Morgunblaðið - 22.12.2016, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.12.2016, Blaðsíða 31
blómavasa, hellti vatni í, kom blómunum fyrir á áberandi stað í stofunni. Ekkert hik, ekkert fát, engin feimni, gengið hreint til verks. Það var þétt handtakið þegar leiðir skildi eftir stúdentsprófið og því fylgdu þakkir til mín fyr- ir samstarfið. Með þessum fáu orðum reyni ég af veikum mætti að lýsa Agli og kynnum mínum af honum. Sumu er ekki hægt að lýsa í orðum, aðeins nærveran er lýs- andi. Ég votta aðstandendum og öllum vinum Egils mína dýpstu samúð. Sá mikli orðasmiður og hugsuður, Þórarinn Eldjárn, sagði eitt sinn að sorg og sökn- uður þyrfti ekki að vera það sama og óhamingja. Við Egill vorum sammála um það sem tengdist fræðigreininni okkar, efnafræðinni. Efni sem koma saman geta hvarfast og um- myndast í önnur efni. En til þess verður að hlúa að efnunum og gæta þess að þau fari rétta leið. Ég er viss um að Egill væri mér sammála að sorg og söknuður gæti ummyndast í fal- lega minningu með tíð og tíma. Mannlegur máttur getur stýrt því ferli rétta leið. Ég kveð vin minn og sam- ferðamann með söknuð og þakklæti í huga. Skarphéðinn P. Óskarsson. Það er alltaf erfitt að skrifa ótímabærar minningargreinar, en þannig er staðan nú hvað varðar Egil, vin minn. Ég var heppin að fá að kynnast honum snemma á lífsleiðinni og vera honum samferða í fótbolta hjá HK, í Digranesskóla, MR og SUS, auðvitað alltaf skrefinu á eftir enda árinu yngri. Egill var besti vinur frænda míns, hans Gunnsteins, sem fetaði sömu braut. Þeir félagar voru eins og tvær hliðar á sama peningnum. Ég man hvað mér fannst ég vera heppin að eiga Gunnstein sem frænda og besta vin hans sem fylgdi með. Þeir voru fyr- irmyndir mínar enda báðir ein- staklega klárir, myndarlegir, skipulagðir og frábærir í alla staði. Við vorum oft saman og bý ég að mörgum góðum minn- ingum um þær stundir. Lítið atvik kemur upp í hug- ann. Einn morguninn vorum við Egill að bíða eftir fari í MR. Ég var að segja honum frá bók sem ég þurfti að lesa í skól- anum og var lítið spennt fyrir lesningunni. Hann kannaðist við bókina og spurði glettnis- lega: „Hvað meinar þú eigin- lega með að bókin sé óspenn- andi? Aðalpersónan sefur hjá vinkonu móður sinnar. Getur það orðið nokkuð betra?“ Í dag er þetta ein af uppáhaldsbókum mínum. Egill var í skiptinámi í Dóm- iníska lýðveldinu og þegar hann kom til baka vorum við á sama ári í MR. Eitt afdrifaríkt kvöld fórum við saman í bæinn. Hann spurði mig hvaða staðir væru vinsælastir á Íslandi nú þegar hann sneri til baka frá útlönd- um. Ég tjáði honum að Kúltúra væri vinsæll staður. Við löbb- uðum inn á staðinn og þar var nú engin önnur en hún Erna Valdís sem síðar varð stóra ást- in í lífi Egils. Ég sá Egil ekki meira það kvöldið. Þær eru margar fallegu minningarnar. En upp úr stendur alltaf brosið hans Egils sem gat breytt óbærilegum degi í góðan dag. Þannig smit- aði hann frá sér gleði og ham- ingju til þeirra sem voru í kring um hann. Ég kveð Egil með sorg í hjarta en bros á vör, því minn- ingarnar um Egil kalla ætíð fram bros. Ljós í myrkri er fal- lega dóttirin, hún Ásta Sigríð- ur. Ég votta Ernu Valdísi og fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Guðrún Anna Atladóttir. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 ✝ Guðrún Stef-anía Jakobs- dóttir fæddist 15. júní 1938 í Dverga- steini á Ólafsfirði. Hún lést á Dval- arheimilinu Horn- brekku 10. desem- ber 2016. Foreldrar henn- ar voru Jakob Ingi- mundarson, f. 21.7. 1905, d. 20.12. 1988, og kona hans Sigríður Pálmadóttir, f. 20.12. 1908, d. 14.9. 1958. Guðrún giftist 26.10. 1963 Agnari Baldri Víglunds- syni, f. 5.4. 1930, d. 27.3. 2012. Foreldrar hans voru Víglundur Nikulásson, kennari og sjómað- ur í Ólafsfirði, f. 3. júní 1891 á Garðabrekku í Staðarsveit, Snæfellsnesi, d. 27. ágúst 1979, og kona hans, Sigurlaug Magn- úsdóttir, f. 7. nóv. 1895 í Ólafs- firði, d. 21. ágúst 1969. Börn veig Bláfeld, f. 17.11. 