Morgunblaðið - 22.12.2016, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Skáldsagan Eyland hefst áendalokum ástarsambands,en rétt eftir að ástarsam-bandið slitnar, slitnar sam-
band Íslands við umheiminn. Án
þess að ástæður þess séu ljósar er
Ísland skyndilega gjörsamlega ein-
angrað. Í fyrstu vekur þetta ugg,
óþægindi og jafn-
vel einhverja
spennu hjá al-
menningi og aðal-
persónu sög-
unnar, blaða-
manninum
Hjalta, en fljót-
lega koma aðrar
og alvarlegri af-
leiðingar í ljós.
Eyland er frumraun fréttakon-
unnar Sigríðar Hagalín Björns-
dóttur en lítill byrjendabragur er á
verkinu. Þetta er spennusaga skrif-
uð af nákvæmni og jafnvel á köflum
af hlutleysi fréttamannsins. Höf-
undur skoðar frá raunsæislegum og
hagrænum sjónarmiðum hvað Ís-
land þyrfti í raun og veru að gera til
að verða sjálfu sér nægt sem er
ákaflega fróðleg lesning. Öllu skelfi-
legri en um leið sannfærandi eru
þær félagslegu og siðferðislegu
spurningar sem vakna – hvað gerist
ef öll okkar afkoma byggir á mat-
vælaframleiðslu? Ef lyf og eldsneyti
klárast? Ef ljóst er að matvælafram-
leiðsla stendur ekki undir þeim
350.000 sem landið byggja? Hver
ákveður hverjir fá matinn, lyfin,
nauðsynjar? Hér er spurt að því
hvað sameini okkur – hvað geri
manneskjur að fjölskyldu, að þjóð og
hvernig tengsl gildi þegar kreppir
að. Útlendingahatur, þjóðremba og
rasismi fá byr undir báða vængi í
þeim aðstæðum sem höfundur skap-
ar en þótt aðstæðurnar séu skáld-
skapur eru hugmyndafræðin og hat-
ursorðræðan afskaplega kunnug-
legar og tengslin við skelfilega stöðu
flóttafólks í heiminum í dag augljós.
Vangaveltur höfundar um vald eru
kannski ekki nýjar af nálinni en
engu að síður er vel með þær unnið
og samhengið afskaplega sannfær-
andi.
Sigríður beinir líka sjónum sínum
að stöðu fjölmiðla – ef öllu skiptir að
fá Íslendinga til að vera bjartsýna og
standa saman – hvað verður um þá
sem spyrja óþægilegra spurninga og
jafnvel gagnrýna aðferðafræði
stjórnvalda? Ekki þarf að leita lengi
til að finna samhljóm úr samtíma
okkar þar sem fjölmiðlar hafa mátt
sæta alvarlegri gagnrýni og jafnvel
hótunum vegna fréttaflutnings síns.
Hafi einhverjum þótt slíkt athæfi
broslegt hljóðnar hláturinn snögg-
lega við lestur Eylands.
Sigríður kastar fram gríðarlega
áhugaverðum spurningum og svörin
sem hún færir okkur eru mörg
skelfileg – og skelfilega trúverðug.
Eins og í öllum góðum vísindaskáld-
sögum liggja þræðir beint í okkar
samtíma og samfélag – mögulega má
allt í kringum okkur finna vísa að því
þjóðfélagi sem verður til í bókinni.
Eyland er frumraun en merkilega
heildstætt og kröftugt skáldverk, á
stöku stað er frásögnin dálítið dreifð
og hefði mátt vinna betur með þróun
aðalpersónunnar Hjalta en það kem-
ur ekki að sök – Eyland er hárbeitt
ádeila og gríðalega spennandi lesn-
ing.
Morgunblaðið/Eggert
Sigríður „… hárbeitt ádeila og
gríðalega spennandi,“ segir rýnir.
Óhugnanlegt Ísland
morgundagsins
Skáldsaga
Eyland bbbbn
Eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur.
Benedikt bókaútgáfa, 2016. 252 bls.
MARÍANNA CLARA
LÚTHERSDÓTTIR
BÆKUR
sem kallar á að þetta sé karlmaður
frekar en kona. Karlar hafa ekki
einkarétt á siðblindu,“ segir Gísli
sposkur. Hann játar því þó að vissu-
lega breytist ýmislegt í verkinu þeg-
ar Jagó verður kona.
