Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017 Ferðaþjónusta Íslenska ríkið seldi um tíma 1,5 lítra vatns- flöskur á 800 krónur stykkið í veitingasölunni í Skaftafelli við Vatnajökulsþjóðgarð. Mörgum hefur ofboðið verðlagningin. Að sögn Sigrúnar Sigurgeirsdóttur, rekstrarstjóra veitingasölunnar, var um tímabundið tilraunastarf að ræða. Hjálmar Friðriksson hjalmar@frettatiminn.is Vatnajökulsþjóðgarður heldur úti veitingasölu í Skaftafelli. Sigrún er rekstrarstjóri veitingasölunn- ar og segir að í sumar hafi verið keyptir inn tveir kassar af vatni frá Ícelandic Glacial. Vatnið var kynnt fyrir henni sem valkostur við léttvínsflöskur og var ákveðið að kanna hvort eftirspurn væri eft- ir slíku vatni. „Sú sem var að selja þetta kom hingað í sumar og sagði að sumir vildu hafa val um að kaupa vatn í fallegum umbúðum í stað- inn fyrir léttvín,“ segir Sigrún. Að hennar sögn var ekki há álagning á vatninu. Verðið megi skýra út frá kostnaðarverði og að þjóðgarður- inn megi ekki undirbjóða einkaað- ila sem hafi selt umræddar vatns- flöskur á svipuðu verði. „Þess vegna reynum við að skoða verðlagningu annars staðar og höfum það til hlið- sjónar,“ segir Sigrún. Sigrún ítrekar að á sama tíma hafi verið boðið upp á frítt kranavatn í veitingasölunni. „Þeir sem vildu gátu fengið sér vatn og í kælinum við hliðina á þessu vatni var önn- ur tegund sem var miklu ódýrari. Þetta tiltekna flöskuvatn var ekki keypt inn í veitingasöluna aftur einmitt á þeim forsendum að það er hallærislegt að vera með fínt gler- flöskuvatn við hliðina á fríu vatni,“ segir Sigrún. Ari Eldjárn: 18 milljónir í miðasölu á tveimur dögum Uppistand Allir miðar á ára- mótasýningu Ara Eldjárns í Háskólabíói seldust upp á einum degi. Þá var bætt við miðum þar til uppselt var á fjórar sýningar í stóra sal bíósins. Ari ákvað að storka ekki örlögunum með því að bæta við fleiri sýningum. Miða- salan nam 18 milljónum króna. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Þegar miðasala hófst á uppistand- sýningu Ara Eldjárns í Háskólabíói í lok desember seldust allir miðarn- ir upp á fyrsta degi. Sýningin var einskonar áramótaskaup Ara þar sem hann fór yfir þjóðmálin á árinu. Viðtökurnar komu uppistandaran- um á óvart og ákvað hann að bæta við aukasýningu. „Miðarnir á auka- sýninguna seldust á nokkrum dög- um, og sama átti við um þá þriðju. Þegar selst hafði upp á fjórðu sýn- inguna tiltölulega hratt, þá vildi ég ekki storka örlögunum með því að setja upp fleiri. Mér datt ekki í hug að þetta gæti gengið svona mikið leng- ur,“ segir Ari. Verkið var sýnt fjórum sinnum á tveimur dögum og var Ari að mestu einn á sviðinu í rúmar tvær klukku- stundir í senn. Hver miði kostaði fimm þúsund krónur og voru um 900 miðar seldir á hverja sýningu. Miðasala á einleikinn nam því um 18 milljónum króna. Ari segist alls ekki fá alla upphæð- ina í vasann því hann hafi þurft að leigja salinn, borga starfsfólki laun og auk þess greiði hann að sjálfsögðu skatta af sínum hlut. „Þetta var stórt og mikið verkefni sem ég er feginn að hafa hent mér í, en líka feginn að sé búið. Ég var dá- lítið að brjóta formið. Í stað þess að sjá einn um grínið þá notaði ég áhorf- endur meira en ég er vanur. Þetta var mitt áramótaskaup þar sem helstu viðburðir ársins komu við sögu, stjórnmálamenn, forsetaframbjóð- endur og Panamaskjöl. Seinni hlutinn var svo uppistandsveisla sem endaði í með rokkhljómsveit og látum.