1974, gift Viðari Páli Hafsteinssyni, f. 21.8. 1974, saman eiga þau fjög- ur börn. Guðrún gekk í barnaskóla Ólafsfjarðar. Hún fór suður með sjó ung að árum til að vinna á vertíð ásamt vinkonum sínum. Snéri aftur til Ólafs- fjarðar árið 1958 þar sem hún hóf fljótlega búskap og fór að eiga börn. Guðrún var heima- vinnandi og hugsaði um börn og bú . Þegar öll börnin voru orðin stálpuð hóf hún störf við fisk- vinnslu. Lengst af og allt þar til hún hætti störfum vegna aldurs hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar, en þar á undan vann hún hjá Stíganda við síldarsöltun, í Salt- húsi hjá Önnu hf. og mörg haust í sláturhúsi Kaupfélags Ólafsfjarðar. Guðrún var með- limur í Kvenfélaginu Æskunni á Ólafsfirði í tugi ára. Guðrún var mikil handavinnukona. Guðrún bjó lengst af á Kirkjuvegi 18, síðan seinni ár á Strandgötu 5 og síðustu árin á dvalarheim- ilinu Hornbrekku. Útför Guðrúnar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 22. desember 2016, kl. 14. Guðrúnar og Agn- ars: 1) Sigríður Jakobína, f. 20.12. 1959, gift Sigurjóni Magnússyni, f. 11.3. 1959, saman eiga þau þrjú börn og átta barnabörn. 2) Steinar, f. 19.7. 1962, k. I (skildu) Jónína Símonar- dóttir, saman eiga þau eitt barn og þrjú barnabörn. K. II Kristín Rósa Hjálmarsdóttir, f. 3.1. 1965, saman eiga þau tvö börn. 3) Jakob, f. 10.5. 1964, kvæntur Dagbjörtu Gísladóttur, f. 2.7. 1963, saman eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. 4) Úlfar, f. 12.1. 1967, k. I (skildu) Helga Björg Guðmundsdóttir, saman eiga þau tvö börn og eitt barna- barn. K. II (skildu) Ólöf María Jóhannesdóttir, f. 20.2. 1968, saman eiga þau tvö börn. Sól- Amma Gunna er orðin engill eins og afi Aggi, sagði ein lítil. Við eigum eftir að sakna hennar heil ósköp. Við mamma töluðum sam- an í síma á hverjum einasta degi og að geta ekki tekið upp tólið og heyrt í henni er erfiðara en orð fá lýst. Það sem ég er glöð að hafa gert mér ferð norður á dögunum til að eyða tíma með henni þótt hún hafi ekki verið upp á sitt besta þá tjaldaði hún öllu til morguninn sem ég kvaddi hana og var hún hin hressasta og áttum við dýrmæta stund saman. Þolin- mæði og umburðarlyndi eru orð sem koma upp í hugann, móðir fimm barna. Ég örverpið átti ynd- islega æsku, húsið alltaf fullt af vinum eða systkinabörnum mín- um sem voru tíðir gestir. Eitt af því skemmtilegasta að gera með mömmu var að horfa á gaman- þætti í sjónvarpinu, hún hló alltaf svo mikið og hátt að maður smit- aðist algjörlega með henni í rok- unum. Vinir mínir komu heim til mín til að horfa á Tomma og Jenna því að það var svo gaman að horfa á þá með mömmu af því að hún hló svo mikið. Laugar- dagskvöldin voru æði, þá fékk ég að fara í sjoppuna og kaupa app- elsín í gleri og fullan poka af kúl- um handa henni og ég fékk kók í gleri, lakkrísrör og eitthvert nammi, þetta er eitthvað sem ég man eftir alla tíð. Mamma og pabbi fluttu á Hornbrekku árið 2011 og þar fór mjög vel um þau og kann ég starfsfólki Horn- brekku bestu þakkir fyrir. Bara eins og mamma sagði sjálf á sjúkrahúsinu á Akureyri í vikunni áður en hún dó hundveik og hélt sér varla vakandi þá tilkynnti hún hjúkkunum þar að hún yrði að fara að komast út í Ólafsfjörð, þar væri hugsað svo rosalega vel um hana og sér liði miklu betur þar. Mamma var mikil handavinnu- kona, fyrir nokkrum árum fór hún að sauma Bucilla-jólasokka og jóladót. Hún var eins og vél þegar að hún fór af stað og saum- aði hvern sokkinn á fætur öðrum og áður en við vissum af voru öll börnin og afkomendur komin með sokka í jólapakkann sinn. Sokkar, veggteppi og dagatal eru meðal annars hlutir eftir hana sem hafa fallið mér í skaut í gegnum árin og þykir mér agalega vænt um það. Mamma var