Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 22.12.2016, Síða 44

Fréttatíminn - 22.12.2016, Síða 44
44 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016 Vera hefur lengi haft mætur á lemúrum. Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Útvarpskonan góðkunna Vera Ill- ugadóttir er ein þeirra sem styrkir bágstadda. Hún fer þó ótróðnar slóðir í þeim efnum og styrkir ekki börn í fjarlægum löndum held- ur fullvaxta músalemúr. Sá heitir Thistle og býr í lemúramiðstöð Duke-háskóla í Norður- Karólínu. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á lemúrum og hef lengi fylgst með starfi þessarar stofnunar í Norð- ur-Karólínu. Vildi gjarnan styrkja þeirra góða starf en lemúrar eru þau dýr sem eru í hvað mestri út- rýmingarhættu á heimsvísu. Mér finnst mikilvægt að reyna að koma í veg fyrir það að þeir deyi út og er stofnunin mikilvæg í þeirra þágu.“ Starf Duke-háskóla er ekki síður mikilvægt fyrir þær sakir að vís- indamenn hafa komist að því að eitthvað í fari lemúra sé sambæri- legt mönnum. Það hefur gagnast þeim til að rannsaka alzheimer- og öldrunarsjúkdóma. Hún segir marga vera stuðnings- foreldra lemúranna við Duke-há- skóla. „Ég er fyrsti Íslendingurinn til að gera þetta en ég held að þetta séu aðallega Bandaríkjamenn, enda innifalið í þessu að geta heim- sótt sinn lemúr. Ég sé nú ekki fram á að gera það á næstunni því ég á ekkert annað erindi til Norður- Karólínu.“ „Maður fær ákveðinn einstak- ling sem er eins og stuðningsbarn manns. Ég er stuðningsforeldri músalemúrs en ég fékk að velja foreldri hvers ég yrði. Músalemúr varð fyrir valinu. Ég valdi hann því hann er minnstur, fer bara rétt í lófa. Er í raun okkar minnsti bróðir af prímatategundunum. Ég er mjög ánægð með lemúrinn minn. Hef mikla trú á honum.“ Vera hefur haldið úti veftímaritinu lemurinn.is í nokkurn tíma en er einhver tenging þarna á milli? „Ég er tiltölulega nýbyrjuð að styrkja lemúrinn en hef haldið úti síðunni í næst- um fjögur ár. Þetta kemur allt til vegna lemúraáhuga míns.“ | bg Gerðist stuðningsforeldri músalemúrs Vera Illugadóttir styrkir músalemúr, minnsta bróður okkar af prímatategundinni. Helga Dögg Ólafsdóttir helgadogg@frettatiminn.is Fréttatíminn lagði verkefnið fyrir mæðginin Mörtu Goðadóttur og Óð-inn Margeirsson, 6 ára, en sá síðarnefndi valdi föt á mömmu sína og útskýrði valið. Óðinn segir mömmu sína vera algera skvísu og fannst honum ekki erfitt að velja jólafötin á hana. Að sögn Óð- ins er Marta alltaf í litríkum fötum og fallegum kjólum. „Ég valdi rosalega fínan kjól því hann er svolítið flottur. Ég valdi líka bleikan jakka því hann er svo flottur á litinn og leðurbuxur. Mamma ætlar kannski að vera í buxunum á jólunum,“ segir hann kátur og stoltur. Óðinn er ekki bú- inn að ákveða í hverju hann ætlar á aðfangadag en að hans mati sé svolítið mikil- vægt að fólk sé fínt á jólun- um. „Ég hefði ekki valið þessa samsetningu af fötum sjálf en hann var mjög staðráðinn að setja mig í þetta, þessi elska,“ segir Marta, mamma Óðins. „Hann Óðinn minn er alger gæi þannig honum fannst þetta ekki leiðinlegt. Ég ætla að vera í buxunum og kjóln- um en helst ekki jakkanum,“ segir Marta brosandi um föt- in sem Óðinn valdi. Óðinn valdi jólafötin á Mörtu, mömmu sína. Börnin velja jólafötin Hvernig myndu mamma og pabbi klæða sig á jólunum ef börnin fengju að ráða? Jólatilboð Sængur og koddar Allt að 30% afsláttur Disney kvikmyndafyrirtækið hefur tilkynnt um framhalds- mynd um Mary Poppins en gamla myndin, sem skartaði Julie Andrews í aðalhlutverkinu, kom út árið 1964. Nýja myndin, sem verður frum- sýnd á jóladag árið 2018, á víst að gerast 20 árum á eftir þeirri fyrri og börnin í Banks fjölskyldunni verða því orðin fullorðin. Bresku leikkonunni Emily Blunt er nú ætlað að sjarmera heiminn en hún mun fara með hlutverk barnapíunnar. Meryl Streep fær hlutverk og sjálfur Dick Van Dyke, sem lék nánasta vin frökenar Poppins um árið, mun víst fara með lítið hlutverk í myndinni. Hann er 91 árs í dag, geri aðrir betur. Þá er bara spurning hvort nýja myndin um Poppins verði supercalifragilisticexpialidocious. Hver veit? | gt Mary Poppins snýr aftur Hún getur flogið með regnhlífinni sinni og með henni verður tiltektin leikur einn. Ofurbarnapían Mary Poppins snýr brátt aftur í nýrri kvikmynd. Með Mary Poppins verður jafnvel skorsteinahreinsun leikur einn.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.