„Jú, nú er það t.d. kona sem segir
eiginmanni að eiginkonan sé honum
ótrú. Í því er allt önnur dýnamík en
þegar tveir karlar ræða þetta sín á
milli.“
„Ekkert annað en pungsháttur“
„Svo kemur auðvitað enn annar
vinkill þegar Óþelló velur annan
karlmann sem næstráðanda sinn og
gengur framhjá Jagó í ráðningunni –
þegar Jagó verður kona erum við hér
komin með dæmi um strákaklíkuna
sem margar konur glíma við í nútím-
anum þegar þær sækjast eftir
stjórnunarstöðum,“ segir Gísli og
bætir því við að hér sé ekki um klisju
að ræða. „Þetta er ískaldur
raunveruleiki kvenna í dag. Fyrir
nokkrum árum spruttu upp nokkrar
sýningar þar sem konur léku Hamlet
og þá heyrði ég því oft fleygt að það
væri „í tísku“ að láta konu leika
Hamlet. Með öðrum orðum var verið
að segja að hér væri tímabundinn
gluggi sem stæði konum opinn, en að
hann myndi lokast þegar þessi tísku-
bóla springi og þá yrði allt aftur eins
og það ætti að vera. Þetta er ekkert
annað en pungsháttur. Ef maður
stingur upp á því í dag að láta konu
leika Hamlet í London er svarið að
það hafi verið gert fyrir þremur ár-
um í Manchester. Þetta eru sorgleg
viðbrögð. Menn vilja gleyma því að
góður leikur er alltaf góður, hvert
sem kynið eða kynþátturinn er. Ég
gæti fyllt heilu opnurnar í um-
ræðunni um þetta.“ Leikgerð Óþelló
ku vera allt öðruvísi en hún var í
Rómeó og Júlíu, þótt leikstjórinn og
leikhópurinn séu þeir sömu. „Það
helgast af því að þetta er einfaldlega
allt öðruvísi verk. Í Rómeó og Júlíu
var mikið um loftfimleika og elskend-
urnir ungu bókstaflega bárust á
vængjum ástarinnar yfir sviðið.
Óþelló býður ekki upp á slíkt.“ Leik-
húsgestir eiga engu að síður von á
góðu. „Verkið byggist að talsverðu
leyti upp á samtölum persónanna og
við leggjum þess vegna mikið upp úr
því áhorfandinn upplifi nálægð við
þessi afdrifaríku samtöl á sviðinu,“
segir Gísli að lokum.
Ljósmynd/Eddi
„Ég vann þýðinguna einn en Gísli
Örn vann síðan leikgerð upp úr
henni,“ segir Hallgrímur Helgason
um þýðingu sína á Óþelló sem ný-
lega hlaut tilnefningu til Íslensku
þýðingaverðlaunanna 2016. Þetta
er í annað sinn sem þeir Gísli vinna
saman að verki eftir Shakespeare.
„Ég þýddi Rómeó og Júlíu þegar
Vesturport setti það upp árið
2002. Það gekk vel,“ segir Hall-
grímur og segist óneitanlega hafa
búið að þeirri reynslu við þýðingu
Óþelló. „Ég vissi betur að hverju
ég gekk í þetta skiptið og gekk
kannski ákveðnari til verks. Shake-
speare er magnaður höfundur og
fer í öllum verkum sínum djúpt inn
í mannssálina. Í Óþelló sýnir hann
okkur hvernig lygin getur gert út
af við góðan mann og hversu stutt
er milli hamingju og helvítis í sam-
búð karls og konu. Eitt lúmskt orð
er nóg.“
Ekki er hlaupið að því að þýða
Shakespeare. „Þetta er snúinn
texti. Ein lína er fimm bragliðir,
hver bragliður er tvö atkvæði og
það þarf að koma miklu efni fyrir í
hverri línu. Þetta var stundum eins
og að pakka fyrir flug með Wow,
maður var að reyna að troða tíu
dögum ofan í
eina litla ferða-
tösku,“ segir
Hallgrímur.
„Einstaka sinn-
um kom fyrir
að ég þurfti að
skilja eitt
sokkapar eftir
eða setja það í
aðra línu.“
„Maður
kemst í ham við að þýða Shake-
speare. Það er eins og textinn hafi
einhver orkugefandi áhrif á mann
– sem er hentugt, því það þarf
mikla orku til að þýða svona texta.
Maður kýlist upp. Shakespeare er
áfengur og víman sem hann gefur
er einmitt sú sem þarf til að þýða
hann. Ég er búinn að eyða hálfu ári
með þessu verki og finnst ég enn
ekki sjá það í einni sjónhendingu.