“ Eftirspurnin eftir uppistandi er augljóslega mikil því næsta verkefni hjá Ara er sýningaröðin Mið-Ísland að eilífu sem frumsýnd verður 12. jan- úar í Þjóðleikhúskjallaranum. Nær uppselt er á allar sýningar í janúar. Síðan 2013 hefur sýningarröð Mið- -Íslands gengið fyrir fullu húsi í Þjóð- leikhúskjallaranum í fjóra mánuði. Til stóð að sýna áramótaeinleik Ara Eldjárns einu sinni í stóra sal Há- skólabíós en eftirspurnin var svo mikil að þremur aukasýningum var bætt við. Ríkið seldi ferðamönnum vatn á 800 krónur Sigrún Sigurgeirsdótt- ir segir að álagningin á vatnsflöskurnar hafi ekki verið mikil. Lögreglumál Maður á sextugs- aldri kom í annarlegu ástandi með leigubíl að bráðamóttökunni í Fossvogi á gamlársdag. Hann gat lítið tjáð sig um hversvegna hann var kominn á staðinn en reyndist vera með hnífsstungusár á báðum fótum. Annar áverkinn var djúp- ur og hafði maðurinn misst mikið blóð. Maðurinn sagðist hafa verið í sam- kvæmi í Breiðholti en vissi ekki ná- kvæmlega hvar. Starfsfólk spítalans kallaði til lögreglu sem var í marga klukkutíma að leita uppi vettvang hnífsstungunnar. Í ljós kom að mað- urinn hafði verið í félagsskap með óreglufólki í íbúð í Breiðholti, þegar einhver tók eftir blóði á fæti hans. Var hann því sendur með leigubíl á bráðamóttökuna. Lögregla hand- tók húsráðanda íbúðarinnar en hef- ur engar vísbendingar um tildrög hnífsstungunnar. Hvorki húsráð- andi né maðurinn sjálfur gátu, sök- um ölvunar, gefið skýringar á hnífs- stungunum. Rannsókn málsins var því hætt. | þt Með óútskýranleg stungu­ sár á bráðamóttöku Stjórnmál Svo virðist sem að ekki verði farin róttæk leið í uppstokk- un í sjávarútvegsmálum. Skortur á konum í efstu röðum Sjálf- stæðisflokksins er áhyggjuefni. Svanhildur Hólm og Ragnheiður Ríkharðsdóttir koma til greina sem ráðherrar. Valur Grettisson valur@frettatiminn Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Ekki verða gerðar grundvallar- breytingar á kvótakerfinu í sjávar- útvegi nái Björt framtíð, Viðreisn og Sjálfstæðisflokkurinn að mynda ríkisstjórn, samkvæmt heimildum Fréttatímans. Í það minnsta er úti- lokað að svokölluð uppboðsleið verði farin þar sem aflaheimildir útgerðarfyrirtækja yrðu innkallað- ar og boðnar upp til hæstbjóðanda á markaði. Bæði Viðreisn og Björt framtíð töluðu fyrir slíkum róttæk- um breytingum á kvótakerfinu í að- draganda þingkosninganna í haust. Markmiðið var að reyna að draga úr aðkomu ríkisins og stjórnmála- manna að útdeilingu á aflaheim- ildum og að ríkið myndi fá hæsta mögulega verð fyrir afnot á fisk- veiðikvóta þjóðarinnar. Á móti er líklegt að Björt framtíð og Viðreisn fái fimm ráðherra sam- tals, Viðreisn þrjá á meðan Björt framtíð fengi tvo. Staða kvenna inn- an Sjálfstæðisflokksins er hinsvegar áhyggjuefni og hefur verið nefnt að Svanhildur Hólm Valsdóttir, að- stoðarkona Bjarna Benediktsson- ar, verði ráðherra, þó hugsanlega aðeins tímabundið. Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur einnig verið nefnd sem ráðherraefni. Viðræður á milli f lokkanna þriggja eru langt komnar og svo komið að farið er að ræða ráð- herraembætti. Síðast steytti á sam- starfi á milli f lokkanna þriggja vegna sjávarútvegsmála, en nú virð- ast Björt framtíð og Viðreisn hafa gefið allnokkuð eftir. Svo virðist sem uppboðsleið sé alveg slegin út af borðinu en til um- ræðu er að breyta því hvernig veiði- gjöldin eru innheimt. Jafnvel komi til greina að taka upp kerfi sem leiði til þess að veiðigjöldin lækki þegar krónan er sterk til að koma til móts við sjávarútvegsfyrirtæk- in þegar illa árar fyrir þau. Frétta- tíminn hefur ekki upplýsingar um hvernig nákvæmlega þetta nýja inn- heimtukerfi er hugsað þar sem tals- verð leynd er yfir tilllögunum sem til umræðu eru á milli flokkanna þriggja. Ljóst er hins vegar að Viðreisn og Björt framtíð hafa horfið frá þeirri uppstokkun á kvótakerfinu sem flokkarnir boðuðu fyrir kosningar, þeir hafa horfið frá innleiðingu upp- boðskerfis og þeir virðast hafa sæst á útfærslu á innheimtu veiðigjalda sem felur ekki endilega í sér hærri gjaldtöku fyrir afnot af aflaheimild- um í sjávarútvegi. Kvótakerfið verð- ur því áfram til í nokkurn veginn sömu mynd og áður. Ekki er ljóst hver lendingin er í Evrópumálum en Sjálfstæðismenn beita þeim rökum að viðræður við sambandið geti ekki hafist fyrr en eftir árið 2020. Þannig sé í raun ótímabært að ræða málið efnis- lega. Til greina komi þó að kjósa í lok kjörtímabils, en enn er deilt um það hvernig spurningin um Evrópusambandsaðild ætti að vera orðuð. Menning Listamenn vilja skaða- bætur frá Reykjanesbæ eftir að listaverk í bænum var sprengt í loft upp. Listamaðurinn Haukur Halldórsson og viðskiptafræðingurinn Sverrir Örn Sigurjónsson hafa farið fram á að þeim verði bætt tjón sem varð á skúlptúr eftir Hauk, en hann var eyðilagður með flugeldi eða heima- gerðri sprengju um áramótin 2011- 2012. Málið var tekið fyrir í Héraðs- dómi Reykjaness í gær. Alls vilja félagarnir að Reykjanesbær greiði fyrirtæki þeirra, Víkingahringn- um ehf., rétt rúmar þrjár milljón- ir króna vegna skemmdarverk- anna. Þessu hafnar þó lögmaður Reykjanesbæjar. „Þetta snýst um það hvort Reykjanesbær hafi borið hlutlæga ábyrgð á skaðabótarétti þar sem við teljum að það hafi verið gagn- kvæmur samningur um sýningu á listaverkinu, báðum aðilum til hags- bóta,“ segir Unnar Steinn Bjarndal, lögmaður Reykjanesbæjar. Þetta þýðir í fáum orðum að Reykjanes- bær telur að þrumuguðinn hafi ekki verið á ábyrgð bæjarins, heldur hafi verkið verið í láni. Eigandinn hafi hagnast á staðsetningu verksins þar sem það hafi haft auglýsingagildi. Það skiptir máli þegar kemur að ábyrgð á verkinu, að mati Unnars. „Það eru til fordæmi um svona tilvik, þó ekki er varðar listaverk, og því má segja að málið sé óvenju- lega vaxið,“ segir Unnar, en aðal- meðferð fer fram í málinu í mars. Vilja skaðabætur vegna lista­ verks sem var sprengt í loft upp Listaverkið var sprengt upp með flugeldi eða heimagerðri sprengju um áramótin 2011- 2012 . Hverfa frá kröfu um róttækar breytingar á kvótakerfinu Benedikt Jóhannesson og Óttar Proppé hafa verið sam- stiga í viðræðunum. Mynd | Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.