Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 44
44 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017 Jónína Leósdóttir hlakkar til hvers dags sem hún nýtir í að skrifa um eftirlaunaþegann Eddu, en hún sendi frá sér bókina Stúlkan sem enginn saknaði, nú fyrir skömmu. Jóhanna Sigurðardóttir, eiginkona Jónínu, er dugleg að draga hana frá tölvunni í heilsubótargöngu. Það kom Jónínu á óvart hvað íslenskir glæpasagnahöfundar standa vel saman. Myndir | Hari Eiginkonan og söguhetjan togast á Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@frettatiminn.is Rithöfundurinn Jónína Leósdóttir sendi nýlega frá sér bókina Stúlkan sem enginn saknaði, en um er að ræða aðra glæpasögu Jónínu sem fjallar um eftirlaunaþegann Eddu sem leysir erfiðar ráðgátur. „Það var engin tilviljun að ég valdi að skrifa um konu á eftirlauna- aldri. Á vissan hátt var það gjöf til sjálfrar mín. Aðalpersónur bók- anna verða óhjákvæmilega vinnu- félagar mínir og ég hef einstaklega gaman af hressum og sjálfstæðum konum sem eru óhræddar að segja meiningu sína og komnar yfir það að hafa áhyggjur af hvað öðrum finnst,“ segir Jónína aðspurð hvers vegna hún hafi valið að hafa aðal- söguhetjuna konu á eftirlaunaaldri, en konur á þeim aldri hafa ekki ver- ið fyrirferðamiklar í glæpasögum nútímans. Það er oftar sem við sjáum yngri konur eða miðaldra menn, sem lífið hefur leikið grátt, leysa dularfullar ráðgátur. „Aðalástæðan var þó að mig lang- aði til að skrifa um manneskju sem ekki er lengur á vinnumarkaðnum og sýna að hún getur samt haft svo margt til brunns að bera og fram að færa. Þótt Edda sé orðin 67 ára er hún bráðhress og eldklár og þegar þjóðfélagið og fjölskyldan afskrifa hana finnur hún sér sjálf spennandi verkefni. Hún þefar uppi alls kyns ráðgátur, bæði viljandi og óvart, og þá kemur það henni jafnvel stund- um til góða að vera meinleysisleg „eldri dama“ sem fólk vanmetur.“ En hvað kom til að Jónína fór að skrifa glæpasögur, eftir að hafa sent frá sér nokkrar skáldsögur af öðr- um toga? „Allar bækurnar mínar fjalla um samskipti fólks – hvort sem það eru fjölskyldur, pör, vinir, vinnufélagar eða aðilar sem tengj- ast á annan hátt. Mér finnst áhuga- vert að beina kastljósi að alls kyns aðstæðum sem fólk getur lent í á lífsleiðinni og skoða hvernig það bregst við. Bækurnar um Eddu eru í raun líka um mannleg samskipti og venjulegt fólk sem lendir í vanda. Í fyrri skáldsögunum mínum höfðu glæpir ekki komið við sögu en dag einn rann einfaldlega upp fyrir mér að það væri alveg kjörið að skrifa svona bók sem spennusögu. Það var næstum skrýtið að mér hefði ekki dottið þetta í hug fyrr.“ Jónína kann vel við að vera kom- in í hóp glæpasagnahöfunda en það kom henni ánægjulega á óvart hvað íslenskir glæpasagnahöfundar standa vel saman og eiga góð sam- skipti sín á milli. „Mér var tekið opnum örmum og m.a.s. boðið að taka þátt í pall- borðsumræðum á glæpasagnahá- tíðinni Iceland Noir 2014, rúmu ári áður en fyrsta Eddubókin leit dags- ins ljós,“ segir hún, en bókin Konan í blokkinni kom út í byrjun janúar á síðasta ári. „Í fyrravor tók ég líka þátt í svip- aðri hátíð í Newcastle ásamt þremur öðrum höfundum frá Íslandi, Yrsu Sigurðardóttur, Sólveigu Pálsdóttur og Lilju Sigurðardóttur. Það var svo gaman að ég held að hlátrasköllin hljóti að hafa heyrst alla leið til Ís- lands.“ Það var uppástunga Forlagsins að gefa bókina út eftir jólin, líkt og í fyrra, en Jónína viðurkennir að hún hafi verið kvíðin fyrir því í fyrstu. Bjóst við að fólk væri komið með nóg af bókum á þeim árstíma. Reynslan með síðustu bók var hins vegar svo jákvæð að hún saknar ekkert jólabókaflóðsins. Jónína er rithöfundur í fullu starfi og getur gleymt sér við skrif heilu og hálfu dagana, en eftir að kon- an hennar, Jóhanna Sigurðardótt- ir, hætti í pólitík hefur hún verið dugleg við að draga hana aðeins frá tölvunni. Jóhanna veitir konu sinni líka innblástur. „Jóhanna er hiklaust frábær fyrirmynd, miklu kraftmeiri og framkvæmdasamari en ég. Það er kannski vandinn. Ég gæti skrifað frá morgni til kvölds og gerði það meðan hún var öll- um stundum í vinnunni. En núna, þegar Jóhanna er hætt í pólitíkinni, er erfiðara fyrir mig að sitja eins og klessa við tölvuna alla daga. Nú tog- ast þær á – Edda sem vill láta skrifa um sig og Jóhanna sem bendir mér á mikilvægi þess að taka pásur og fara í heilsubótargöngu,“ segir Jón- ína kímin. En hún hlakkar til hvers vinnudags með Eddu og sér fyr- ir sér að skrifa töluvert meira um hana ef guð lofar. „ Jóhanna er hiklaust frábær fyrirmynd, miklu kraftmeiri og fram- kvæmdasamari en ég. Það er kannski vandinn. Ég gæti skrifað frá morgni til kvölds og gerði það meðan hún var öllum stundum í vinnunni. En núna, þegar Jóhanna er hætt í pólitíkinni, er erfiðara fyrir mig að sitja eins og klessa við tölvuna alla daga.“ VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.