Fréttatíminn - 22.12.2016, Síða 46
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
„Við vorum að vinna saman á
veitingastað í miðbænum. Ég
var að flytja til New York og vildi
ná mér í smá auka pening í einn
mánuð. Við höfðum verið að
spjalla saman á Facebook-spjallinu
og vorum bæði svolítið bjórþyrst
þann mánuðinn. Ákváðum því að
fá okkur bjór saman sem vinir og
það endaði í massa sleik,“ segir
Klara Arnalds um hvernig hún
kynntist barnsföður sínum, Fidda.
„Þar sem ég var að flytja til
útlanda þurfti ég að leigja íbúðina
mína svo ég var hjá fjöldskyldunni
minni yfir hátíðarnar. Ég var ekki
tilbúin að deila því með móður
minni eða öðrum fjölskyldumeð-
limum að ég væri að deita ein-
hvern strák um jólin. Ég laumaðist
oft til að fá lánaðan bíl til að sækja
Fidda sem gerði allar aðstæður
enn unglingalegri,“ segir Klara og
hlær. „Ég fór síðan til New York
í nokkra mánuði og við vorum í
litlu sambandi þá. Þegar ég kom
heim beið Fiddi mín svo óvænt á
Keflavíkurflugvelli. Við höfum ver-
ið saman síðan.“
Að sögn Klöru getur verið gam-
an og flókið að kynnast einhverj-
um í desember. „Það getur ein-
hvern veginn verið aukin pressa
sem gerir allt meira spennandi en
meira skrítið.
Erna og Bassi kynntust á
internetinu. Bassi sendi Ernu vina-
beiðni á Facebook fyrir átta árum
og þá var ekki aftur snúið. „Við
vorum bæði í jólafríi í desember.
Við bjuggum á Selfossi þannig ég
vissi strax hver hann var og var
mjög glöð að hann sendi mér vina-
beiðni. Á fyrsta stefnumótinu okk-
ar hittumst við og horfðum á bíó-
mynd saman. Ég var bara nýorðin
18 ára og fannst kvikmyndagláp
hið fullkomna stefnumót. Þar sem
við vorum í fríi enduðum við á að
horfa á kvikmyndir allt jólafríið.“
Að sögn Ernu er ekki annað
hægt en að verða hugfangin af
einhverjum í desember. „Það er
allt svo sérstaklega rómantískt í
desember. Það er ekki annað hægt
en að verða skotin í hvort öðru
yfir hátíðarnar.“ Bassi og Erna
hittust ekkert yfir sjálfar hátíðarn-
ar en eyddu öllum aðfangadegi að
senda hvort öðru smáskilaboð.
„Ég var hjá mömmu og man eftir
því að hafa fengið skilaboð frá
honum „gleðileg jól“ og þá varð ég
algjörlega dolfallin.“ Erna og Ba-
ssi trúlofuðust nú í desember og í
ljósi þess er desember sérstaklega
hátíðlegur fyrir parið. „Bassi bað
mín eiginlega á sama tíma og við
hittumst fyrir átta árum. Hann átt-
aði sig ekki á því en það hlýtur að
hafa verið í undirmeðvitundinni,“
segir Erna og hlær.
46 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016
Kynið skiptir ekki máli í Nexus
Mæla með sömu bókum fyrir hann og hana.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
„Í Nexus eru allir fullkomlega jafn-
ir. Það hefur verið stefna hjá okkur
lengi vel. Hér ber fólk virðingu
fyrir nördaskap hvers annars
sama hvar það stendur, af hvaða
kyni eða kynhneigð.“ Þetta segir
Jón Geir Jóhannsson, starfsmaður
í bókadeild Nexus, sem setti upp
hugmynd að jólagjöf á bókarekka
fyrir bæði karla og konur. Athygli
hefur vakið að mælt er með sömu
gjöfum fyrir bæði kynin.
