Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017
Megum við borða dýr og skiptir
það máli hvort dýr hugsi og finni
til? Þetta eru spurningar sem
maðurinn hefur velt fyrir sér í
þúsundir ára og enn hefur ekki
fengist nein algild niðurstaða. Iðn-
væðing landbúnaðar og gróður-
húsaáhrif hafa glætt umræðuna
nýju lífi og segir heimspekingur-
inn Jón Á. Kalmansson Íslendinga
verða að móta sér skoðun þegar
kemur að landbúnaði og velferð
dýra.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Dýrasiðfræði hefur verið til frá því
að maðurinn fór að velta fyrir sér
stöðu sinni í heiminum og þurfum
við ekki annað en að lesa biblíuna
til að sjá texta sem fjalla um sam-
band okkar við dýrin og hvernig við
eigum að koma fram við þau.
Á sínum tíma komst Aristótel-
es að þeirri niðurstöðu að dýr hafi
skynjun en ekki skynsemi en það
er umdeilt hvað vakti fyrir honum
með þeirri pælingu. Síðan þá hef-
ur mikið verið fjallað um eiginleika
dýra innan heimspekinnar, hvort
þau séu gædd skynsemi eða ekki
og hvort og hvernig þau skynji ver-
öldina.
Samband manna og dýra hefur
verið eitt helsta deilumáliið innan
siðfræðinnar og þá sér í lagi hvernig
við réttlætum framkomu okkar við
dýrin. Það hefur alltaf verið mann-
inum ofarlega í huga að finna rétt-
lætingar og rök fyrir því að borða
og nota dýr.
Getum gert það sem okkur sýnist
„Vangaveltur um samband okkar
við aðrar verur tengjast auðvitað
hugmyndinni um það hver við sjálf
erum og hvert hlutverk okkar er,“
segir Jón Á. Kalmannsson heim-
spekingur en hann fjallaði um
dýrasiðfræði á ársfundi siðfræðinga
í gær.
Jón segir dýrasiðfræðina að
miklu leyti snúast um leitina að
kenningum sem hægt sé að leggja
til grundvallar þegar við hugsum
um samband okkar við dýr. Best
þekkta kenningin er upplýsinga-
mannsins Benjamins Benthams en
dýraverndunarlöggjöf í dag byggir
að miklu leyti á hugmyndum hans.
Bentham sagði það ekki skipta máli
hvort dýr geti talað eða hugsað,
það sem skiptir máli er hvort þau
finna til sársauka eða ekki. Síðan
þá hefur dýrasiðfræði að miklu leyti
snúist um að ræða hvort kenning
Benthams sé útgangspunkturinn
eða hvort skoða eigi að fleiri sjón-
armið. „Það eru mjög margar nálg-
anir á þetta viðfangsefni og það er
í raun ekki eitt sjónarmið sem ræð-
ur för. Grundvallarspurningin er
samt alltaf: „Er réttlætanlegt að við
notum dýr eins og við notum þau?“
Maðurinn sem tegund hefur í viss-
um skilningi sigrað alla keppinauta
sína á jörðinni og í þeim skilningi
getum við gert það sem okkur sýn-
ist. En spurningin um það hvort við
séum að gera rétt eða rangt leitar
samt alltaf á okkur.“
Vafasöm matvælaframleiðsla
Árið 1975 kom út bókin Animal
Liberation eftir ástralska heim-
spekinginn Peter Singer. Bókin
olli straumhvörfum í dýravernd
og hafði mikil áhrif á sístækkandi
hóp meðvitaðra neytenda. Í bók-
inni gagnrýnir Singer framkomu
mannsins í garð dýra út frá hug-
myndum um tegundafordóma,
þ.e. að rétturinn til lífs sé háður
því hvaða tegund það sé sem um er
rætt. Einnig líkir hann yfirráðum
mannsins yfir öðrum tegundum á
jörðinni við þrælahald.
„Singer hefur verið mjög öflugur
í því að vekja athygli á dýravernd
og það tengist aukinni verksmiðju-
væðingu í landbúnaði. Hann var
meðal þeirra fyrstu til að benda
á það að þessi mikla iðnvæðing í
matvælaframleiðslu væri mjög svo
vafasöm út frá grundvallarsjónar-
miðum um velferð dýra,“ segir Jón.
„Gróðurhúsaáhrifin hafa svo bæst
við umræðuna af sívaxandi þunga.
Í fyrra birti Umhverfisstofnun Sam-
einuðu þjóðanna skýrslu þar sem
er hreinlega mælt með því að við
gerumst grænmetisætur. Sú skýr-
sla leggur reyndar ekki dýravelferð
til grundvallar heldur er þar verið
að tala um að komast hjá áhrifum
loftslagsbreytinga og til að komast
hjá hungri í heiminum.“
Hvernig eigum við að
koma fram við dýr?
Jón Á Kalmansson heimspekingur fjallaði um dýrasiðfræði á tuttugustu og fyrstu
öldinni á ársfundi Siðfræði stofnunar í gær. Hann telur mikilvægt að Íslendingar
hugsi vel um það hvernig landbúnað við viljum stunda. Mynd | Hari
Vangaveltur um samband manna og dýra hafa fylgt manninum frá upphafi. Heilagur Frans frá Assisi (1181-1286)
hefur verið nefndur dýrlingur dýranna og oft sagður vera frumkvöðull þeirrar hugsunar að allar lífverur séu jafnar
frammi fyrir guði. Hann er sagður hafa talað við dýr og skynjað tilfinningar þeirra.
Maðurinn sem tegund
hefur í vissum skilningi
sigrað alla keppinauta
sína á jörðinni og í þeim
skilningi getum við gert
það sem okkur sýnist. En
spurningin um það hvort
við séum að gera rétt eða
rangt leitar samt alltaf á
okkur.
Tryggðu þér PLÁSS!
BÖRN+UNGL.
K
V
IK
A
Kramhúsið
ORKUSTÖÐ Í MIÐBÆNUM
Ert þú líka á leið í Kramhúsið?
DANSORKA
NÝ NÁMSKEIÐ HEFJAST 9. JANÚAR
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
Afró
Contemporary
Magadans
Bollywood
Flamenco
Tangó
Beyoncé
Balkan
Ballett f/fullorðna
Burlesque
Kizomba
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
Yogakort
Pilateskort
Leikfimikort
Herra Yoga
Zumba
STRONG by Zumba
Powerfit
Karlaleikfimi
með Sóley
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
✷
Breakdans 5-7 ára
Breakdans miðstig
Breakdans framhald
Skapandi dans
1-3 og 4-7 bekkur
Tónlistarleikhús
5-6 ára og 7-9 ára
Skapandi dans 3ja ára
Dans og skapandi
hreyfing 4-5 ára
Ballett og Flamenco
fyrir 8-10 bekk
AFRÓ börn og foreldri.
Sími 551 5103 · kramhusid.is
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur
ÚTSALAN
ER HAFIN
Skoðið úrvalið á