Morgunblaðið - 22.12.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.12.2016, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin. F Laxinn okkar er einungis unnin úr ferskum laxi og þurrsaltaður með sjávarsalti. Saltinnihald er einungis 2%. FGraflaxinn okkar er þurrkryddaður með einstakri kryddblöndu. F Frá handflökun að handsneiðingu eru gamlar verkhefðir virtar, sem skilar sér í mildu bragði sem gælir við bragðlaukana. Grafinn lax ómissandi á jólaborðið Það er oft erfitt að horfa fram til jóla í skugga sorgar. Við bú- um í samfélagi þar sem jólahátíðin er rík af dýrmætum hefðum sem geta líka orðið þungbærar þegar að- stæður eða forsendur breytast. Fyrstu jól eftir andlát ástvina eru mörgum erfið, flest okkar þekkja einhvern í þessum sporum eða jafnvel höfum upplifað það sjálf. Þjóðkirkjan hefur í samstarfi við Landspítalann og Nýja dögun, sam- tök um sorg og sorgarviðbrögð, staðið fyrir aðventustund fyrir syrgjendur síðustu 17 ár og boðið þeim að mæta sem misst hafa ástvini sína á árinu. Mörg hundruð manns hafa mætt á þessar samkomur á hverju ári og getað þar stigið inn í jólin á táknrænan hátt og minnst um leið ástvina sinna. Þar má finna sterka samkennd því allir eru í sömu sporum, með erfiða reynslu að baki og fá þarna svigrúm til þess að horfa til jóla á sínum eigin forsendum við hátíðlega jólasöngva Hamra- hlíðakórsins. Samfylgd er fólgin í að styðja og styrkja fólk á erfiðum tímum og því lýkur ekki eftir aðhlynningu á sjúkrastofnun eða þegar ástvinur deyr og útför er lokið. Samfylgd með syrgjendum er langtímaverkefni. Þjóðkirkjan veitir sálgæslu og eftir- fylgd við fólk úti um allt land sem stendur í erfiðum að- stæðum og þarf að fóta sig aftur í lífinu eftir ástvinamissi eða önnur áföll. Nú kallar allt sam- félagið á gleðihátíð og kveðjur um gleðileg jól hljóma um allt. Jólin eru gleðihátíð, fæðingarhátíð frels- arans. Við getum líka óskað þeim gleðilegra jóla sem misst hafa ást- vini jafnvel þó að við vitum að hátíð- arnar verði þeim erfiðar. En það er hvernig við segjum það sem skiptir máli og oft þurfum við ekki að nota orð heldur getur handtak eða faðm- lag gefið styrk. Samfélagið styrkir á margan hátt þá sem eiga um sárt að binda með hópastarfi og fé- lagasamtökum en það sem skiptir mestu máli er nærumhverfið. Við höfum öll mikilvægu hlutverki að gegna að sinna þeim sem eiga um sárt að binda um jólin í nærumhverfi okkar. Viljum við ekki búa í sam- félagi þar sem við styðjum sam- ferðafólk okkar og gefum þau skila- boð að náunginn komi okkur við? Hver sinnir syrgj- endum um jólin? Eftir Magneu Sverrisdóttur Magnea Sverrisdóttir » Við höfum öll mikil- vægu hlutverki að gegna að sinna þeim sem eiga um sárt að binda um jólin í nær- umhverfi okkar. Höfundur er djákni á Biskupsstofu. Nú þegar dregur að lokum ársins, er eins og komið sé yfir fyrsta nýjabrumskúfinn í mörgum af þeim æsing- armálum sem hafa ein- kennt íslenskt þjóð- málalíf á árinu; Það hillir undir takmark- anir á vexti hagkerf- isins m. a. vegna aukn- ingarinnar í ferða- mennsku til landsins; vegna styrkingar krónunnar. Það þýðir um leið að hilli undir að kúfurinn á innflutningi erlends vinnuafls fari að hjaðna. Flóttamannavandinn á Íslandi virðist og vera að komast á sam- vinnuþroskaðra stig, þegar ljóst virðist að vilji sveitarfélaga og ein- staklinga til að styðja við þær fjöl- skyldur, ráði æ meiru um hversu langt ríkið telur sig geta gengið við aukningu; þrátt fyrir EES- þrýstinginn frá ESB, okkar stærsta markaðssvæði. … Varðandi flóttamannaaðstreymið til Evrópu, virðast þroskaðri og skipulagðari viðbrögð Evrópuþjóða vera að birtast, með fleiri áætlunum og tilburðum til að veita óhagkvæma umframstrauminum til baka; með fjárhagsaðstoð til að koma fólkinu fyrir aftur í sínum upprunalöndum. Um leið er að skýrast hvar efri þol- mörkin eru fyrir viðtöku þeirra í mörgum löndum Evrópu. Þáttaskil virðast vera að gerast í stríði stjórnvalda gegn upp- reisnaröflunum í Sýr- landi, Írak og Lýbíu; með tilheyrandi minni þrýstingi frá BNA, Nató og Rússlandi þar. Útganga Bretlands úr ESB virðist vera að taka á sig takmarkaðri og yfirvegaðri hófsem- ismynd en óttast var. Efnahagskreppan í ESB virðist vera að hjaðna. Rússar virðast ekki vera að end- urnýja kalda stríðið við Nató þótt þeim gangi illa efnahagslega. Áhyggjurnar af ólíkindalátunum í verðandi forseta BNA virðast af- markaðri en áður. Nató-þjóðin Tyrkland virðist ætla að fara sér hægt í að stilla ESB og Nató upp við vegg í flóttamanna- málum, svo fremi sem þau neita ekki alfarið að viðurkenna að lýð- ræðisglæta leynist í þessu vaxandi einræðisríki er fýsir að ganga í ESB. … Í innanlandsmálum okkar má svo nefna, að glansinn er farinn að fara af nýkjörnum forseta Íslands, er honum virðist nú ganga fádæma illa í stjórnarmyndunarumboðs- málunum! … Margt af þessu ofangreindu getur svo verið orðið að taumleysislegu æsingamáli um næstu jól, en er á meðan er! … Eftir svona langa upptalningu vil ég þó birta örstutta þjóðlega vísu úr nýlegri ljóðabók minni, en hún er svona: … Jötunuxinn eitthvað er að bisa. Járnsmiðurinn nálgast, hugsar sitt: Hví að sjúga kartöflur og flysja þegar fegri bjöllur bryðja nyt? Hjallar að baki í æsingamálum 2016? Eftir Tryggva V. Líndal » Það hillir undir takmarkanir á vexti hagkerfisins m. a. vegna aukning- arinnar í ferðamennsku til landsins; vegna styrkingar krónunnar. Tryggvi V. Líndal Höfundur er skáld og menningarmannfræðingur. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.