Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017 myndir frá níunda áratugnum sem kannski þykja hallærislegar í dag en hafa öðlast ákveðna költ-stöðu með tímanum. „Við prófuðum að taka inn nokkrar þeirra og feng- um sterk viðbrögð frá ákveðnum aldurshópi. Fólki milli tvítugs og þrítugs sem sýndi mikla innlifun og mætti í stuði. Við sýndum myndirn- ar á föstudagskvöldum þegar allir virtust vera að hita sig upp fyrir djammið. Fólk tók þessu gríðarlega vel og við höfum haldið svokallað- ar þátttökusýningar á hinum ýmsu myndum þar sem fólk mætir í bún- ingum og syngur með tónlistinni.“ Dæmi um myndir sem slógu í gegn í bíóinu á liðnu ári voru 10 Things I Hate About You, The Big Lebowski, og jólasýningar á Die Hard og Love, Actually en það var uppselt á þær mörg kvöld í röð. „Í janúar sýnum við myndina um nornaklíkuna The Craft og í febrúar sýnum við Reality Bites. Við sýndum Office Space og heilu hersingarnar mættu vopnaðar hefturum. Við erum reglulega með Rocky Horror sýningar og erum ný- byrjuð að selja miða á Hárið í febr- úar. Það verður einmitt búninga- sýning þar sem sungið verður með öllum lögum.“ Hrönn segir þátttökusýningar- nar og kvikmyndirnar frá níunda áratugnum hafa átt stóran þátt í viðsnúningi á rekstri bíósins. „Við erum orðnar lunknari í sérvið- burðunum og það varð til dæmis allt vitlaust þegar við fögnuðum nýjustu plötu Nick Cave. Við ætl- um að endurtaka leikinn og heiðra David Bowie á föstudag með bíó- viðburði á heimsvísu. Auk þess er allt annar hópur sem hefur tekið við sér og er duglegur að mæta á beinar útsendingar frá óperum og ballettum úti í heimi. Það er mjög skemmtilegt að fá inn svona ólíkan hóp kvikmyndaunnenda. Hvort sem fólk kemur til að syngja með Mamma Mia eða horfa á þriggja klukku- stunda tyrkneska mynd, þá er það allt saman hluti af kvikmynda- menningu. Og hún á að vera fjöl- breytt.“ Framundan í paradísinni er öflugt kvikmyndavor þar sem Ósk- arsverðlaunamyndirnar hrannast inn. „Við sýnum meðal annars Toni Erdmann, geggjaða mynd sem fékk evrópsku kvikmyndaverðlaunin. Leikstjórinn, Maren Ade, er fyrsta konan til að hjóta þau. Við sýnum Moonlight, 28 Century Women og The Happiest Day in the Life of Olli Maki – sem fékk verð- laun í Cannes í fyrra. Þetta eru allt myndir sem hafa fengið frábæra dóma og eru í forvali fyrir stærstu kvikmyndaverðlaunin.“ Fáir ferðamenn Aukin aðsókn í Bíó Paradís skýrist þó ekki með ferðamannastraumn- um. Íslendingar eru miklum meirihluta þó útlendingar komi við að sjá íslenskar verðlaunamynd- ir. „Það er bara svo erfitt að draga ferðamennina inn úr blíðunni. Ég gekk einu sinni svo langt að þramma upp á Laugaveg með vík- ingahatt á höfðinu og skilti framan á mér, í þeirri von að ná inn fleiri túristum. Svolítið eins og á Costa del Sol. Það er ein af áskorun- um sem við glímum við núna, að höfða betur til þeirra. Okkur hefur gengið vel að laga aðra hluti sem ekki gengu upp hjá okkur áður. Velvildin er mikil og bíóið spyrst vel út. Við hljótum að ná til túristanna fyrir rest og mér finnst ekki ólíklegt að við þurf- um að stækka eftir nokkur ár.“ „Hvergi í Evrópu er hlut- fall Hollywood-mynda í kvikmyndahúsum hærra en á Íslandi. Samantekt Hagstofunnar sýnir að rúmlega 90% af öllum kvikmyndum sem sýndar hafa verið í kvikmynda- húsum undanfarin 30 ár, eru frá Hollywood.“ Tilkynning um framboðsfrest til stjórnarkjörs Samkvæmt 37. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar og trúnaðarráðs. Með hliðsjón af framansögðu og 34. gr. tilkynnist hér með að framboðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 16.00 sunnudaginn 15. janúar 2017 Skila ber tillögum ásamt meðmælendum fyrir þann tíma á skrifstofu félagsins. Kosið verður um varaformann, gjaldkera, tvo meðstjórnendur og níu sæti í trúnaðarráði, einnig verður kosið um sæti ritara. Hverjum framboðslista skulu fylgja skrifleg meðmæli minnst 18 fullgildra félagsmanna. Reykjavík 2. janúar 2017 Stjórn Félags íslenskra rafvirkja Tilkynning um framboðsfrest til stjórnarkjörs Samkvæmt 37. gr. laga Félags í lenskra rafvirkja skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar og trúnaðarráðs. Með hliðsjón af framansögðu og 34. gr. tilkynnist hér með að framboðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 16.00 sunnudaginn 15. janúar 2017 Skila ber tillögum ásamt meðmælendum fyrir þann tíma á skrifstof félagsins Kosið verður um varaformann, gjaldkera, tvo meðstjórnendur og níu sæti í trúnaðarráði, ein ig verður osið um sæti ritara. Hverjum framboðsli ta skulu fylgja skrifleg meðmæli minnst 18 f llgildra félagsmanna. Reykjavík 2. janúar 2017 Stjórn Félags íslenskra rafvirkja Tilkynning um framboðsfrest til stjórnarkjörs Samkvæmt 37. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar og trúnaðarráðs. Með hliðsjón af framansögðu og 34. gr. tilkynnist hér með að framboðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 16.00 sunnudaginn 15. janúar 2017 Skila ber tillögum ásamt meðmælendum fyrir þann tíma á skrifstofu félagsins. Kosið verður um varaformann, gjaldkera, tvo meðstjórnendur og níu sæti í trúnaðarráði, einnig verður kosið um sæti ritara. Hverjum framboðslista skulu fylgja skrifleg meðmæli minnst 18 fullgildra félagsmanna. Reykjavík 2. janúar 2017 Stjórn Félags íslenskra rafvirkja NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI 4BLS Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 11 07 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.