem
sósíalisti í Bandaríkjunum og fær
rífandi fylgi. Það er sama þróun
í Bretlandi með Jermey Corbyn,
hann er mjög róttækur og ég held
að það veiti ekki af svona til þess
að jafna kjör manna og lyfta fólki.
Þó það sé almenn velmegun hér á
landi þá eru stórir hópar af fólki
sem eiga bara mjög bágt og það er
í raun til skammar að við skulum
ekki sinna betur ýmsum hópum
sem hafa það mjög slæmt.
Þetta þarf að gera með afdrátt-
arlausum hætti en ekki einhverju
klóri. Mér fannst það einmitt vera
raunin í kosningabaráttunni hjá
Samfylkingunni núna, það var
bara eitthvert klór. Það þarf nátt-
úrulega dálítið öfluga menn til að
koma þessu fram af því leiðtogar
eru ekki fæddir á hverju strái,
menn sem geta náð með málflutn-
ingi til almennings.
Það er til dæmis hægt að nefna
þegar Vilmundur Gylfason kemur
fram eins og stormsveipur, hann
hafði verið mikið að stjórna sjón-
varpsþáttum og hann taldi að þetta
samfélag væri gjörspillt, væri í
raun alveg gegnsósa af spillingu.
Alls konar hagsmunaárekstrar og
pot sem hann setti sér bara eins
og riddari að berjast gegn, alveg
hreint af fullum krafti. Samt var
hann með alls konar hugmyndir
sem voru alveg á skjön við Alþýðu-
flokkinn í raun og veru. Hann taldi
t.d. að verkalýðshreyfingin væri
mjög spillt og vildi ekki hafa neitt
samneyti við hana. Þetta skynj-
aði fólk að væri rétt hjá honum
og hann sló í gegn þannig. Hann
var líka með nægan sjarma til þess
að ná í gegn. Svo það eru oft öfl-
ugir einstaklingar með sjarma og
hugsjónir sem ná að laða fylgi til
flokka.
Ég þakka Guðjóni kærlega fyrir
áhugavert spjall. Og hvet alla til að
næla sér í eintak af bókinni. Saga
Alþýðuflokksins er þróunarsaga
íslensks samfélags á tuttugustu
öldinni. Við jafnaðarmenn vonum
svo að fram stígi öflugur leiðtogi
til að leiða flokk jafnaðarmanna
áfram. Kannski er það nýi formað-
urinn.
Það er til dæmis hægt að nefna þegar Vilmundur
Gylfason kemur fram eins og stormsveipur, hann
hafði verið mikið að stjórna sjónvarpsþáttum og hann
taldi að þetta samfélag væri gjörspillt, væri í raun
alveg gegnsósa af spillingu.
SE