Fréttatíminn - 22.12.2016, Side 38
38 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
Björg Brjánsdóttir, þver-
flautunemi í Tónlistarháskóla
Noregs, upplifir að tónlistarnám
sé meira metið á Norðurlöndum.
Þar búi hljóðfæraleikarar við
meira öryggi og betri kjör en á
Íslandi.
Heiða Vigdís Sigfúsdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
„Ég held að maður þurfi að læra það
sem maður hefur ástríðu fyrir. Það
eru mikil forréttindi að geta farið
í það nám sem mig langar í,“ segir
Björg Brjánsdóttir, þverflautunemi
í Tónlistarháskóla Noregs. Á Íslandi
geta nemendur ekki sótt listnám á
háskólastigi án þess að greiða skóla-
gjöld. Björg hefur tekið framfærslu-
lán hjá Lánasjóði íslenskra náms-
manna, LÍN, í sjö annir og ræðir
framtíðarhorfur þverflautuleikara
á Íslandi.
Fjárveitingar til háskólanema
hafa mikið verið í deiglunni undan-
farna mánuði. Frumvarp sem
menntamálaráðherra lagði fram
um breytingar á styrktar- og náms-
lánakerfi LÍN fyrr á þessu ári, hlaut
misjafnan hljómgrunn. Nemendur
Listaháskóla Íslands bentu á að til-
lögur um nýtt kerfi kæmi sérstak-
lega niður á þeim nemendum sem
þurfa að greiða skólagjöld eða læra
erlendis.
Björg hefur búið í Noregi frá ár-
inu 2012 en þar þurfa listnemar
ekki að greiða skólagjöld. „Það var
ákveðið áfall að flytja út og sjá þær
aðstæður sem samnemendur mín-
ir búa við. Námsmenn þar fá fastar
greiðslur frá ríkinu mánaðarlega
og mun betri lánakjör en íslensk-
ir námsmenn. Ég held ég skuldi í
kringum fimm milljónir. Það er
erfitt að segja til um framtíð mína
á vinnumarkaðnum. Ég gæti feng-
ið fasta stöðu við flutning eða sem
kennari eða kannski verð ég í verk-
takavinnu,“ útskýrir Björg.
Björg segist fá hroll við tilhugs-
unina um afborganir af námslán-
unum í framtíðinni enda séu kjörin
ólík því sem norsk bekkjasystkini
hennar sjái fram á. „Mín upplifun
er að tónlistanám og list almennt sé
metin hærra í samfélaginu á Norð-
urlöndunum. Mér finnst viðhorfið
úti vera að list þurfi ekki alltaf að
standa undir sér fjárhagslega. Þar
er samfélagið vissulega stærra og
meira úrval af styrkjum fyrir lista-
menn. Þar eru tækifæri tónlistar-
fólks fleiri en hér.“ Björg sér fram-
tíðina fyrir sér á Íslandi. „Ég vil
búa hér en það verður að koma í
ljós hvort ég geti unnið sem þver-
flautuleikari.“
„Mín upplifun er að tónlistarnám og list almennt sé metin hærra á Norður-
löndunum en á Íslandi,“ segir Björg Brjánsdóttir þverflautunemi. Mynd | Rut
Þverflautuleikari býr við
meira öryggi í Noregi
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
Verð frá 34.900
Every Day Messenger er margverðlaunuð
ljósmynda- og tölvutaska sem lítur ekki bara vel út
heldur bíður upp á marga burðarmöguleika og
skipulag sem á sér engan líka.
Every Day Messenger
frá Peak Design
mjúkt, safaríkt og bragðmilt
Jólin eru tími elskulegrar íhaldssemi þegar við viljum vera viss um
að allt sé eins og það á að vera. Þess vegna velja tugþúsundir
Íslendinga SS birkireykta hangikjötið á jólaborðið, því það er
mjúkt, safaríkt og bragðmilt.
Gleðileg jól!
www.ss.is
Fí
to
n
/ S
ÍA