Óþelló er enn fjall sem ég sé aldrei
allt í einu því enn er þriggja dægra
gangur í kringum það. Verk
skreppa yfirleitt saman þegar
maður fer svona oft í gegnum þau
en það gerir Óþelló ekki, heldur er
frekar eins og fjallið stækki þeim
mun oftar sem maður gengur á
það.“
Stutt milli hamingju og helvítis
HALLGRÍMUR HELGASON ÞÝÐIR SHAKESPEARE Í ANNAÐ SINN
Hallgrímur
Helgason
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Mán 26/12 kl. 20:00 137. s Lau 14/1 kl. 20:00 141. s Fim 26/1 kl. 20:00 145. s
Fös 6/1 kl. 20:00 138. s Sun 15/1 kl. 20:00 142. s Lau 28/1 kl. 20:00 146. s
Sun 8/1 kl. 20:00 139. s Lau 21/1 kl. 20:00 143. s Sun 29/1 kl. 20:00 147. s
Fim 12/1 kl. 20:00 140. s Sun 22/1 kl. 20:00 144. s
Janúarsýningar komnar í sölu!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Mán 26/12 kl. 13:00 24.s. Lau 21/1 kl. 13:00 28.s Lau 11/2 kl. 13:00 32. s
Sun 8/1 kl. 13:00 25.s Sun 22/1 kl. 13:00 29.s Sun 19/2 kl. 13:00 33. s
Lau 14/1 kl. 13:00 26.s Sun 29/1 kl. 13:00 30. s
Sun 15/1 kl. 13:00 27.s Lau 4/2 kl. 13:00 31. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Njála (Stóra sviðið)
Mið 4/1 kl. 20:00 Lau 7/1 kl. 20:00 Síðasta s.
Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Síðustu sýningar.
Ræman (Nýja sviðið)
Mið 11/1 kl. 20:00 Frums. Sun 15/1 kl. 20:00 3. sýn Fim 19/1 kl. 20:00 5. sýn
Lau 14/1 kl. 20:00 2. sýn Mið 18/1 kl. 20:00 4. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 6. sýn
Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014!
Jólaflækja (Litli svið )
Mán 26/12 kl. 13:00 Aukas.
Síðasta sýning.
Jesús litli (Litli svið )
Mán 26/12 kl. 20:00 aukas.
Síðasta sýning.
Hún Pabbi (Litla svið )
Fös 6/1 kl. 20:00 Frums. Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 5 sýn
Lau 7/1 kl. 20:00 2. sýn Lau 14/1 kl. 20:00 4. sýn Lau 21/1 kl. 20:00 6. sýn
Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning
Salka Valka (Stóra svið)
Mið 28/12 kl. 20:00 Fors. Mið 18/1 kl. 20:00 5. sýn Mið 1/2 kl. 20:00 11. sýn
Fim 29/12 kl. 20:00 Fors. Fim 19/1 kl. 20:00 6. sýn Fim 2/2 kl. 20:00 12. sýn
Fös 30/12 kl. 20:00 Frums. Fös 20/1 kl. 20:00 7. sýn Fös 3/2 kl. 20:00 13. sýn
Fim 5/1 kl. 20:00 2. sýn Þri 24/1 kl. 20:00 8. sýn Mið 8/2 kl. 20:00 14. sýn
Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Mið 25/1 kl. 20:00 9. sýn Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn
Þri 17/1 kl. 20:00 4. sýn Fös 27/1 kl. 20:00 10.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Fös 30/12 kl. 19:30 32.sýn Sun 15/1 kl. 19:30 34.sýn Fim 26/1 kl. 19:30 36.sýn
Sun 8/1 kl. 19:30 33.sýn Fös 20/1 kl. 19:30 35.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 13/1 kl. 20:00 Akureyri Fim 26/1 kl. 19:30 34.sýn Sun 5/2 kl. 19:30 37.sýn
Lau 14/1 kl. 20:00 Akureyri Fös 27/1 kl. 19:30 35.sýn
Sun 22/1 kl. 19:30 aukasýn Lau 4/2 kl. 19:30 36.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fim 22/12 kl. 19:30 Frums Lau 14/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn
Mán 26/12 kl. 19:30
Hátíðarsýning
Fös 27/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn
Fim 29/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Lau 7/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 2/2 kl. 19:30 8.sýn
Fös 13/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Gott fólk (Kassinn)
Fös 6/1 kl. 19:30 Frums Fim 12/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 19/1 kl. 19:30 5.sýn
Lau 7/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 14/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 21/1 kl. 19:30 6.sýn
Nýtt og ágengt íslenskt verk um ungt fólk, ástarsambönd, ofbeldi og refsingu
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Fös 13/1 kl. 19:30 Mið 18/1 kl. 19:30
Sun 15/1 kl. 14:00 Fim 19/1 kl. 19:30
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 12/1 kl. 20:00 1.sýn Lau 14/1 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/1 kl. 20:00 9.sýn
Fös 13/1 kl. 20:00 2.sýn Fim 19/1 kl. 20:00 6.sýn Lau 21/1 kl. 22:30 10.sýn
Fös 13/1 kl. 22:30 3.sýn Fös 20/1 kl. 20:00 7.sýn Fim 26/1 kl. 20:00 11.sýn
Lau 14/1 kl. 20:00 4.sýn Fös 20/1 kl. 22:30 8.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 22/1 kl. 13:00 Frums Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn
Sun 29/1 kl. 13:00 2.sýn Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Lofthræddi örninn Örvar (Kúlan)
Fim 29/12 kl. 17:00 Lau 14/1 kl. 15:00
Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki.
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Sýningum lýkur í nóvember!