Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 1
18 ára piltur hlaut fimm og hálfs
árs dóm fyrir að nauðga tveimur
15 ára stelpum. Foreldrar piltsins
fóru með hann á geðdeild eftir
fyrri nauðgunina. Hann var ekki
lagður inn og nauðgaði aftur sex
dögum síðar. Ekki var farið fram
á gæsluvarðhald heldur.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Pilturinn hlaut fimm og hálfs
árs fangelsisdóm í Héraðsdómi
Reykjaness fyrir skömmu. Hann
nauðgaði fimmtán ára stelpu á
heimili sínu í Reykjanesbæ í lok
júlí og var handtekinn í kjölfar-
ið. Stelpan lýsti hrottalegri lík-
amsárás, hvernig pilturinn tók
hana kverkataki, sparkaði og sló,
steig ofan á háls hennar, hótaði að
drepa hana og nauðgaði henni tví-
vegis.
Pilturinn reyndi að afmá
sönnunargögn með því að losa sig
við rúmföt.
Mikil reiði var innan lögreglunn-
ar yfir því að piltinum hafi ver-
ið sleppt eftir nokkra klukkutíma
og að ekki hafi verið farið fram á
gæsluvarðhald yfir honum eftir að
fyrra málið kom upp.
„Mér fannst málið strax það
alvarlegt að full ástæða hefði verið
til að fara fram á gæsluvarðhald,“
segir Sigurður Freyr Sigurðsson,
réttargæslumaður stelpunnar, sem
varð fyrir fyrri nauðguninni.
Í dómnum kemur fram að for-
eldrar piltsins hafi því næst farið
með hann á geðdeild og óskað eftir
aðstoð. Þau hafi undrast að hann
hafi ekki verið lagður inn. Sex dög-
um síðar nauðgaði hann annarri 15
ára stelpu með hrottalegum hætti.
Sá atburður átti sér stað í austurbæ
Reykjavíkur og kölluðu vitni lög-
reglu á staðinn. Stelpan var flutt
illa leikin á neyðarmóttöku fyrir
þolendur kynferðisofbeldis.
Ef maðurinn hefði verið í gæslu-
varðhaldi, eða vistaður á geðdeild,
hefði seinna málið aldrei komið
upp.
Þolandi seinni nauðgunarinn-
ar lýsti því fyrir dómi að eftir at-
burðinn hefði gamli vinahópurinn
hennar hafnað henni. Móðir henn-
ar studdi frásögnina og sagði vini
hennar hafa forðast hana og hún
hafi í kjölfarið einangrast og leitað
í annan félagsskap.
Við geðrannsókn á piltinum kom
fram að hann væri reiður, ætti
erfitt með að finna til með öðrum
og axla ábyrgð. Hann væri hins-
vegar sakhæfur.
„Málið er sérstakt því brotin eru
gróf og gerandinn er ungur með
engan saka- eða ofbeldisferil. Það
sjáum við ekki á hverjum degi. Mér
finnst dómurinn ásættanlegur fyr-
ir ákæruvaldið en ríkissaksóknari
tekur ákvörðun um hvort honum
verði áfrýjað,“ segir Kolbrún Bene-
diktsdóttir varahéraðssaksóknari.
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
1. tölublað
8. árgangur
Föstudagur 06.01.2017
10
90´ myndir
björguðu bíóinu
Hrönn Sveinsdóttir sneri
við rekstri Bíó Paradísar 32
22
KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur
Betri þjónusta Við kappkostum að veita viðskiptavinum
okkar skjóta og góða þjónustu.
Ef tæki keypt hjá okkur bilar lánum við
samskonar tæki á meðan viðgerð stendur.
Við gerum betur í þjónustu
Kolbrún Bene-
diktsdóttir segir
málið sérstakt því
gerandinn sé ungur
með engan saka-
eða ofbeldisferil.
Fimm og hálft ár fyrir að
nauðga tveimur stúlkum
Launafólk borgar mikið
Efnafólk og fyrirtæki lítið
Skattar á Íslandi VONDU KERFIN:skattKERFIÐ
Verslunarrými
Til leigu í Firði
Upplýsingar í síma 615 0009
eða fjordur@fjordur.is
FJÖRÐUR
Í miðbæ Hafnarfjarðar
Hætti í doktorsnámi
og valdi nikkuna
Mynd | Hari
Endalausar
réttlætingar
fyrir dýraáti
Sérblað um nám
og námskeið fylgir
Fréttatímanum
Margrét Arnardóttir
Síðan hefur hvert ævintýrið rekið annað 26
NÁM OG NÁMSKEIÐ
Föstudagur
6. janúar
2017
K
2 er ný námsbraut til
stúdentsprófs í Tækni-
skólanum, en um er að
ræða þriggja ára nám í
bekkjarkerfi sem kennt
er í lotum. Námsbrautin er ætluð
framúrskarandi nemendum sem
eru tilbúnir að stíga út fyrir boxið
og takast á við krefjandi nám. Mark-
miðið námsbrautarinnar er að efla
tækni- og vísindanám á Íslandi í
nánu samstarfi framhaldsskóla,
háskóla og atvinnulífs. En atvinnu-
lífið spilar stóran sess í náminu því
nemendur munu vinna lokaverkefni
í samstarfi við fyrirtæki í lok hverr-
ar annar.