afskaplega stolt af barnabörnunum sínum og ég fékk að heyra af öllum sigrum þeirra í símanum. Þótt hún hafi verið veik síðustu daga þá brann það á henni að krakkarnir tækju góð jólapróf og það veit ég að þau gera. Mamma saknaði pabba svo svakalega mikið en núna er hún komin til hans. Ég á ótal minn- ingar og börnin mín um ömmu Gunnu sem við geymum í hjarta okkar. Elsku mamma, ég bið að heilsa pabba og ég veit að vel hef- ur verið tekið á móti þér í Sum- arlandinu, ég sakna þín alveg heil ósköp en ég veit að þú ert sátt og líður vel, þá verð ég að vera sátt. Þú ert gull og gersemi góða mamma mín. Dyggðir þínar dásami eilíflega dóttir þín. Vandvirkni og vinnusemi, væntum- þykja úr augum skín. Hugrekki og hugulsemi og huggun þegar hún er brýn. Þrautseigja og þolinmæði – kostir sem prýða þig. Bjölluhlátur, birtuljómi, barlóm, lætur eiga sig. Trygglynd, trú, já algjört æði. Takk fyrir að eiga mig. Ástarkveðjur og kossar þang- að til við hittumst aftur, þín dótt- ir, Sólveig Bláfeld. Lýs, milda ljós, í gegnum þennan geim, mig glepur sýn, því nú er nótt, og harla langt er heim. Ó, hjálpin mín, styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt, ég feginn verð, ef áfram miðar samt. (Matthías Jochumsson) Í dag kveðjum við kæru tengdamóður mína eftir erfið veikindi. Það er skammt stórra högga á milli, aðeins mánuður frá því faðir minn kvaddi en þar átti hún stóra hluttekningu í að hugga mig og mína, en þannig var einmitt Gunna. Fyrir mér var hún dugnaðarkona sem hlífði sér ekki í verkum sínum. Ys og þys einkenndi heimili þeirra hjóna og á þeim tíma var þar ávallt mikið rætt, skrafað og þrætt. Húsmóð- irin var þar hin rólegasta og oft- ast í eldhúsinu að elda, baka og eða undirbúa mat, veislur og ann- að er þurfti að gera klárt. Þar á heimilinu tóku allir vel til matar síns og var henni það einni lagið að koma því sem til þurfti á borð svo allir fengju meira en nóg. Þegar við sonur hennar hófum búskap var gott að geta leitað til hennar varðandi mat og bakstur því allt þurfti að vera eins og hjá „mömmu“. Einnig voru þau hjónin alla tíð með kindur, en var hún mikill dýravinur og tók hún virkan þátt í vinnunni í fjárhúsunum sem og sá um að allir fengju nóg að bíta og brenna eftir átökin. Henni var mjög umhugað um kindurn- ar og fór hún ávallt í réttir, sauð- burð heimsótti fjárhúsin þó hún væri orðin slæm til heilsunnar. Ég dáðist að henni alla tíð og umburðarlyndi því sem hún sýndi fólkinu sínu og börnum alla tíð. Gunnu þótti mjög vænt um börnin sín og lét sig ekki vanta ef þannig atvikaðist og stóð ávallt þétt við bak þeirra og passaði þau af öllum sínum mætti sem og barnabörnin, sem áttu ávallt öruggt skjól hjá ömmu Gunnu. Lagin var Gunna við föndur ýmiss konar og er margt fallegt sem eftir situr og fjölskyldan fær að njóta, en þar var enginn skilinn eftir og lýsir það því hvernig hún vildi öllu sínu fólki vel. Stundirnar okkar hefðu þó alltaf mátt vera fleiri, þegar maður hugsar til baka, og er ég því svo þakklát fyrir að hafa átt með þér síðustu ár á Dvalar- heimilinu kærkomnar stundir þar sem við tvær spjölluðum um hvað lífið kennir og það sem bet- ur hefði mátt fara í amstri dags- ins. Að gefa okkur tíma fyrir okkur sjálf, en við erum ekki ólíkar á hlaupaskónum. Og margt fleira sem kom okkur báð- um á óvart, hverju við heilluð- umst sameiginlega af, þegar samtölin voru orðin djúp og ein- læg. Ég er svo þakklát fyrir hvað við náðum vel saman, skemmti- legar stundir sem ég geymi með mér, mikið á ég eftir að sakna þeirra. Við ráðum ekki við allt sem verður á vegi okkar, en svo er tíminn liðinn hjá. Elsku tengda- mamma mín, nú er þinni lífs- göngu og verkum lokið og veit ég í hjarta mínu að Agnar tengda- pabbi hefur tekið á móti þér með fögnuði og hlýju. Það sem þú saknaðir hans mikið og veit ég að þú ert sátt og í senn á góðum stað