„Þetta er nú ekkert stór-
mál en hefur vakið þó nokkra
athygli. Þetta ætti að vera svona. Í
draumaheimi væri þetta ekki frétt-
næmt. En allir eru bara: úúú, frá-
bært að það sé ekki verið aðgreina
gjafir fyrir karla og konur.“
„Ég hugsa að þessi mál hafi
farið skánandi með árunum en
síðast í gær heyrði ég auglýsingu
þar sem verið var að auglýsa hina
fullkomnu gjöf fyrir konuna. Það
var heimilistæki. Mér fannst það
pínu fyndið. Í Nexus verður mað-
ur var við þetta þegar eldra fólk
er að leita að gjöf fyrir börn. Þá
kemur maður með uppástungu og
þá segir einhver: Nei, þetta er sko
fyrir strák. Það er alveg innprent-
að í okkur að greina kynin svona
í sundur. Við í Nexus erum hins
vegar dugleg að gefa þessum hugs-
unarhætti langt nef og láta fólk
velja það sem það vill.“
Bækurnar sem Nexus mælir
með fyrir konur og karla
Klassískar viktoríanskar
glæpasögur í smásagnaformi.
Dickens og Condan Doyle.
Handbók um Hercule Poirot
eftir Agöthu Christie. Tilvitnanir
og annað.
Viskí handbókin.
Ævisaga Youtube-stjörnunnar
Hönnuh Hart. „Hún er þekktust
fyrir rásina My drunk kitchen og
er bara óskaplega skemmtileg.
Mæli með að fólk kíki á hana á
Youtube,“ segir Jón Geir.
Uppskriftabókin Little Old Lady
Recipies.
Orð sem eru lík
en þýða annað
Íslensk tunga er rík af alls kyns orðum sem eru
jafn breytileg og þau eru mörg. Sum orð eru
mjög lík í framburði jafnvel þó þau hafi gjörólíka
merkingu. Fréttatíminn tók saman nokkur orð,
orðasambönd og nöfn sem hljóma eins en þýða
ekki það sama.
| bg
Laganám ↔ Legnám
Sambíó ↔ Sambía
Fjarnám ↔ Fjárnám
Professor emeritus ↔ Professor amirite
Nína systir ↔ Nýnasisti
Kynfærasýking ↔ Kinnholusýking
Samsung ↔ Samsöng
Euphoria ↔ Ég fór í bað
Spurning ↔ Smurning
Tour de France ↔ Stígum dans
Hann borgaði ↔ Hamborgari
Lagkaka ↔ Legkaka
Dýrabókin ↔ Dýra bókin
Niðri ↔ Nyrðri
Klósett ↔ Kasólétt
Gamlárskvöld ↔ Gamla skuld
Helvítis núið ↔ Helvíti snúið
Konráð ↔ Kjararáð
Ostasósa ↔ Osmósa
Gjaldeyrishöft ↔ Gerildeyðishöft
Exton ↔ Hagstofan
Ananas ↔ Annars
Þunglyndi ↔ Pungbindi
Lundarfar ↔ Sundmagar
Fáfræði ↔ Hráfæði
Samferða ↔ Samfeðra
Stykkishólmur ↔ Stokkhólmur
Ritlist ↔ Ristill
Sjúklingur ↔ Kjúklingur
Stebbi og Eyfi ↔ Keppnisleyfi
Vinskapur ↔ Vínskápur
Klám ↔ Klovn
Amma ↔ Gamma
Ást sem kviknar
í desember
Desember er mánuður rómantíkurinnar. Ástin og væntumþykjan eru
allsráðandi og oft vill ástareldurinn kvikna manna á milli. Fréttatíminn
leitaði uppi ástarsögur sem áttu upptök sín í desember.
Klara og Fiddi kynntust þegar þau voru að vinna saman á veitingastað í miðbæ Reykjavík. Mynd | Hari
Bassi tók ástarmálkin
í sínar eigin hendur
og sendi Ernu vina-
beiðni á Facebook.