„Þetta er splunkuný braut og
mjög óhefðbundin. Í raun öðruvísi
en allt annað nám sem er í boði í
menntakerfinu. Núna er ein önn
búin og við höfum rýnt svolítið í
hvernig þetta hefur gengið, en við
höfum haft reglulega matsfundi
með nemendum þar sem við höfum
skoðað þetta á ýmsa vegu,“ segir
Nanna Traustadóttir, verkefnastjóri
K2. „Það hefur verið gríðarlega mik-
il nemendaánægja. Þau eru bæði
ánægð með námið í heild sinni og
vinnuaðstöðuna. Maður heyrir líka
á þeim að það er mikil eftirvænting
fyrir framhaldinu,“ bætir hún við.
Í samstarfi við HR
Nafn brautarinnar, K2, er skírskot-
un í næsthæsta fjallstind heims og
vísar þannig í einstaka áskorun í
námi og sex annir brautarinnar
hafa nöfn búða, líkt og í fjallgöngu.
Nemendur hefja þannig nám í
grunnbúðum, taka síðan forritun-
arbúðir, vísindabúðir og fleira og
enda á toppnum við útskrift.
Námið er skipulagt í samstarfi við
Háskólann í Reykjavík og leiðandi
tæknifyrirtæki og er sniðið að að-
gangskröfum HR í tækni- verkfræði-
og tölvunarfræðideild. „Við erum í
samstarfi við HR að því leytinu að
við erum með aðstöðu hjá þeim og
nemendur fara eina lotu á hverri
önn upp í HR og vinna þar. Á sama
tíma kynnast þau háskólaumhverf-
inu. Samstarfið mun svo aukast síð-
ar meir.“
Vilja meiri áskoranir
Nanna segir nemendur upplifa það
vel hve námið er frábrugðið öðru
námi á framhaldsskólastigi og það
er mikil ánægja með það. Reynt
er að hafa alla þætti námsins með
óhefðbundnu sniði, sem og vinnu-
rýmin og skólastofurnar. „Það eru
til dæmis engin próf hjá okkur og
þar sem þetta er mjög sterkur hóp-
ur námsmanna þá eru þau vön að
klára sig vel á þeim, en þau vilja efla
sig á aðra og fjölbreyttari vegu. Þau
eru meðvituð um að það eru ekki
endilega niðurstöður úr prófum
sem segja allt. Þetta eru nemendur
sem eru að skora hátt í hefðbundna
kerfinu í grunnskóla og eru mjög
efnileg. Þau vilja sjálf fá meiri áskor-
anir. Þau hafa mikið frelsi í þessu
námi til að fara lengra með verkefn-
in ef þau telja sig geta. Þau læra að
stýra sínum verkefnum sjálf.“
Spennandi nám
Nanna segir að vissulega hafi ein-
hverjir vankantar komið upp,
enda námið í þróun. En þau
hlusta mikið á raddir nemenda og
fagna ábendingum þeirra um það
sem betur mætti fara. „Þau hafa
væntingar um að námið sé að mestu
leyti rafrænt og óhefðbundið á sem
flesta vegu, fyrir utan að vera krefj-
andi. Þetta er líka áskorun fyrir
kennarana sem eru að kenna við
brautina, en á jákvæðan hátt. Þetta
er því spennandi bæði fyrir nem-
endur og kennara.“
Krefjandi nám fyrir
afburðanemendur
Tækniskólinn býður nú upp á nýja námsbraut
sem nefnist K2, en um er að ræða þriggja
ára nám til stúdentsprófs þar sem farnar eru
óhefðbundnar leiðir.
Lögð er áhersla á að námið sé frá-
brugðið námi í öðrum framhalds-
skólum, hvort sem um er að ræða
námsefnið eða vinnuaðstöðuna.
„Þetta er
splunku-
ný braut og mjög
óhefðbundin. Í raun
öðruvísi en allt ann-
að nám sem er í boði
í menntakerfinu.
Fjölbreytt framboð námskeiða fyrir sérfræðinga
og stjórnendur í atvinnulífinu.
STYRKTU STÖÐU ÞÍNA
Á NÝJU ÁRI
Nánari upplýsingar og skráning á opnihaskolinn.is