með þínu fólki sem farið er á undan. Ég þakka þér allt það sem þú varst mér, börnunum og barna- börnunum. Ég bið Guð að geyma þig, og engla að umvefja þig ljósi friðar í sumarlandinu þar sem við öll sameinumst á ný. Þín tengdadóttir, Meira: mbl.is/minningar Dagbjört Gísladóttir. Með tárvotar kinnar sit ég hér og skrifa minningargrein um elsku ömmu Gunnu. Amma Gunna var einstaklega falleg sál með hjarta úr gulli. Ég hef alla tíð verið mikil ömmustelpa og elskaði ömmu Gunnu óendanlega mikið enda er hún, verður og hef- ur alltaf verið stór hluti af lífi mínu þar sem hún og afi Aggi eiga stóran þátt í að ala mig upp og gera mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Kom amma mér í gegnum alla grunnskólagöngu mína með toppeinkunnir enda hlýddi hún mér yfir fyrir öll próf og hætti ekki fyrr en ég kunni allt utan að – meira að segja fyrir enskupróf þótt hún hafi ekki skil- ið stakt orð í ensku. Amma var mikil húsmóðir og hikaði ekki við að henda mér í djúpu laugina og kenndi hún mér öll góðu ráðin í eldhúsinu. Ég er svo þakklát fyrir allt sem hún kenndi mér og fáar unglingstúlk- ur sem kunnu að gera saltkjöt og baunir, góða kjötsúpu, gera slát- urkeppi, uppstúf eða hvíta sósu eins og margir segja eða henda í formköku eða baka sjö sortir af smákökum fyrir jólin. Já, við eyddum mörgum stundum í að dunda okkur saman og þolin- mæðin sem hún hafði fyrir mig var endalaus. Hún gat tekið 50 spil á dag án þess að fá leið á því. Amma Gunna var góð sál og knúsin hennar svo hlý og góð og var hún alltaf svo yfirveguð og róleg nema þegar hún horfði á spennandi fótboltaleik eða hand- boltann, þá gat hún sko öskrað og fagnað. Amma var hógvær og sterk kona og alltaf með bestu ráðin, amma var mikil baráttukona í sínum veikindum og alveg sama þótt hún hafi verið lasin, þá var sko allt í fínu lagi með hana að hennar sögn. Með sárt hjartað lít ég til baka og hugsa um allar þær góðu stundir sem við eyddum saman, þær voru sko margar. Að fara heim eftir skóla var að fara heim til ömmu og afa þar var heimili mitt, og þar beið alltaf heitur hádegismatur, lummur eða pönnukökur handa manni. Það yljar mér um hjartarætur að vita að afi Aggi tók vel á móti henni og þau loks sameinuð á ný. Elsku amma Gunna, það sem ég á eftir að sakna þín og það verður erfitt að koma heim í fjörðinn fagra og geta ekki komið beint til þín að knúsa þig. Það er alltaf erf- itt að missa einhvern frá sér og er stórt skarð í líf mitt sorfið en ég veit að þú ert stolt af stelpunni þinni sem stóð sig heldur betur vel í lokaprófunum og skilaði auð- vitað toppeinkunnum og er loks útskrifuð sem hárgreiðslukona. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Þín litla ömmustelpa, Edda Heiðrún Úlfarsdóttir. Guðrún Stefanía Jakobsdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR JÓNASSONAR búfræðings, fyrrverandi útibússtjóra Kaupfélags Eyfirðinga á Siglufirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sunnuhlíðar, hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi, fyrir framúrskarandi umhyggju og aðhlynningu. . Jónas Guðmundsson, Anh-Dao Tran, Arnfríður Guðmundsdóttir, Gunnar Rúnar Matthíasson og barnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRGVINS JÓNSSONAR vélstjóra, Fróðengi 9. Innilegar þakkir til starfsfólks á 13G á Landspítalanum. . Erna Særún Vilmundardóttir, Smári Björgvinsson, Kristín Arnardóttir, Þorsteinn Örn Björgvinsson, Hulda Sigurðardóttir, Vildís Björgvinsdóttir, Charles Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar og ömmu, KRISTÍNAR SIGURÐARDÓTTUR, Aðalstræti 9, Reykjavík. Sérstakar þakkir eru færðar sr. Sveini Valgeirssyni, sóknarpresti Dómkirkjunnar. . Lars Emil Árnason, Erla Árnadóttir, tengdabörn og barnabörn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandend- ur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.