Morgunblaðið - 22.12.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.12.2016, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 2. D E S E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  300. tölublað  104. árgangur  dagar til jóla 2 Ketkrókur kemur í kvöld www.jolamjolk.is Síðumúla 30 Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 GÆÐA VÍNGLÖS TVENNUTILBOÐSJÚKRAÞJÁLFARI 21.60020%KYNNINGARAFSLÁTTUR20%JÓLAFSLÁTTUR FUSSENEGGER Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á rúmdýnum. DÚNSÆNG OG KODDIÍ DAG 16-18SÆNGURFATNAÐUR Opið alla daga til kl. 20.00 fram að jólum GÖNGUR Á ÆSKUSLÓÐUM URÐU AÐ BÓK KONA LEIKUR JAGÓ FLÓKIÐ AÐ GERA NETVERSLUN EINFALDA ÓÞELLÓ FRUMSÝNING Í KVÖLD 38 VIÐSKIPTAMOGGINNELVA BJÖRG 12 Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Von er á 40 flugvélum til lendingar á Keflavíkurflugvelli á aðfangadag. Þetta er 60% aukning frá því í fyrra þegar 25 flugvélar lentu á vellinum og ríflega þreföldun frá árinu 2014 þegar 13 vélar lentu á vellinum á að- fangadag. Skapti Örn Ólafsson, upplýsinga- fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að bjartsýnustu spár geri ráð fyrir 40% aukningu á komu erlendra ferðamanna hingað til lands í desem- bermánuði í ár. 71 þúsund ferða- menn komu til landsins í desember í fyrra og 54 þúsund í sama mánuði árið þar áður. Í ár gæti talan orðið 100 þúsund. Skapti segir í samtali við Við- skiptaMoggann að mikil breyting hafi orðið á umgjörð og þjónustu fyr- ir erlenda ferðamenn sem sækja landið heim yfir hátíðirnar. „Ára- mótin hafa verið mjög vinsæl meðal erlendra ferðamanna undanfarin ár en jólin eru alltaf að verða eftirsókn- arverðari og sjáum við fram á tölu- verða aukningu í ár.“ 40 flugvélar lenda á aðfangadag  Spár gera ráð fyrir 100 þúsund ferðamönnum hingað til lands í desember Morgunblaðið/Eggert Flug Fjöldi ferðamanna um jól. Starfsmenn OR unnu að því í gær að skipta út stærðarinnar jólabjöllum í Austurstræti, sem höfðu glímt við straumleysi. Nú þegar einungis tveir dagar eru til jóla er betra að hafa kveikt á perunum. Morgunblaðið/Golli Betra að hafa kveikt á perunni  Seðlabanki Ís- lands hefur til- kynnt forsvars- mönnum Samherja að bankinn hafi fellt niður tvö mál sem hann hefur haft til rann- sóknar á hendur Kaldbaki ehf., dótturfélagi Sam- herja, og vörðuðu meint brot fyrir- tækisins gegn lögum um gjaldeyris- mál. Bankinn hefur þá lokið rannsókn allra mála gegn fyrirtæk- inu. Samherji rekur enn mál á hendur bankanum vegna sektar sem bankinn lagði á fyrirtækið í september og rekur upphaf sitt til húsleita í skrifstofum fyrirtækisins 2012. »22 og ViðskiptaMogginn Ljúka rannsókn mála gegn Samherja  ,,Jú vissulega er ég mjög glöð en ég held mér alveg niðri á jörðinni. Tak- markinu er náð og jólin verða gleðileg hjá mér í ár,“ segir Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akra- nesi, sem í gær tryggði sér þátt- tökurétt í Evrópumótaröðinni í golfi árið 2017. » Íþróttir „Jólin verða gleði- leg hjá mér í ár“ Valdís Þóra Jónsdóttir Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Áform eru um mikla uppbyggingu í miðbæ Hafnar- fjarðar á næstu tveimur árum. Stefnt er að því að verslunarmiðstöðin Fjörður verði tengd nýbyggingu sem til stendur að reisa á Strandgötu 30. Í áætlunum er ráð- gert að með fram- kvæmdunum verði auk- ið við verslunarrými í Firði á jarðhæð, en í verslunarrými á efri hæðum verði hótelher- bergi og hótelíbúðir eða gistiheimili. Áætlað er að húsnæðið rúmi allt að 100 hótelherbergi. Í fjárhagsforsendum verkefnisins segir að uppbygging hótelsins muni kosta um 1.775 milljónir króna, verslunarrýmið um 622 milljónir og hótelíbúðir eða gistiheimili um 574 milljónir. Heildarframkvæmd- in hljóðar því upp á þrjá milljarða króna hið minnsta. Haraldur Líndal Haraldsson, bæjarstjóri í Hafnar- firði, fagnar áformunum: „Ég hef fulla trú á því að þetta muni draga fleiri ferðamenn inn í bæinn og efla verslunina í bænum. Við erum eina bæjarfélagið á höfuðborgarsvæðinu, utan Reykjavíkur, sem er með eiginlegan miðbæ og þetta mun efla þá sérstöðu. Með uppbyggingu vand- aðs hótels verður Hafnarfjörður raunverulegur kost- ur í huga ferðamanna sem vilja kynnast íslensku sam- félagi eins og það í raun er,“ segir hann. Milljarða- uppbygging í Hafnarfirði  Áforma byggingu hótels og verslunarrýmis í Firði Fjörður Byggt verður við verslunarmiðstöðina. MViðskiptaMogginn »2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.